Aðventfréttir - 01.01.1988, Page 1

Aðventfréttir - 01.01.1988, Page 1
AÐVENT---- 1.1988 FRÉTTIR ÆSKULÝÐSMÓT í DANMÖRKU 26.-31. JÚLÍ 1988 Fimmta hvert ár, eða sem næst því, er alþjóðlegt æskulýðsmót haldið í Norður-Evrópu. Deildin okkar, við köllum hana oftast Norður- Evrópudeildina, skipuleggur þetta mót að venju. í þetta sinn verður þetta stór- mót haldið í Árósum (Arhus) í Danmörku. Árósar eru önnur stærsta borg Danmerkur. Búast má við fjölda ungmenna frá öllum Norðurlöndunum, Eng- landi, Hollandi, Póllandi, Júgóslavíu, Ungverjalandi, jafnvel Grikklandi, ísrael og Pakistan. Sjálfsagt koma svo einhverjir gestir frá öðrum Evrópulöndum þó þau séu ekki í okkar deild. Ráðgert er að efna til hópferðar á þetta mót héðan frá íslandi. Nánar upp þetta mót í næstu blöðum, en þeir sem áhuga hafa á að fara á þetta mót hafi sam- band við: Þröst B. Steinþórsson, í síma 92-1-42-22 (Keflavík). • AKUREYRI Hvíldardaginn 23. janúar s.l. voru timamót hjá safnaðar- systkinum okkar á Akureyri. Þá var formlega tekinn í notkun salur til samkomu- og nám- skeiðahalds. Salurinn er I eigu Skúla Torfasonar, tannlæknis á Akureyri og í tengslum við tannlæknastofu hans. Salurinn er glæsilegur og vel búinn. Þarna eru orgel og píanó, og sæti fyrir um 70 manns. Djásn þessa samkomusalar er hins vegar listaverk sem við segjum ekki frá í AÐVENTFRÉTTUM fyrr en myndir, sem teknar voru í ferðinni, eru komnar úr fram- köllun. Það verður væntanlega í næsta blaði. Við bíðum líka með ferðasöguna þangað til þá. En núna segjum við: Skúli og Ella, Gyða, Ómar, Hreiðar og Soffía, Hreiðar og Elsa og allt smáfólkið, - innilegar þakkir fyrir ógleymanlega helgi. Guð blessi ykkur. Erling B. Snorrason • AÐALFUNDURINN 13. - 15. apríl n.k. verður haldinn 30. aðalfundur Sjöunda dags aðventista á íslandi. Full- trúar Norður-Evrópudeildarinn- ar (Trans-European Division) verða Dr. Jan Paulsen, formaður deildarinnar og K.C. van Oossan- en, ritari deildarinnar. Nánar I næstu blöðum. • Stórt norrænt mót S.D. Aðventista í Ósló, Noregi, 12.-14. maí, 1988. Aðalræðumaðun Neal Wilson, formaður Aðaisamtakanna. Reiknað er með 2-3000 þátttakendum. Ætlar þú? þið? Hringdu þá i 91-1-38-99.

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.