Aðventfréttir - 01.01.1988, Qupperneq 3
3
ÞAKKIR FYRIR TRUMENNSKU
ÁÁRINU 1987
Á fundi stjórnar Samtakanna sem haldinn var 10. janúar 1988 var
meðal annars samþykkt að "þakka trúsystkinum safnaða aðventista á
íslandi fyrir trúmennsku í tíund og gjöfum á árinu 1987. Megi Guð
blessa systkinin um ókomin ár."
Ástæðan fyrir þessari sérstöku
samþykkt var sú að talsverð
aukning varð á tíund á árinu
1987 umfram eðlilega hækkun á
verðlagi í landinu. Það er
ánægjulegt að sjá hve trúföst
safnaðarsystkinin eru í tíundar-
greiðslum sínum og hvernig þau
á þann hátt reyna blessanir
Guðs.
Það er samt ekki úr vegi svona í
upphafi árs að rifja upp nokkrar
meginreglur ritningarinnar fyrir
tíundargreiðslum. Einnig kunna
að vera einhverjir sem ekki hafa
skilið til fulls hvers vegna skuli
skila tíund af launum sínum og
hvernig tíund er reiknuð út. Það
sem hér fer á eftir er að hluta
til fengið úr danska safnaðar-
blaðinu okkar Adventnyt.
TÍUNDARMEGINREGLAN OG
BIBLÍAN
"Enda var allt skapað í honum í
himnunum og á jörðinni, hið
sýnilega og hið ósýnilega, hásæti
og herradómar, tignir og völd.
Allt er skapað fyrir hann og til
hans." Kól. 1,16.17.
Við tilheyrum Guði. Við erum
synir hans og dætur. Við erum
sköpuð af honum. Við erum verði
keypt fyrir blóð sonar hans. Allt
gott sem við tökum við og
njótum, bæði efnislegt og and-
legt, er frá Guði.
Ef til vill hugsum við ekki svo
mikið um þetta í okkar nútíma-
lega, efnishyggjulega þjóðfélagi,
heldur meira um hverju við höf-
um rétt til eða kröfu á. Til-
hneigingin að gera sjálfan sig
auðugan - jafnvel á kostnað
annarra - virðist færast í
aukana. Besta vörn okkar til að
smitast ekki af þessari tilheig-
ingu er að meðhöndla lífið á
þessari jörð með öllum verald-
legum gæðum sem eign Guðs,
okkur til ráðstöfunar.
MAÐURINN ER RÁÐSMAÐUR
EIGNA GUÐS
"Þú lést hann (manninn) ríkja
yfir handaverkum þínum, allt
lagðir þú að fótum hans." Sálm.
8,7. Trúfastur ráðsmaður vinnur
eins og herra hans vill að hann
vinni. Hann tekur á sig þá
ábyrgð sem honum hefur verið
falin, og reynir að vinna starf
sitt eins og hann telur að herra
hans hefði gert það. Áhugamál
herra hans verða ráðsmannsins.
Jesús er fullkomin fyrirmynd sem
fulltrúi föður síns. Hann segir í
Jóh. 6,38: "Ég er stiginn niður af
himni, ekki til að gjöra vilja
minn, heldur vilja þess, er sendi
mig." Guð hefur gefið okkur gáf-
ur og fjármuni til að vinna verk
Guðs hér á jörðinni.
Aðventfréttir 1. 1988
5 MILLJARÐAR
Um miðjan júlí s.L varð
mannfjöldinn á jörðu hér 5
milljarðar. Það fjölgar um
kvartmilljón á dag, eða tæplega
íslandsbyggð. En níu börn af
hverjum tíu fæðast í þriðja
heiminum, þar sem þurrkar,
hungur, atvinnuleysi, örbirgð og
sjúkdómar bíða flestra þeirra.
Fólksfjölgun er minnst þar sem
tæknivæðingin og nýsköpunin er
mest. Þar þarf næstum að múta
fólki til þess að viðhalda þjóð
sinni. Þessi geysilega fólksfjölgun
í fátækustu löndunum verður
vítahringur. Skógar eyðileggjast,
því að orku vantar til eldunar
og upphitunar, og trén eru því
ótæpilega höggvin, reyndar er
helmingur allra trjáa höggvin til
þess.
Þegar trén hverfa, hverfur allt
dýralíf og uppblástur eykst.
Offjölgun, fátækt, ómannlegt líf
sem af því skapast er vandamál
allrar heimsbyggðar.
Það kemur okkur við - þér og
mér.
Víðförli 5. tbl. 1987