Aðventfréttir - 01.05.1995, Side 2

Aðventfréttir - 01.05.1995, Side 2
ÞAÐ ER RUM FYRIR ÞIG - Dásamleg orð þegar þú ert þreytt(ur), aðþrengd(ur), einmana EFTIR SVEN H. JENSEN Fyrir nokkrum árum þegar við bjuggum í Nígeríu fór ég með fjölskyldu mína í ferðalag um suðurhluta landsins. Við fórum frá einum stað til annars, heimsóttum vini, kirkjur og stofnanir. Þar eð við ferðuðumst um óþekkt landssvæði höfðum við að sjálfsögðu kort með okkur. En allar upplýsingar er ekki að finna á korti, sérstaklega ekki um hve hægfara umferðin er! Það var ástæðan fyrir því að dag einn vorum við enn langt í burtu frá ákvörðunarstað okkar þó langt væri komið fram á kvöld. Og ekki sagði kortið okkur hvar hægt væri að finna næsta hótel. Eftir nokkuð langan tíma fundum við hótel. „Mér þykir það leitt", sagði af- greiðslumaðurinn, „það er allt fullt hjá okkur!" Eftir nokkuð langan tíma fundum við annað hótel. En sama sagan endurtók sig. „Við höfum ekkert pláss!" Við vorum orðin mjög þreytt núna. Þar að auki kunnum við alls ekki við að keyra svo seint um kvöld, sérstaklega ekki í þessum hluta landsins. I næsta bæ fundum við enn eitt hótel. En sama sagan endurtók sig á ný: „Því miður, ekkert pláss!" En í þetta sinn tók eigandinn eftir hvernig vonbrigðin lýstu úr augunum á okkur. „Þið getið sofið á barnum ef að þið sættið ykkur við það", sagði hann vingjarnlega. Það var orðið mjög seint og barinn var tómur. Svo að þessa nótt sváfum við, fjölskylda mín og ég, á gólfinu á bar í ókunnu hóteli. AÐVENTFRÉTTIR 58. árgangur - 5. tbl. 1995 ÚTGEFANDI: S. d. aðventistar á íslandi Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Eric Guðmundsson Setning og umbrot: Skrifstofa aðventista Filmuvinna og prentun: Geirsprent Þegar ekkert pláss er á lausu Fyrir 2000 árum urðu örvæntingarfull hjón fyrir sömu reynslu og við: „Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni, sem var þunguð. En á meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu, af því að eigi var rúm handa þeim í gistihúsi" Lk 2. 4-7. Hugsið út í það - ekkert pláss fyrir frelsara heimsins! Þegar Jesús óx úr grasi og hóf starf sitt í Galíleu kom hann til heima- bæjar síns Nasaret og fór í samkunduhúsið á hvíldardegi eins og var vani hans. Hann stóð upp fyrir framan söfnuðinn og las frá Ritningunum og lagði síðan út af ritningargreininni. Viðbrögðin urðu snögg og ofsafengin. „Allir í samkunduhúsinu fylltust reiði, er þeir heyrðu þetta, spruttu upp, hröktu hann út úr borginni og fóru með hann fram á brún fjalls þess, sem borg þeirra var reist á, til þess að hrinda honum þar ofan" Lk 4. 28,29. Það var ekkert pláss handa frelsaranum í heimabæ hans! Bæjar- búar ráku hann á flótta. Ekkert pláss. Enginn staður sem hann gat litið á sem heimili sitt. „Refar eiga greni," sagði hann, „og fuglar himins hreiður, en Mannssonurinn á hvergi höfði sínu að halla" Lk 9. 58. Beðin um að fara Annar viðburður. Hinu megin Galíleuvatns í byggð Gerasena. Þar læknaði Jesú manninn sem haldinn var illum anda og sendi hina óhreinu anda sem höfðu dvalið í honum í svínahjörð og undir áhrifum andans steyptist hjörðin í vatnið og fórst. Þegar íbúarnir sáu þetta „tóku þeir að biðja Jesú að fara burt úr héruðum þeirra" (Mk 5.17). Ekkert pláss fyrir lækninn! Ekkert rúm fyrir huggarann! Og í Samaríu endurtók sama sagan sig. Ritningin segir að „hann lét sendiboða fara á undan sér. Þeir fóru og komu í Samverjaþorp nokkurt til að búa honum gistingu. En þeir tóku ekki við honum" (Lk 9. 52,53). Og ekki nóg með það. Við lesum í Jh 5. 39 og 40: „Þér rannsakið Ritningarnar, því að í þeim hyggist þér eiga eilíft líf. Og það eru þær, sem vitna um mig, en þér viljið ekki koma til mín og öðlast lífið." Það var enginn staður í hjarta þeirra fyrir Jesú. Ekkert pláss! Harðneskja hjartna þeirra snerist í opið hatur í dómshöll Pílatusar. „Þá var aðfangadagur páska, um hádegi. Hann sagði við Gyðinga: ,Sjáið þar konung yðar!' Þá æptu þeir: ,Burt með hann! Burt með hann! Kross- festu hann!'" (Jh 19.14,15). Burt með hann! Krossfestu hann! Frá fæðingu að lokum starfstíma- bils hans fékk Jesús stöðuglega þessi sömu skilaboð: Við viljum þig ekki. Við eigum ekkert pláss fyrir þig. „Vér vitum, að Guð talaði við Móse, en um þennan vitum við ekki hvaðan hann er", (Jh 9.28). En hann bjó stað fyrir okkur Það var ekkert pláss fyrir Jesú en hann undirbjó stað fyrir okkur! „Og þegar ég verð hrifinn upp frá jörðu, mun ég draga alla til mín" (Jh 12.32). Og einmitt það átti sér stað við krossinn. Krossinn hefur aðdráttar- afl. Undir krossinum er pláss fyrir okkur öll. Þar er enginn undan- skilinn. Þegar við lesum Biblíusöguna þá tökum við eftir hermönnum þar sem höfðu laðast að manninum á krossinum. Hundraðshöfðinginn getur ekki haldið aftur af sér. Lúkas segir: „Þegar hundraðshöfðinginn sá það, er við bar, vegsamaði hann Guð og sagði: ,Sannarlega var þessi maður réttlátur'" (Lk 23.47). Það var einnig pláss fyrir Farísea og hina ríku undir krossinum því að Nikódemus var þar. Og Jósef frá Arímaþeu. Þegar þeir komu voru þeir hikandi fylgjendur Jesú; þegar þeir fóru voru þeir fullkomlega sannfærðir um að hann væri Messías. 2 AðventFréttir 5,1995

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.