Aðventfréttir - 01.05.1995, Page 3
Það var einnig pláss fyrir
ræningjann. Þrátt fyrir nístandi sárs-
aukann talaði Jesús huggunarorð til
samþjáningarmanns síns: „Sannlega
segi ég þér í dag, þú skalt vera með
mér í Paradís" (Sjá 43. vers).
Þarna var einnig pláss fyrir
ofsækjendur Jesú og múginn. „Faðir,
fyrirgef þeim, því þeir vita ekki hvað
þeir gjöra" (34. vers). Jesús for-
dæmdi þá ekki. I hjarta hans var
rúm. Hann þráði að frelsa þá alla.
Og einnig var rúm fyrir konurnar
og lærisveinana. Fólk úr söfnuði
Guðs var þarna statt. Þarna undir
krossinum sannfærðust þau um að
fórn hans rnundi verða þeim öllum
til frelsunar. Við getum einnig í dag
horft til sama kross í trú og fullri
sannfæringu að: „Hver sem á hann
trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf"
(Jh 3.16).
Já, sá sem var hafnað gerði rúm
fyrir okkur öll. Hann segir: „Allt sem
að Faðirinn gefur mér mun koma til
mín, og þann sem kemur til mín,
RÉTTUM
HAFNARFJARÐARSÖFNUÐI
JÓLAGJÖF!
Miklu grettistaki hefur verið lyft i
Hafnarfirði undanfarna mánuði þar
eð tekist hefur fyrir söfnuðinn undir
vasklegri stjórn Steinþórs Þórðar-
sonar, að nær full-innrétta frábært
safnaðarheimili við Hólshraun 3 (Sjá
grein Steinþórs Þórðarsonar um
framgang málsins).
Ástæða þess að ég hef máls á
þessu hér einnig er að söfnuðurinn
sér sig knúinn til þess að byrja að
nýta nýja heimilið þann 23. desember
n.k. og er þeim ekkert að vanbúnaði
nema hvað söfnuðurinn á enga stóla
til að sitja á! Einnig verður Steinþóri
hugsað til nýja ársins þegar
Opinberunarbókarnámskeið eru
áformuð en til þess þarf borð.
Ef við gætum fundið það hjá okkur
að rétta Hafnarfjarðarsöfnuði gjöf í til-
efni áfangans þannig að þau megi
eignast nauðsynlega húsgögn
myndum við stuðla að gleðilegum
jólum í Hafnarfirði! Til hamingju
Hafnfirðingar með goðan árangur.
Megi Guð áfram blessa árangur af
starfi ykkar.
Ííuínvunc/Mo n
mun ég alls ekki á brott reka" (Jh
6.37).
Þegar þér er hafnað
Einhver erfiðasta reynsla lífsins er
að finna fyrir höfnun — að það sé
ekkert pláss fyrir okkur í samfélagi
annarra. Fólk fær þessa tilfinningu
þegar það missir vinnuna, fellur á
prófi, fer í gegn um skilnað, þjáist af
sjúkdómi eða verður fyrir ástvina-
missi. Fólk sem hefur misst réttindi
sín, sem lifir sem flóttamenn eða
sem verður fyrir höfnun vegna kyn-
þáttar eða litarháttar kennir sömu
tilfinningar. Heimur okkar er fullur
af einstaklingum sem finnst þeim
hafnað og þeir óvelkomnir.
Ef þú finnur fyrir þannig til-
finningu í dag hlýddu þá á orð Jesú á
ný: „Eg mun aldrei reka ykkur á
brott." Jesús hefur búið okkur stað í
hjarta sínu, í áformum sínum, í fram-
tíð sinni.
Já, í hinu himneska ríki hefur
hann undirbúið okkur stað. „Hjarta
yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og
trúið á mig. í húsi Föður míns eru
margar vistarverur. Væri ekki svo,
myndi ég þá hafa sagt yður, að ég
færi burt að búa yður stað? Þegar ég
er farinn burt og hef búið yður stað,
kem ég aftur og tek yður til mín, svo
að þér séuð einnig þar sem ég er."
(Jh 14.1-3).
Það er pláss! Nóg af plássi. Því að
hann sem fann engan stað þar sem
hann gæti dvalið á meðal okkar
hefur búið stað handa okkur öllum.
O, hve dásamlegt er að bera þennan
boðskap öðrum! Ættum við ekki að
gera pláss til reiðu fyrir hann í
hjörtum okkar í dag? Og ættum við
ekki að hafa þar pláss fyrir aðra?
Þessi heimur er fullur af lokuðum
dyrum. En sérhvert okkar getur
opnað dyr hjartans og boðið Jesú
inn. Og þegar hann gengur í garð
fyllir hann líf okkar kærleik og anda
sínum.
Sven H. Jensen er formaður Mið-
Austurlandasambandsins Nicosíu,
Kýpur.
Þýðandi: Eric Guðmundsson
GLÆSILEGT
KYNNINGARBLAÐ UM
SÖFNUÐINN
Út er komið vandað kynningarrit
um söfnuðinn undir heitinu:
„Aðventistar, gefandi kærleiksrík
heimskirkja" sem framleitt var í
samstarfi við fjölmörg lönd í okkar
deild. I blaðinu er einkennum og
tilgangi safnaðarins lýst á skýran og
afar áhugavekjandi hátt í máli og
fjölmörgum myndum. Sér opna
fjallar um starf safnaðarins hér á
Islandi.
Upplag ritsins á íslensku er
25.000 og stendur söfnuðum okkar
til boða gegn kostnaðarverði. Stjórn
Samtakanna óskar að hvetja hina
ýmsu safnaðarstjórnir til að nýta sér
þetta rit á hvern þann máta sem þær
telja fýsilegastan. Einhverjum
söfnuði kynni að þykja tímabært í
tengslum við opinberar samkomur
að dreifa ritinu til allra heimila í
viðkomandi bæjarfélagi. Annar
kynni að vilja dreifa ritinu á allar
biðstofur lækna og annarra á sínu
svæði. Enn annar kann að vilja gefa
Biblíubréfaskólanemum þessi rit í
tengslum við heimsóknir eða sem
gjöf til vina og kunningja utan
safnaðarins.
Hér með er vakið máls á tilvist
þessa kynningarrits og hvatt til
nýtingar á því til að kynna söfnuðinn
AðventFréttir 5,1995
3