Aðventfréttir - 01.05.1995, Qupperneq 4

Aðventfréttir - 01.05.1995, Qupperneq 4
FRÁ STARFINU PRESTASKIPTI í REYKJAVÍK Hvíldardaginn 21. október s.l. kvöddum við David West og Ragnhildi konu hans eftir fjögurra ára dvöl þeirra hér í Reykjavík. David var ráðinn hingað í ágúst 1991 til að sinna preststarfi hjá Reykjavíkursöfnuði og hefur hann sinnt því starfi með prýði og ber þar sennilega hæst hve duglegur hann var að sinna heimsóknum til safnaðarmeðlima og einkum þegar erfiðleikar steðjuðu að. David gegndi einnig starfi æskulýðs- leiðtoga og var þá duglegur að fylgja unga fólkinu og reyna að hvetja það til að gegna veiga meira hlutverki innan kirkjunnar. í þeirra stað koma Björgvin Snorrason og Ásta Guð- jónsdóttir til starfa í Reykjavík, en þau koma frá Árnessöfnuði þar sem Björgvin hefur þjónað sem prestur. Björgvin hefur einnig starfað sem æskulýðsleiðtogi síðasta árið og mun halda því starfi áfram. Ásta lætur nú af störfum sem skólastjóri Hlíðardalsskóla og hefur verið ráðin til starfa við iðjuþjálfun á Lands- sþítalanum. Fjölmennt var við síðustu guðs- þjónustu David og Göggu og meðal annars söng Garðar Cortes lag sem David samdi við frægan enskan sálm „There is a green hill far away“, en David lék sjálfur undir á píanó. Þessi sálmur hefur verið í miklu uppáhaldi hjá David og fékk hann Jón Hjörleif Jónsson til að íslenska texta sálmsins. David notaði þetta tækifæri og afhenti Björgvin Snorra- syni lykla kirkjunnar sem opinbera staðfestingu á prestaskiptunum. Þá var þeim hjónum færðar gjafir frá söfnuðinum og einnig frá Sam- tökunum sem þakklætisvott fyrir framlag þeirra síðustu árin. Eftir guðsþjónustuna var efnt til sameiginlegrar máltíðar í Suður- hlíðarskóla. Við kunnum David mikla þökk fyrir samstarfið og allar samverustundir síðustu árin og óskum þeim hjónum velfarnaðar í nýju starfi við söfnuð okkar í Edinborg í Skotlandi. Einnig viljum við bjóða Björgvin og Ástu hjartanlega velkomin til starfa í Reykjavíkursöfnuði og biðjum Guð að blessa þau í starfi. Heba Magnúsdóttir, safnaðarritari FRÁ HAFNARFJARÐARSÚFNUÐI Nú fer að líða að því að söfnuðurinn í Hafnarfirði geti flutt inn í nýja safnaðarheimilið að Hólshrauni 3. Þar hefur verið unnið við framkvæmdir að meira eða minna leyti frá því í desember s.l. Áformað er að flytja inn í safnaðarheimilið fyrir jólin og verðurfyrsta samkoman þar á Þorláksmessu, 23. desember. Munu þá hafa liðið um 12 mánuðir frá því að hafist var handa um framkvæmdir á s.l. ári. Að sjálfsögðu verður ýmsu ólokið þegar safnaðarheimilið verður tekið í notkun, en áfram verður unnið við að koma öllu í rétt horf sem allra fyrst. Allt er þetta háð fjármagni, en Guð hefur sýnt það svo áþreifanlega að hann hefur velþóknun á þessu verkefni. Trúsystkinin í Hafnarfirði hafa því ærna ástæðu til að treysta því, að hann hjálpi þeim til að Ijúka verkefninu. Eftirfarandi má nefna sem dæmi um handleiðslu Guðs í þessum efnum á síðastliðnum vikum. Þegar byggingasjóður safnaðarins var upp urinn, ákvað trúbróðir okkar að athuga hvað hægt væri að gera til að fjármagna kaupin á loftefni fyrir ganginn. Hann fékk tvo aðra einstaklinga í lið með sér og sameiginlega gáfu þau kr. 50.000 til kaupa á loftklæðningu fyrir ganginn. annar maður úti á landi spurði hvað efnið í ræðupallinn mundi kosta. Þegar honum var sagt að það gæti kostað um kr. 50.000, gaf hann þessa upphæð með þeim orðum, að presturinn yrði nú að hafa eitthvað undir fótum sér þegar hann prédikaði Guðs Orð. Tveimur dögum síðar hækkaði hann upp- hæðina í 100.000 kr. til að einnig væri hægt að kaupa hurðarhúna og skrár fyrir safnaðarheimilið. Hjón, sem ekki eru einu sinni í söfnuði aðventista, buðust til þess að fjár- magna vinnu tveggja trésmiða við að setja upp loftklæðninguna í sam- komusalnum, en það er um það bil 4-5 vikna verk sem þeir eru vel á veg komnir með að Ijúka þegar þetta er ritað. Á meðal þess sem enn vantar í safnaðarheimilið eru stólar, borð og annar húsbúnaður, tæki og áhöld í eldhúsið, svo og hljómburðartæki, svo eitthvað sé nefnt. Nýlega barst góð sending frá hjónum í Banda- ríkjunum, en þau gáfu safnaðar- heimilinu nýtt píanó. Kona á Suður- nesjum hefur gefið Hafnarfjarðar- söfnuði vandað kvöldmáltíðarsett ásamt handklæðum og vaskafötum fyrir 80 manns. Allt er þetta í viðbót við margar aðrar höfðinglegar gjafir sem safnaðarheimilinu hafa verið færðar, ýmist í peningum, efni eða fórnfúsri vinnu. Fyrir allt þetta er fólkið í Hafnarfjarðarsöfnuði afar þakklátt. Steinþór Þórðarson. 4 AðventFréttir 5,1995

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.