Aðventfréttir - 01.05.1995, Blaðsíða 10
RAÐSTEFNA
AÐALSAMTAKANNA
f UTERECHT f
SUMAR
UTRECHI '95
Dagana 29. júní - 8. júlí s.l. var
haldin ráðstefna Aðalsam-
taka Sjöunda dags
aðventista í Utrecht í Hollandi. Hér
fer á eftir umfjöllun um ráðstefnuna
og verður stiklað á stóru hvað snertir
helstu ákvarðanir fundarins.
Fjöldi þátttakenda við 56. heims-
ráðstefnu Aðalsamtakanna í Utrecht
í Hollandi fór fram úr björtustu
vonum. Strax á fyrsta degi mættu til
innritunar um 18.000 þátttakendur,
þeirra á meðal um 2.600 fulltrúar.
Fyrsta hvíldardag ráðstefnunnar, 1.
júlí tóku 33.000, manns í sam-
komunum og talið er að milli 45-
50.000 manns hafi tekið þátt seinni
hvíldardag ráðstefnunnar. Þannig
hafa hátt í 60.000 aðventistar
heimsótt Holland í tengslum við
ráðstefnuna.
Margir þátttakendanna frá Austur-
Evrópu höfðu ferðast í hópferða-
bílum í 48 klukkustundir áður en þeir
komust á leiðarenda í Jarbeurs í
Utrecht. Flestir þessara bjuggu í
klefum sem sérstaklega voru settir
upp í þeim tilgangi í tveimur stórum
sýningarhöllum.
Robert Folkenberg var
endurkjörinn formaður
Robert S. Folkenberg (54 ára) var
endurkjörinn sem formaður Aðal-
samtakanna. í stjórnarnefndinni
sátu um 200 fulltrúar frá öllum
heimshlutum. Ekki tók það nefndina
langan tíma að koma með tillögu um
endurkjör Roberts sem hefur verið
leiðtogi aðventhreyfingarinnar frá
árinu 1990og nú horfir fram til þess
að gegna þeirri stöðu fram til næstu
ráðstefnu Aðalsamtakanna í To-
ronto í Kanada árið 2000.
Fulltrúar og aðrir gestir í salnum
brugðust við með lófataki þegar
tillagan um endurkjör var borin fram.
Folkenberg sagðist taka endurkjöri
með mikilli auðmýkt. „Enginn er
nægilega snjall til að vera leiðtogi
þessarar hreyfingar", sagði
Folkenberg og minnti á að eini
leiðtoginn sem við fyllilega getum
treyst er Jesús Kristur sjálfur.
Jan Paulsen kosinn vara-
formaður
Jan Paulsen (60 ára) sem í meira
en 10 ár hefur verið leiðtogi starfsins
í okkar deild var kosinn einn sjö
varaformanna Aðalsamtakanna. Til
starfsins í aðalstöðvum Aðalsam-
takanna tekur hann
með sér bæði frábæra
hæfileika og mikla
reynslu sem mun
verða söfnuðinum til
mikillar blessunar þar
eð hann þegar á seinni
árum hefur oft verið
sendur til að leysa úr Jan og Kari Paulsen
erfiðum málum á
ýmsum stöðum í
heiminum.
Bertil
Wiklander, nýr
formaður Stór-
Evrópu-
deildarinnar Bertil wiklander
Fyrrverandi
formaður sænska Sambandsins
Bertil Wiklander (48 ára) var kosinn
til að gegn stöðu formanns Stór-
Evrópudeildarinnar. Wiklander hefur
gegnt stöðu formanns sænska
Sambandsins í tvö ár en hann var
áður ritari þess Sam-
bands frá árinu 1989 -
1993. í 9 ár þar áður
var hann skólastjóri
Ekebyholm skólans.
Hann hefur doktors-
gráðu í guðfræði frá
Háskólanum í Uppsala.
Bertil Wiklander tók
10