Aðventfréttir - 01.05.1995, Page 11

Aðventfréttir - 01.05.1995, Page 11
þannig við stjórnunarstöðu Deildar sem samanstendur af meira en 30 löndum. Eitt af þeim erfiðu verk- efnum sem liggja framundan innan þessarar Deildar er að ná árangri í múhameðs-trúarlöndum fyrir botni Miðjarðarhafs en þau lönd heyra nú til okkar Deildar. Reindar Bruinsma nýr ritari Deildarinnar Einnig var kosinn nýr ritari Stór- Evrópudeildarinnar þar eð Dr. Reindar Bruinsma sem hefur verið almannatengslaritari Deildarinnar tók við því starfi. Bruinsma er frá Hollandi og hefur starfað bæði þar og í Afríku. Áður en hann tók við störfum á Deildarskrif- stofunum í London starfaði hann við Institute of World Missions við An- drews háskólann í Michigan. Tölfræðilegar upplýsingar frá ráðstefnunni * 300 tonn varnings var fluttur til Utrecht til að mæta hinum ýmsu þörfum ráðstefnunnar. * Á hverju kvöldi voru sendir út fréttaþættir af ráðstefnunni um gervihnött til um 1.000 endur- varpsstöðva um víða veröld. * AWR (Heimsútvarp aðventista) stóð fyrir gerð útvarpsþátta um ráðstefnuna, í allt um 35 klst. * Þátttakendur komu frá 205 löndum * Talað efni ráðstefnunnar var þýtt á 18 mismunandi tungumál. * Stór bókamarkaður ráðstefnunnar bauð upp á 65 tonn bóka og myndbandaefnis. Unga fólkið tók þátt í lífsstílsráðstefnu Á meðan fulltrúarnir voru uppteknir af kosningum og skýrslum í sjálfri ráðstefnuhöllinni tóku margir unglingar þátt í námskeiðinu „Youth to youth“ (Ungir til ungra) þar sem 26 ungir náms- menn hvöttu aðra unglinga til að snúa baki við notkun eiturlyfja, áfengis og tóbaks. Þau sögðu líka frá því hvernig eignast má nýja vini um heim allan. Einnig var boðið upp á nám- skeiðið „Impact" (Áhrif). í vikunni áður en ráðstefnan hófst hafði verið kennt í þessu námskeiði um æsku- lýðsboðun. Kennsluefnið var svo reynt í verki á torgum og göngu- götum um alla Utrecht. Mannlífið á ráðstefnunni Litríkir þjóðbúningar, geislandi bros, áköf börn, hlý faðmlög, undar- legar mállýskur, bænastundir... Allt þetta og mikið meira vegna þess að þessi heimsráðstefna mótaðist af iðandi mannlífi. Fólkið fór ekki strax heim að loknum fundahöldum á kvöldin. Fram að miðnætti stóð fólk og talaði saman eða söng og lék á hljóðfæri bæði fyrir utan og innan dyra í ráð- stefnuhöllinni. Maður gat staðið kyrr og heyrt talað á rússnesku, hollensku, ensku, spönsku og rúm- ensku og allt blandaðist þetta í eina lofgjörðarhljómkviðu. Um alla Utrecht hitti maður fólk frá ráðstefnunni. í búðum eða á síkja- bátunum eða á kvöldin í lestum á leið heim. Andlitin báru merki vonar. Hér voru persónur sem áttu svo margt sameiginlegt. Seint mun gleymast þegar hin 90 ára Meropi frá Albaníu kom fram á sviðið eða Davahú sem er fyrsti aðventistinn í mörg ár sem hefur skírst í Mongólíu. Hve dásamlegt það var líka að hitta gamla vini og skólafélaga frá mörgum heims- hornum. Sameinuð - en ekki eins Ráðstefna Aðalsamtakanna einkenndist af miklum fundahöldum. Hér var kjörorðið: Eining í Kristi: Sameinuð, já, en ekki eins. - Margar skoðanir, styttur ræðutími, ósk um áhrif. Niðurstaðan varð: Skipulags- breyting fyrir nokkrar deildir Aðal- samtakanna, stækkun stjórnarinnar upp í 260 meðlimi, breytingar á safnaðarhandbókinni, höfnun á vígslu kvenna til prestsþjónustu. (Sjá grein: Vígslu kvenna hafnað). Ráðstefnan einkenndist af opnum umræðum þar sem mörg ólík sjónarmið voru sett fram og tekist var á um þau á málefnalegan hátt. En einingarandi var samt hin sterka undiralda ráðstefnunnar. Eining í kærleika okkar til Drottins okkar og frelsara Jesú Krists og þess sann- leika sem þessi söfnuður hefur verið kallaðurtil þess að boða heiminum á okkar tímum. Og heim héldu menn sannfærðir um handleiðslu Guðs yfir þessum söfnuði sem hefur mikið og brýnt verk að vinna í samtímanum. Eric Guðmundsson (Stuðst var við HEIMILDIR ÚR ADVENT NyT NR. 9 1995). 11

x

Aðventfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.