Aðventfréttir - 01.05.1995, Qupperneq 12

Aðventfréttir - 01.05.1995, Qupperneq 12
Gott ogvel,Jesús kemur aftur, en ég vona að hann fresti því eitthvað. Það er svo margt sem ég þarf að koma í verk fyrst." Ég kannaði málið hjá 50 ungmennum til að heyra viðbrögð þeirra við fregninni um endurkomu Jesú. Enginn fór svo langt að óska þess að hann kæmi alls ekki, en fjöldi þeirra vonaði að hann slægi því á frest. Hvers vegna? Vegna þess að þau sögðust vilja ná að lifa lífinu fyrst. Þau höfðu lagt áform um ævi- starf sem þau langaði að yrði að raunveruleika. Marga langaði að verða ástfangin, giftast og eignast fjölskyldu fyrst. Aðra langaði að klára menntun eða byggja hús eða eignast Chevrolet fornbíl. Það er auðvelt að áfellast þannig afstöðu og segja hana byggða á efnishyggju eða heims- hyggju. En hvað með þá hugsun að heimsendir kollvarpi öllum persónu- legum áformum hér í þessu lífi? Er það haldbær ástæða fyrir því að seinka endurkomunni? Vafalaust segir þetta mikið um viðhorf okkar til endurkomunnar. „Það er trúaratriði" myndu sumir segja. „Það hefur ekki áhrif á daglegt líf okkar. Þú trúir þessu af því að þetta er að finna í Biblíunni, en þú mátt ekki láta það hafa áhrif á dag- legt líf þitt. Það væri og langt gengið." Satt er það að sumir hafa látið trúna á endurkomu Krists hafa nei- kvæð áhrif á sig. Sumir hafa hætt vinnu sinni til þess að geta einbeitt sér að því að bíða komu Krists. Sumir hafa haldið því fram að áform um hjónaband og húsbyggingu væri sönnun þess hjá fólki að það tryði ekki á bráða komu Jesú. En flestir hugsa ekki þannig. Frekar gefa þeir til kynna afstöðu Tómasar: „Vonandi er þetta ekki endir alls. Ekki alveg strax að minnsta kosti." Ahyggjuleysi. Skeytingarleysi. Deyfð. myrkursins og klæðumst hertygjum ljóssins" (Rm 13.11,12). „Bíddu augnablik Drottinn. Mig langar til að gera þetta fyrst. Og nú þetta. Og svo þetta. Ég mun fást við þetta með endurkomu Jesú á morgun." Og einhvern veginn er það þannig að „á morgun" kemur aldrei. Kannski vegna þess að sum okkar vilja helst ekki fást við Guð. Við óskum ekki eftir beinu samfélagi við hann. Betra væri að það væri til nákvæm lýsing á því hegðunar- mynstri sem farið er fram á sem við öll getum verið ásátt um. Ef við förum eftir því mun Guð verða að launa okkur með eilífu lífi. Það er ekki þörf á því að hvorugum aðilanum þyki vænt um hinn. Engin þörf á persónulegum kynnum. Margir aðhyllast þannig trú — vélræn trúarbrögð sem koma hlutum í lag milli þín og Guðs þannig að þú fáir það sem þú þarft á að halda án þess að þurf að þekkja Guð. Er endurkoma Jesú einskonar innrás í lífið? Er Guð óboðinn gestur? Hrópum við á hann eins og vöku- menn á verði: „Stans! Hver fer þar? Vinur eða óvinur?" Spurningin um það hvort Guð er óvinveittur eða vinveittur læðist um í undirmeð- vitund okkar þegar við hugsum um endurkomu hans. Kannski er það ástæðan fyrir því að fólk virðist segja: „Guð, ekki koma eins og boð- flenna. Láttu mig í friði. Sjáðu bara til þess að þú standir við samkomu- lagið af þinni hálfu og ég mun sjá um það sem að mér snýr." Myndurn við vilja fresta endur- komu Jesú? Jafnvel fresta henni að eilífu? Hinn fyrsti kristni söfnuður beið óþolinmóðlega eftir endur- kornu Krists. Þau þráðu að sjá vin sinn og Drottinn á ný. En þegar dagarnir urðu að mánuðum og mánuðirnir að árum og árin að öldum snerist óþreyjan upp í ótta. Aður en langt urn leið báðu hinir kristnu urn það að endinn myndi EFTIR JONATHAN GALLAGHER Við þessu bregst Guð vegna mikillar umhyggju sinnar: „Sæll er sá sem vakir" (Opb 16.15). „Yður er mál að rísa af svefni, því að nú er oss hjálpræðið nær en þá er vér tókum „Sumir óskuÖu þess aÖ Jesús seinkaði komu sinni... vegna þess að þeim fannst þau óundirbúin; vegna þess að þau voru ekki viss hvaÖ myndi verÖa um þau; vegna þess að þau vorufarin að óttast GuÖ sem dómara." trú. Liðið er á nóttina og dagur er í nánd. Leggjum því af verk 12 AðventFréttir 5,1995

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.