Aðventfréttir - 01.05.1995, Blaðsíða 15
NEIVIÐ VÍGSLU
KVENNA
Mikill meirihluti fulltrúanna við ráð-
stefnu Aðalsamtakanna í Utrecht
greiddi atkvæði gegn vígslu kvenna
þegar þetta mál var borið undir at-
kvæðagreiðslu. Atkvæði féllu
þannig að af 2.154 greiddum at-
kvæðum voru 673 sem greiddu at-
kvæði með umleitan Norður-
Ameríkudeildarinnar um að hver
Deild fyrir sig gæti afgreitt málið
varðandi vígslu presta án tillits til
kynferðis innan síns svæðis. 1.481
fulltrúi greiddi atkvæði á móti.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
sýndi að ekki var algjör samstaða um
málið innan Norður-Ameríku,
Astralíu og Evrópu.
Sögulegur bakgrunnur.
Umleitanin frá Norður-Ameríku-
deildinni snerist formlega um að
hver Deild fyrir sig ætti að öðlast rétt
til þess að ákveða hvaða
einstaklingar, án tillits til kynferðis,
geti hlotið vígslu til prestsþjónustu.
Aður en umræður um málið hófust
fræddi fundarstjóri fundarins
fulltrúana um sögulegan bakgrunn
þessa máls innan aðventhreyfingar-
innar. Hann tók fram að á ráðstefnu
Aðalsamtakanna árið 1881 var gerð
eftirfarandi samþykkt: „Samþykkt
að það sé fullkomlega verjandi að
konur sem uppfylli nauðsynleg
skilyrði til þess að gegna prests-
embætti, hljóti vígslu til þeirrar
þjónustu (A ensku: to the work of
the Christian Ministries)."
Þessi samþykkt varð aldrei að
raunveruleika þar eð í samþykktinni
var einnig kveðið á um að þessu
máli skyldi vísað til stjórnar Aðal-
samtakanna og það lítur út fyrir að
rnálið hafi aldrei hlotið afgreiðslu
þar.
Með og á móti.
Aður en umræður fulltrúa hófust
höfðu tveir guðfræðingar framsögu
um málið. Dr. Gerarld Damsteecht
frá prestaskóla Andrews háskólans
talaði gegn vígslu kvenna. Hann
færði þrjú aðalrök gegn tillögunni.
Fyrir það fyrsta að þessi tillaga stríði
gegn biblíulegri kenningu um
söfnuðinn. I tímanna rás allt frá
sköpun heims, á tímum Gamla og á
tímum Nýja testamentisins hefur
hið prestlega hlutverk verið falið
körlum.
I öðru lagi sá Damsteecht að þessi
tillaga stangaðist á við kenninguna
um Biblíulegt kennivald þar eð til
þess að viðurkenna vígslu kvenna
þurfi að endurtúlka Ritninguna og
ekki lengur viðurkenna hið eðlilega
inntak orða Biblíunnar. I þriðja lagi
taldi Damsteecht að eining safnað-
arins myndi bíða alvarlegan hnekki
ef að þeir andbiblíulegu stjórnar-
hættir yrðu samþykktir sem byggja
á því að horfið sé frá því að prests-
vígsla sé í gildi um allan heim.
Öll röksemdafærsla Damsteechts
var dregin saman í punkta og birt á
geysistórum sjónvarpsskjá fyrir
framan fulltrúana á meðan hann
flutti erindi sitt. Dr. Raoul Dederen,
líka frá Andrews háskólanum, talaði
með tillögunni. - Sannleikurinn er
sá, undirstrikaði hann, að Biblían er
algjörlega þögul um vígslu kvenna.
Biblíuleg röksemdafærsla okkar um
þetta mál byggist stöðuglega á
ritningarstöðum sem fjalla í raun
ekki um vígslu. Dr. Dederen fjallaði
einnig um skilning á Ritningunni í
framsöguerindi sínu. Hann las í
lKor þar sem sagt er að konur skuli
þegja í söfnuðinum. „Segið mér",
sagði hann, „getið þið fulltrúar sann-
fært mig um að engin kona segi neitt
í söfnuðum okkar neins staðar í
neinum af okkar Deildum? Hvers
vegna leggjum við okkur ekki fram
um að fylgja þessu versi, en
berjumst svo við að halda öðrum
versum í heiðri?"
Heitar umræður.
Þegar fulltrúarnir að lokum fengu
tækifæri til að tala um málið upp-
hófst kapphlaup að hljóðnemunum.
Við báða hljóðnemana, sem voru
merktir, annar með og hinn á móti,
mynduðust strax 50 - 60 metra
langar biðraðir. Allir höfðu eitthvað
að segja um þetta mál og margir
vildu leggja orð í belg en einungis
um 30 einstaklingar fengu tækifæri
til þess á þeim tíma sem gefinn var
til umræðna.
Vonbrigði og von.
Niðurstöður atkvæðagreiðslunnar
ollu mörgum, ekki síst konum,
miklum vonbrigðum. Ein kona
sagði: „Eg varð fyrir geysilegum
vonbrigðum, ég hefði ekki búist við
svo mikilli andstöðu."
En á kvöldsamkomunni þennan
dag hlýddu fundarmenn á frásögn
um starfsemi leikmanns í Kína sem
er kona. Hún hefur ekki hlotið guð-
fræðimenntun en hún þekkir
Biblíuna sína og hún elskar Drottinn
sinn. A fáeinum árum hefur hún
skírt 800 einstaklinga.
Enn er rúm og þörf fyrir þátttöku
kvenna sem eru kallaðar af Guði í
boðunarstarf safnaðarins og við
verðum að vona að vonbrigðin sem
niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í
Utrecht olli, hindri ekki vöxt og
framgang Orðs Guðs.
Tor Tjeransen,
norskt Advent Nytt nr. 9-1995,
Eric Guðmundsson þýddi.
AðventFréttir 5,1995
15