Aðventfréttir - 01.05.1995, Side 19

Aðventfréttir - 01.05.1995, Side 19
MINNINGAR Charlotta Ólöf Gissurardóttir /. 16. janúar 1916 d. 7. september 1995 Charlotta Ólöf Gissurardóttir, lést 7. september s.l. í Landsspítalanum eftir skamma sjúkralegu. Hún fæddist þann 16. janúar 1916 í Reykjavík, og var því mjög nálægt því að vera áttræð þegar hún lést. Foreldrar Ólafar voru þau Gissur Filipusson frá Kálfafellskoti í Fljótshverfi, V. Skaftafellssýslu og Helga Jensdóttir, ættuð úr Önundar- firði. Ólöf átti engin alsystkini, en hálfsystkini voru 5. Ólöf ólst upp hjá föðursystur sinni, Regínu Filipus- dóttur sem var búsett í Reykjavík en æska Ólafar einkenndist af mikilli vinnu og ekki urðu mikil tök á því leiða til að þoka þessum málum áfram sem mest er kostur þannig að hægt sé að leggja fram greinargóða skýrslu fyrir fjármálafund Sam- takanna sem fram fer 7. janúar n.k. Kæru safnaðarmeðlimir. Eins og við öll gerum okkur grein fyrir erum við að fást við afar mikilvægt mál- efni sem varðar áframhaldandi vöxt og árangur safnaðarstarfsins hér á landi. Hlíðardalsskóli var safnaðar- starfinu gríðarlega mikil lyftistöng allt frá byrjun þjónustu sinnar. Mætti hann á ný vera sá merkisberi starfsins sem áður var. Leggjum þetta málefni fyrir Drottinn í bæn og treystum því að hann muni sýna okkur þá leið sem ber að fara varð- andi þessi mál eins og við höfum notið leiðsagnar hans í fortíðinni. Eric Guðmundsson fyrir hana að afla sér menntunar eins oft varð raunin á þeim árum. Tiltölulega ung kynntist hún Gísla Gunnarssyni, ættuðum frá Hjaltastaðarþingá á Héraði og giftust þau 1. október 1936. Þau Gísli og Ólöf eignuðust þrjú börn. Elstur er Franz, þá Þórunn, en hún lést kornung, en yngstur er Agúst. Síðar á æfinni lágu leiðir þeirra Ólafar og Gísla í aðskildar áttir og slitu þau sambúð upp úr 1950. Árið 1955 kynntist Ólöf svo eftirlifandi eiginmanni sínum, Ragnari Eiríki Björnssyni, frá Grófarseli í Jökulsárhlíð. Þau giftust sama ár. í Eiríki átti Ólöf traustan félaga og vin en þau voru afar samrýmd. Þau Ólöf og Eiríkur eignuðust einn son, Gissur Björn, sem fæddist 1956. Eins og svo oft var tilfellið hjá láglauna alþýðufólki á Islandi framan af öldinni, voru kjör Ólafar oft hörð, jafnvel miskunnarlaus, fyrri hluta ævi hennar. En þetta megnaði ekki að slökkva neistann hið innra sem þráði hið fagra, hlýja og góða. Ólöf var sjálf einkar hlý og elskuleg persóna og hún naut þess fagra og að fegra umhverfi sitt. Einstakt yndi hafði hún af fallegri tónlist, einkum söng. Einlægni Ólafar og hreinleiki kom einnig fram í trúariðkun hennar en hún var alltaf mjög trúhneigð kona. Synir hennar minnast þess að hún hafi sótt samkomur hjá ýmsum söfnuðum sem ber þess vott að hún hafi verið leitandi hvað andleg efni varðar. Þessi trúaráhugi leiddi Ólöfu á samkomur Davids Lawson í Fríkirkjunni árið 1980. Hún sannfærðist um boðskapinn og ákvað að fylgja frelsara sínum. Hún tók skírn þá um vorið og var hún dyggur og trúr safnaðarmaður Aðventsafnaðarins upp frá því. Hún bar því vitni í dagfari sínu að hún átti persónulegt samfélag við Drottin sinn og meistara Jesú Krist. Hún var biblíufróð, glögg og skilningsrík og það var þeim dýrmæt reynsla sem kynntust þessari konu, þessu einlæga Guðs barni. Um nokkurt skeið hafði Ólöf fundið fyrir hjartaeinkennum og hún hafði legið á sjúkrahúsi um tveggja vikna skeið þegar hún fékk hægt andlát aðfaranótt fimmtudagsins 7. september s.l. Nú bíður hún upprisunnar þegar áskær frelasari hennar kallar hana fram úr gröfinni og býður henni, svo og öllum sem vænta kómu hans, inn til dýrðar sinnar. Trúsystkini hennar og söfnuðurinn kveður og vottar ástvinum samúð. Utförin fór fram frá Aðventkirkjunni í Reykjavík þann 15. september s.l. Undirritaður annaðist útförina. Blessuð sé minning hinnar látnu. Eric Guðmundsson SÖFNUN TIL HJÁLPAR FLATEYRINGUM Vegna þeirra hörmunga sem dundu yfir Flateyringa 26. október s.l. hefur söfnuðurinn leitast við að sýna Flat- eyringum hluttekningu og taka þátt í uppbyggingarstarfinu á Flateyri. Þátt- takan fólst fyrst af öllu í því að bæna- stund var haldin í Aðventkirkjunni að kvöldi dags þann 26. október. Einnig tóku u.þ.b. 20 manns af hálfu safnað- arins þátt í símavörslu söfnunarinnar „Samhugur í verki“ í húsnæði Stöðvar 2 með líkum hætti og fyrr á árinu þegar safnað var handa Súðvíkingum. Þar að auki hefur söfnuðurinn staðið fyrir fjársöfnun á sama hátt og eftir Súðavíkurslysið. Það er að segja að Systrafélögin Alfa stóð að fjársöfnun innanlands meðal safnaðarmeðlima þar sem söfnuðust um 150.000 kr. Hjálparstarf aðventista leitaði eftir aðstoð frá nágrannalöndum okkar og frá Stór-Evrópudeildinni. Sem við- brögð við þessu bárust framlög frá starfinu í Noregi, 50.000 norskar krónur, frá Finnlandi, 10.000 finnsk mörk, frá Alþjóða Líknarsjóði Stór- Evrópudeildarinnar, 2.500 dollarar og frá Alþjóðadeild ADRA 2.500 dollarar eða f allt um kr. 1.150 þúsund. Þettafé mun í fullu samráði við forsvarsmenn á Flateyri renna til byggingar nýs leik- skóla í þorpinu en sem kunnugt er varð gamla leikskólahúsnæðið snjó- flóðinu að bráð. Nýtt hús fyrir leik- skólann mun kosta um 20 milljónir og munu byggingarframkvæmdir hefjast fljótlega á nýja árinu. Aðventsöfnuðurinn á íslandi vill votta öllum Flateyringum dýpstu samúð vegna hörmunganna. □ AðventFréttir 5,1995 19

x

Aðventfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.