Aðventfréttir - 01.03.1999, Qupperneq 8
SÉRFRÆÐINGUR AÐVENTISTA KYNNIR HELSTU ÁHÆTTUÞÆTTI í
HEGÐUN UNGS
SanDiego, Kalifomíu, (J.S.A.
Dr. Gary Hopkins, sérfræðingur að-
ventista í hegðun æskufólks, kynnti ný-
verið yfirmönnum kirkjumála meginat-
riði rannsókna sinna í ræðu um málefni
táninga, svo sem notkun eiturefna og
ótímabær ástarsambönd.
Hopkins er í forsvari fyrir The Cent-
er for Adolescent Behaviour Research
(Miðstöð rannsókna um hegðun tán-
inga) og The Institute for the
Prevention of Addictions (Vísinda'
stofnun til að koma í veg fyrir vanabind'
ingu fíkniefnanotkunar) við Andrews
University, Michigan.
Hann talaði í San Diego, þann 21.
janúar s.l. um niðurstöðu rannsóknar,
sem sannar mikilvægi þátttöku fullorð-
inna í mótun ungmenna til að hindra
áhættusama iðju.
Hopkins tók fram að unglingar væru
viðkvæmari fyrir hópþrýstingi þegar þeir
væru ekki undir eftirliti á tímanum milli
kl. 3 - 6 e.h. en á nokkrum öðrum tíma
dagsins og bætti við að yfirleitt á þung-
un stúlkna sér stað á þessum tíma og
venjulega inni á heimilinu.
Niðurstaðan leiddi til rannsóknar á
því hvernig umhyggja foreldra og stuðn-
ingur skóla að viðbættum innri styrk
varð til þess að sumir táningar stóðu sig
mjög vel í daglegu lífi.
„Þrátt fyrir andstreymi og að vissir
áhættuþættir séu til staðar, þá þroska
þessir einstaklingar með sér hæfileika til
að bjarga sér og komast áfram í lífinu“,
sagði Hopkins. Þeir hafa sjálfsvirðingu í
hávegum, raunhæfa sjálfsstjóm og líta
björtum augum á framtíðina. Þeir reyna
af fremsta megni að þroska með sér já-
kvæð viðhorf til lífsins með hjálp trúar-
innar. Skynsamleg sjálfstjóm og dugnað-
ur eru líklegir hæfileikar til velgengni en
ósjálfbjarga einstaklingar verða oft fyrir
hverri rauninni eftir aðra.
„Lykilatriðið er að tengjast að
minnsta kosti einum fullorðnum og að
vera í nánu sambandi við hann. Afar og
ömmur, fjarskyldir fjölskyldumeðlimir
og félagsskapur geta komið í stað þess,
sem er fjarverandi að heiman“, fullyrti
Hopkins.
Mikilvægast er, að sjálfstjórn og
dugnaður séu studd af tengdum framfær-
endum. I rannsókn okkar voru ung-
menni, sem stóðu sig vel, í tengslum við
að minnsta kosti einn einstakling á lífs-
leiðinni, sem tók við þeim skilyrðislaust,
án tillits til eðlislægrar sérvisku, ytra út'
lits eða gáfnafars.
Niðurstaðan er studd af The
National Longitudinal Study on Ado-
lescent Health (Rannsókn á heilsu ung-
linga), sagði Hopkins, sem lauk máli
sínu á þennan hátt: „Án tillits til fjölda
fullorðinna á heimilinu, efnahags fjöl-
skyldna, án tillits til kynþáttar og
menningar, án tillits til alls þessa eru
BRÉF FRÁ VINI
Kæri vinur!
Hvernig hefurðu það? Ég varð að
senda þér þetta bréf til að segja þér hver-
su vænt mér þætti um þig. Ég sá þig í
gær þar sem þú varst að tala við vin. Ég
beið allan daginn og vonaði að þú
myndir tala við mig líka. Ég gaf þér sól-
arlagið til að ljúka deginum og þægileg-
an svala til að þú gætir hvílt þig. Síðan
beið ég, en þú komst aldrei. Það særði
mig - en ég elska þig ennþá vegna þess
að ég er vinur þinn. Ég sá þig sofandi
síðustu nótt og langaði að snerta auga-
brýr þínar svo ég beindi tunglskininu á
andlit þitt. Aftur beið ég eftir að þú tal-
aðir við mig, ég sem hafði svo margar
gjafir að gefa þér. Þú vaknaðir og flýttir
þér af stað í vinnuna. Augu mín flutu í
tárum. Ef þú myndir aðeins hlusta á mig.
Ég elska þig. Ég reyni að sannfæra þig
með heiðbláum himni og fagurgrænu
grasi. Ég hvísla því á meðal trjánna og
ilman blómanna. Ég kalla á þig á meðal
klettanna og lækjanna sem þar renna.
Ég læt fuglana syngja ástarsöngva til
þín. Ég umvef þig hlýju sólskini og ilm-
an loftsins. Ást mín til þín er dýpri en
úthöfin og stærri en stærsta hjarta.
Spurðu mig. Talaðu við mig. Gleymdu
mér ekki. Ég hef svo margt sameiginlegt
með þér. Ég ætla ekki að ónáða þig frek-
ar. Þetta er þín ákvörðun. Ég hef valið
þig og ég mun bíða - bíða vegna þess að
ég elska þig.
Pinn vinur, Jesús.
FÓLKS
böm sem finnst þau tengd foreldrum
sínum, varin fyrir margvíslegum hættum
þ.á.m. miklu tilfinningalegu álagi, sjálfs-
vígshugsunum og tilraunum, reykingum,
áfengisneyslu, eiturlyfjaneyslu, ofbeldiS'
hneigð og ótímabæru kynlífi."
Aðventkirkjan hefur stöðugt stuðlað
að sterkum fjölskylduböndum og bent á
mikilvægi samskipta kynslóða á milli.
Hvort heldur er um að ræða guðsþjón-
ustur safnaðarins, æskulýðs- og skáta-
starf eða skólastarfið, þá hvetur kirkjan
til markvissrar sjálfstjómar og að reyna
að komast hjá hættulegri breytni sem
leiðir til eyðileggingar á lífi æskulýðsins.
Pýtt úr Adventist Revier.
FRÆKORNIÐ
BÓKAFORLAG AÐVENTISTA
Frækornið - bókaforlag
er opið mánudaga til fimmtudaga
frá kl. 8-16.
A föstudögum er opið frá kl.
8-14.
Síminn er 588 7100
Fax 588 7808
Við sendum í póstkröfu
ef óskað er.
8
AðventFréttir