Aðventfréttir - 01.12.2010, Síða 2
Ritstjórnargrein
Jólaköfunin
„Jósef, sonur Dovíðs, óttast þú ekki oð toka til þín
Marui, heitkonu þíno. Barnið, sem hún gengur með,
er af heilögum anda. Hún mun son ala og hann
skaltu láta heita Jesú því að hann mun frelsa lýð sinn
frá syndum hans. “ Allt varð þetta til þess að rœtast
skyldi það sem Drottinn lét spámanninn boða: „Sjá,
yngismœr mun þunguð verða og fœða son og lœtur
hann heita Immanúel, “ það þýðir: Guð með oss.
Þegar Jósef vaknaði gerði hann eins og engill
Drottins hafði boðið honum og tók konu sína til sín.
Hann kenndi hennar ekki fyrr en hún hafði alið son.
Og hann gafhonum nafnið JESÚS“ (Mt 1.20-23).
Matt Woodley segir frá því að sjö ára drengur, Martin,
datt í Prairie ána í Kanada þegar hann var að leik við
bakka árinnar. Þó nokkur hópur fólks var vitni að þessu
og sá drenginn berjast um í vatninu en hverfa svo. Hvers
vegna fór enginn ofan í til að bjarga drengnum? Aðeins
ofar var skolpdælustöð sem skilaði mikilli mengun í
ána. Hún var því stórmenguð, hættuleg heilsu fólks.
Þannig að enginn gat fengið sig til þess að bjarga Martin
Turgeon.
Stundum upplifum við Guðs sem einn
áhorfendanna við Prairie ána. Að hann
segi við okkur: „Eg mun ekki að kafa
ofan í óþverrann í þínu lífi. Ég er
heilagur Guð. Þú verður fyrst að þrífa
þig. Þá mun ég taka við þér, faðma þig
að mér, elska þig.” En í ritningarversinu
hér að ofan mætum við Guði sem var reiðubúinn - er
reiðubúinn - að taka fullan þátt í synd og sorg
mannlegrar tilveru, Guði sem segir: “Ég kem og bjarga
þér upp úr ánni áður en þú hefur þvegið af þér
óhreinindin.”
Við læaim tvennt þegar við skoðum þessa stórkostlegu
jólasögu: Fyrst, að í Jesú stendur Guð með okkur í synd
okkar, skömm og sorg. Hann stingur sér ofan í, ef svo má
að orði komast, og setur svo upp algerlega nýjan staðal
fyrir líf okkar. í öðru lagi, við erum líka kölluð til þess að
standa með og vera þátttakendur í synd og sorg þeirra sem
við umgöngumst. Þetta endurskilgreinir á róttækan hátt
eðli samfélags og kjama þess að vera “góður
einstaklingur”.
Taktu eftir samsömun Guðs við mannkynið í Mt 1.1-17.
Þessi vers geta virst þurr upptalning. Bara listi af nöfnum.
En í þeim er að finna merkilega guðfræði og góða
sagnahefð. Hér höfum við sönnun þess að Jesús er
afkomandi Davíðs, hins mesta konungs ísraels. Þessi
tenging er mikilvæg því Messías Gamla testamentisins var
oft kallaður sonur Davíðs. Þessi ættartala skýrir einnig eðli
messíasarhlutverks þessa sonar Davíðs, að hann er
reiðbúinn að verða þátttakandi í þeim kröggum sem við
höfum komið okkur í. Hann mun ekki sitja á árbakkanum
og horfa á okkur berjast um. Heldur kasta sér út í og bjarga
okkur. Taktu eftir því t.d. að fjórir þeirra
einstaklinga sem nefndir eru í ættartré Jesú
eru útlendar konur sem höfðu vafasaman
bakgrunn. Kvenna var venjulega ekki getið í
ættartölum - hvað þá þeirra sem lifðu
ósiðsamlegu lífi. Þarna er Matteus að segja
okkur að Messías sér reiðbúinn að verða
þátttakandi í tilveru alls heimsins.
Taktu líka eftir nöfnum Messíasar: „Jesús“ og
„Immanúel“. 21. versið segir okkur að þessi Messías sé
frábrugðin þeim sem Gyðingar væntu. Hann mun „frelsa
lýð sinn frá syndum þeirra“. Það vekur undrun að Guð vilji
kalla okkur sinn lýð, sitt fólk. Hvílík upphefð! Guð vill
eigna sér okkur. En taktu líka eftir uggvænlegu hlið
versins: Guð óskar þess að frelsa fólk sitt frá syndum þess.
AÐVENTFRÉTTIR Sérstakar þakkir TIL:
73. ÁRG. - 9.TBL. 2010 Sandra Mar Huldudóttir
Ú TGEFANDI
KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA Á ÍSLANDI FYRIR EFNI í BLAÐIÐ.
S u ð u r h 1 i ð 3 6, 105 Reykja vik HARPA Theodórsdótt i r
S ími: 5 8 8-7800 Kristine Andersen
sda@adventistar.is Manfred Lemke
R ITSTJÓRI & SÓLVEIG HJÖRDÍS JÓNSDÓTTIR
Ábyrgðarmaður: Steinunn Theódórsdóttir
Eric Guðmundsson Unnur Halldórsdóttir
Uppsetning og vinnsla: Þóra Jónsdóttir
Jóna B. Þórudóttir
AÐVENTFRÉTTIR • DESEMBER 2010