Aðventfréttir - 01.12.2010, Blaðsíða 5

Aðventfréttir - 01.12.2010, Blaðsíða 5
í sínu lífi. „Hvort sem þér því etið eða drekkið eða hvað sem þér gjörið, þá gjörið það allt Guði til dýrðar“ (lKor 10.31). Hluti af því er að hjálpa öðrum að kynnast þeim Guði sem við þekkjum. Jafnvægi er þriðja atriðið sem leiðbeinir okkur í því hvernig við nýtum tíma okkar. Ef við einblínum eingöngu á einn þátt lífs okkar þá mun sá þáttur stjórna öllum okkar tíma. Guð vill að við lifum í jafnvægi sem hjálpar okkur að vaxa í sambandi okkar við hann og við ástvini okkar og vini og aðra sem í kringum okkur eru. Gott jafnvægi næst með aukinni samþættingu Guðs sem Drottinn í öllum þáttum lífs okkar. Getum við treyst Guði fyrir því að leiðbeina okkur í öllum daglegu smáatriðum lífs okkar? Persónulegur vöxtur og áætlanir Fjórða ráðið sem getur hjálpað okkur að stjórna tíma okkar er að búa til áætlun yfir þinn persónulegan vöxt. Guð hefur skapað okkur með næstum því takmarkalausa getu til að vaxa. Ef við aðeins eyðum einni klukkustund á dag í að vaxa á einhvern hátt, þá höfum við meira en 300 stundir á ári fyrir persónulegan vöxt. Möguleikarnir eru sannarlega miklir. Fimmta ráðið er að búa til tímadagbók yfir eina viku u.þ.b. einu sinni á ári. Skráðu hjá þér alla þína starfsemi á 15 mín. fresti. Leggðu saman þann tíma sem þú eyðir í mismunandi flokka á hverjum degi, og síðan fyrir heila viku. Þar næst skaltu greina hvernig þú eyðir tíma þínum. Berðu tímann þinn saman við gildi þín og forgang. Taktu ákvarðanir um þær breytingar sem þú vilt gera varðandi það hvernig þú eyðir tíma þínum. í sjötta lagi er gott að hafa áætlun yfir það hvernig þú nýtir auka tíma sem þú færð yfir daginn. Þú getur t.d. verið með bók á þér til að grípa í ef þú hefur auka 2-5 mín (t.d. ef þú þarft að bíða einhvers staðar o.s.frv.). Eða þá geturðu haft á þér litla skrifblokk, lítil auð kort, eða rafræna dagbók og notað þessar auka 5 mínútur í að skrifa niður hugmyndir eða skrá glósur. Þú getur einnig notað slíkar aukamínútur í fyrirbænir. Þú getur beðið fyrir fjölskyldumeðlimum þínum, vinum, eða þeim sem þú hefur á bænalista, og lyft hverjum og einum þeirra til Guðs í bæn. í sjöunda lagi er gott að skipuleggja fyrirfram það sem þú ætlar að gera hvem dag. Mér finnst tvær aðferðir skila bestum árangri í þessu. Annað hvort að skipuleggja daginn kvöldið áður, eða að skipuleggja daginn snemma morguns sama dag. Það getur einnig reynst vel að setja sér ákveðin markmið fyrir daginn. í áttunda lagi er gott að búta niður tímann þinn. Bútaðu tímann þinn í 20-40 mínútuhluta og skipuleggðu þannig daginn. Hver hluti getur innifalið svipuð smærri verkefni eða nokkra sameiginlega búta fyrir eitt stórt verkefni. Taktu þér pásu Taktu þér pásu á 25-40 mínútna fresti. Það er níunda ráðið. Pásan getur falist í því að hvíla þig á því sem þú ert að gera, eða með því að skipta um verkefni. Það getur reynst vel að skipta um vinnuhraða á huga eða líkama. Flestum finnst þetta hjálpa huganum að viðhalda einbeitingu og frískleika. Þetta hjálpar einnig við að viðhalda hærra orkustigi og kemur í veg fyrir leiði. Tíunda ráðið er að taka Guð með þér inn í sérhvert verkefni. Æfðu þig í nærveru hans með því að opna huga þinn fyrir þeim raunveruleika að hann er alltaf með þér (Mt 28.20). Þú getur gert þetta með því að biðja hann á meðvitandi hátt að vera með þér í hinum ýmsu verkefnum og verkum sem þú þarft að vinna. Einnig er hjálplegt að sjá fyrir þér Jesú þér við hlið í öllum þínum verkum. ímyndaðu þér hvemig það væri ef þú gætir séð Jesú gangandi eða sitjandi við hlið þér í öllum stundum dags þíns. Tíminn er dýrmætur. Sá tími sem eyðist er aldrei hægt að endurheimta. Við getum aðeins haldið áfram, en það getum við gert með ásetningi. Við getum beðið Guð um að hjálpa okkur að ná valdi á tíma okkar með því að láta hverja stund í hans hendur og biðja hann um að umbreyta öllum okkar verkum með návist sinni. Þannig verður tíminn að lífstfl sem hefur tilbeiðslu að leiðarljósi þar sem við gefum okkur Guði fullkomlega (Rm 12.1-2) Tekið úr Dynamic Steward, tbl. 5 nr. 1 þýtt af Söndru Mar Huldudóttur. Hvaö verður um tímann þinn? Gefur þú Guði tíma í þínu lífi? Notar þú þau ráð sem er að finna í þessari grein til að gefa Guði meiri tíma í lífi þínu. Guð vill gefa okkur líf í fullri gnægð, en gefur þú honum tíma til að veita þér það? AÐVENTFRÉTTl R ♦ DESEMBER 2010 |

x

Aðventfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.