Aðventfréttir - 01.12.2010, Blaðsíða 6
Heilsuhornið
LOFT
Maðurinn getur lifað nokkrar
vikur án fæðu, nokkra daga án
vatns, en aðeins fáeinar mínútur
án lofts. Án lofts getur viðkom-
andi orðið fyrir varanlegum
h e i 1 as k e m m d u m innan
fimm mínútna.
Hví er loft svo nauðsynlegt?
Loftið sem við öndum að okkur
inniheldur súrefni. Rauðu blóð-
kornin flytja súrefnið frá lung-
unum til allra frumna líkamans.
Síðan flytja þau koltvísýringinn
aftur til lungnanna. Þegar við
öndum frá okkur losar líkaminn
sig við koltvísýringinn auk súr-
efnissnauða loftsins.
Slæm loftræsting í herbergjum
getur valdið höfuðverk, svefn-
drunga og erfiðleikum við að
einbeita sér. Ástæðan? Þegar
lofti er andað aftur og aftur
minnkar súrefnismagn þess en
koltvísýringur og önnur úrgangs-
efni aukast. Þungt loft og slæmar
öndunarvenjur stuðla að þung-
lyndi, pirringi, úrvindan
og síþreytu.
Þegar þú hreyfir þig fara 98 lítrar
af lofti inn og út úr lungunum á
mínútu - en aðeins um 4 lítrar
við hvíld. Hreyfingin eykur
streymi súrefnisríks blóðs til
allra líkamshluta. Þú munt hafa
meiri orku og njóta
meiri vellíðunar.
Lausnin
1. Opnaðu glugg-
ana og hleyptu
fríska loftinu inn!
Sofðu við opinn
glugga ef mögu-
legt er.
2. Hreyfðu þig úti í fríska loft-
inu. Það mun styrkja öndunar-
vöðvana og auka lungnaþolið.
3. Vendu þig á rétta líkamsstöðu.
Sittu bein(n) í baki með axlir
aftur á við. Þú munt geta
andað dýpra.
4. Einbeittu þér að því að anda
djúpt. Staldraðu við nokkrum
sinnum á dag og dragðu and-
ann nokkrum sinnum djúpt
og hægt.
5. Hafðu einhverjar
pottaplöntur inni hjá þér.
Þær fjarlægja mikið af
mengunarefnum, þrífast
á koltvísýringi og skila
súrefni út í loftið í stað-
inn.
Eitrað loft
Einn svæsnasti óvinur góðrar
öndunar er tóbak. Reykingar
stífla og erta öndunargöngin.
Nikótínið í reyknum þrengir hár-
æðarnar; kolsýringurinn
(kolmónoxíð) snarminnkar getu
rauðu blóðkornanna til að flytja
súrefni. Þessi tvö efni í samein-
ingu skerða þol og
stuðla að þrengingu og
kölkun slagæðanna.
Margir reykingamenn gera sér
ekki grein fyrir þeirri hættu sem
tóbaksreykurinn setur aðra við-
stadda í. Óbeinar reykingar geta
verið jafn banvænar og beinar
reykingar eru reykingarmann-
inum. í sérstakri áhættu eru böm
reykingamanna sem neyðast til
að anda að sér þessu lífshættu-
lega lofti í langan tíma.
Bataferlið í lungunum hefst nær
samstundis og fólk hættir að
reykja. Það besta sem þú getur
gert líkamanum er að hætta að
reykja og anda léttar.
Fengið af www.healthexpobanners.com
með leyfi.
« AÐVENTFRÉTTIR • DESEMBER 2010