Heimilisritið - 01.01.1954, Side 62

Heimilisritið - 01.01.1954, Side 62
hún hafði hingaÖ komið ? Það vseri bezt að láta þau skoða í töskuna svo því væri lokiS. Hún hafði í svipinn gleymt skartgrip- unum, sem hún hafði tekið með sér, daginn sem hún flúði frá Perrier, og sem nú voru í einu horni töskunnar. Það leið ekki á löngu þangaÖ til Ralph hafði fundið þá. Hann dró sigri hrósandi upp demants- armband, langa perlufesti, skraut- legt brjóstmen úr safírum og dem- öntum, ásamt dýrmætum eyrna- lokkum. Hann glotti aS furÖu- svipnum á móður sinrii, þegar hann sýndi henni dýrgripina. ,,Hvað sagði ég, mamma!" hrópaði hann. ,,HvaSa heiðvirð vinnukona hefur svona dýrgripi í fórum sínum ? Því þetta eru eng- ar eftirlíkingar, það get ég á- byrgst! Stúlkan er augljóslega þjófur, og ég þori að veÖja, aS lögreglan verður glöS, þegar hún fær hendur í hári þessa kvendis. Þeir vita áreiÖanlega, hvaðan gripirnir eru fengnir. Svona dýr- gripa er ekki saknað, án þess að lögregan fái vitneskju um hvarf þeirra.“ Hann sneri sér að Katrínu með ógeðfelldu glotti. ,,Hvers vegna hafiÖ þér ekki komið þeim í peninga, vinkona ? Var það of hættulegt fyrst um sinn ? Var skynsamlegra að bíða með að selja þá, þangað til far- ið væri að firnast yfir hvarf þeirra?“ ,,£g á þessa skartgripi,“ svar- aði Katrín kuldalega. ,,LátiS þér þá aftur í töskuna mína undir eins. Annars mun ég kæra t/Sur fyrir þjófnað. Þér finniÖ áreiðan- lega ekkert frá yÖur í töskunni minni.“ „Fundust yður skartgripir móð- ur minnar ekki nógu verðmætir til þess að bæta þeim í safnið ?“ spurði hann með uppgerÖarglotti. ,,ÞaS eru þeir sannarlega ekki!“ sagði Katrín æf og hafði skyndilega naumast stjórn á sér. ^ ,,Eg hef talsvert vit á gimstein- um, og flestir skartgripir móður yðar eru eftirlíkingar.“ ,,0—ho!“ hneggjaSi hann. ,,Svo að það er þess vegna, sem þér eruS að fara ? ÞaS borgar sig ekki að vera hérna lengur, auð- vitað, fyrst svo er.“ ,,Ég átti ekki við þaÖ,“ sagði Katrín æst. ,,Ekki það ?“ Hann sneri sér að móður sinni. ,,HvaS um það, þá held ég að hún ætti að gefa lögreglunni lítilsháttar skýringar, finnst þér það ekki, mamma ?“ ,,Eg er sammála þér, Ralph,“ sagði frú Horton ákveðin. ,,Þú ættir að síma strax til lögreglunn- • « ar. En áður en Ralph hafði tekið 60 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.