Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.11.2012, Side 11

Fréttatíminn - 16.11.2012, Side 11
E N N E M M / S ÍA / N M 5 2 2 0 2 Fast mánaðargjald fyrir aðgang að IP símkerfi Símavist hentar flestum gerðum fyrirtækja, óháð stærð og starfsemi. Með Símavist býðst fyrirtækjum að leigja IP símkerfi gegn föstu mánaðargjaldi sem ræðst af fjölda starfsmanna sem nota kerfið. Símkerfið er hýst í vélasölum Símans og fyrirtæki þurfa ekki að fjárfesta í vélbúnaði eða stýrikerfum. Hafðu samband við Fyrirtækjaráðgjöf í síma 800 4000 og sérfræðingar okkar finna hagkvæmustu lausnina fyrir þitt fyrirtæki. siminn.is · 8004000@siminn.is Vertu með símkerfið í öruggum höndum hjá Símanum Fyrirtæki Ef tekin eru nokkur meðaltöl verð bólgu síðustu 40 ára kemur í ljós að miðað við verðbólgu síðustu 40 ár myndi 20 milljón króna lán verða að 8 milljörðum á 40 árum ef næstu fjórir áratugir yrðu í líkingu við þá síðustu fjóra. Skv. reiknivél Íbúðalánasjóðs. 5,6% 175.996.149 kr. (verðbólgumeðaltal síðustu 10 ára) 4,6% 124.282.579 kr. (verðbólgumeðaltal síðustu 20 ára) 13,2% 1.284.444.961 kr. (verðbólgumeðaltal síðustu 30 ára) 19,6% 8.028.921.902 kr. (verðbólgumeðaltal síðustu 40 ára) Auglýsing tímbabili og stundum minna. En heilt á litið mjög svipað. Þess vegna höfum við sagt fólki að besta við- miðunin sé að taka bara lánið eins og það stendur í upphafi og reikna greiðslubyrðina út frá því. Hversu hátt hlutfall það er. Og það verður svona að jafnaði sennilega nokkuð jafnt hlutfall. Á móti kemur að það getur komið að tímabilum þar sem þessi greiðslubyrði fer verulega upp fyrir þetta hlutfall en það getur líka farið niður fyrir það,“ segir Sigurður. Við erum kerfið Aðspurð um hvort þau hafi farið fram úr sér í góðærinu hlær Theódór og segir að þau hafi jú keypt flatskjá 2005. Einn. Þegar gamla sjónvarpið hrundi og sá flatskjár virkar fínt. Svo eiga þau Patrol, árgerð 2002, með Lýsingu. Hjá Theódór og Helgu er allt uppi á borðum og þau hafa ekk- ert að fela. Þau eru ólíklegar alþýðu- hetjur en vilja samt ekki að málið fjalli um þau endilega. „Okkar mál er prófmál og það er gott,“ segir Helga og bendir á að af- leiðingarnar af hruninu sjáist ekki allar því við séum enn í hruninu. Hún vill tryggja afkomendum sínum gott og mannsæmandi líf. Þið standið samt ein má móti kerfinu. Haldiði að þið munið sigra kerfið? „Getur kerfið staðið á móti fólk- inu? Ef við stöndum saman? Hvað er kerfið? Kerfið er við,“ segir Helga og endurtekur: „Við erum kerfið. Kerfið er ekki eitthvert bákn sem er utan við okkur. Við þurfum að breyta þessu kerfi saman. Kerfið er ekki bara eitthvert apparat. Þetta er ekki dauður hlutur úti í bæ. Þótt okk- ar staða virðist minna á Davíð gegn Golíat. Í augnablikinu.“ Þau hjónin eru það sem hægt væri að kalla salt jarðar. Helga er til dæm- is öryrki en heldur samt áfram að vinna. „Hún getur ekki vaskað upp,“ segir Theódór og bætir við: „En ég sé þá bara um það.“ Þau eru bæði bjartsýn á að réttlætið nái fram að ganga. Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is Theódór og Helga segjast ekki vera hetjur og segjast hafa áhyggjur af komandi kyn- slóðum. Ljósmynd/Hari fréttir 11 Helgin 16.-18. nóvember 2012

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.