Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.11.2012, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 16.11.2012, Blaðsíða 18
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjórar: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is og Mikael Torfason mikaeltorfason@frettatiminn.is. Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Útgáfustjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is . Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. V Veðurfræðingar gegna þýðingarmiklu hlutverki og ábyrgð þeirra er mikil. Í norð- lægu landi þar sem allra veðra er von skipta veðurspár miklu, hvort heldur er til sjós eða lands. Þeir sem mest eiga undir veðurspám, bændur, sjómenn og ferðamenn sem leggja á fjallvegi, auk annarra, hlusta án efa á veður- fréttir sem sendar eru reglulega út í útvarpi, eða leita á vef Veðurstofunnar. Almennasta áhorfið er hins vegar á daglegar veðurfregn- ir í kjölfar kvöldfréttatíma Ríkissjónvarpsins. Þetta almenna áhorf, þegar samtímis næst til tugþús- unda manna, nýtti Haraldur Ólafsson veðurfræðingur sér í liðinni viku. Þar skaut hann föstum skotum, þótt með óbeinum hætti væri, að Ögmundi Jónassyni innanrík- isráðherra. Ráðherrann hafði sagt á Alþingi, í umræðum afleiðingar veðurofsans á Norðurlandi í september, að enginn hefði spáð fyrir um illviðrið og engar viðvaranir gefnar. Haraldur taldi að með þessu hefði innanríkisráðherra vegið að Veðurstofunni og birti af því tilefni spákort frá 8. september sem gilti fyrir 10. september. Þar mátti sjá að gert hafði verið ráð fyrir 25 metra vindhraða á sekúndu. Það eru tíu gömul vindstig og í tíu vindstigum má búast við að tré rifni upp með rótum. Jafnframt benti veðurfræðingur- inn á að spáð hefði verið snjókomu. Eðlilegt er að Veðurstofan, og eftir at- vikum einstakir veðurfræðingar, bregðist við orðum innanríkisráðherra. Ráðherrann viðurkenndi enda í yfirlýsingu að fullmikið hefði verið sagt að enginn hefði spáð þessu fyrir því vissulega hefði Veðurstofan spáð slæmu veðri og það fagmannlega. Um- hverfis- og auðlindaráðuneytið, en undir það ráðuneyti heyrir Veðurstofa Íslands, áréttaði einnig að Veðurstofa Íslands hefði ítrekað spáð stormi og snjókomu á Norðurlandi í að- draganda þess óveðurs sem gekk yfir lands- hlutann 9.-11 september. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur nýtti hins vegar ekki réttan vettvang til réttmætra andmæla sinna, jafnvel þótt óbein væru. Hlutverk Haraldar sem veðurspámanns í Ríkissjónvarpinu, þar sem hann hefur staðið sig með ágætum undanfarin ár, er að spá fyrir um veður. Honum er treyst fyrir því hlutverki, annars vegar af hálfu vinnu- veitanda síns, Veðurstofu Íslands, og hins vegar Ríkissjónvarpinu. Hann má ekki falla í þá freistni að nýta sér þennan áhrifamikla vettvang til að berja á ráðherra, jafnvel þótt sá sami ráðherra liggi vel við höggi, eða að koma öðrum skoðunum sínum á framfæri þar. Haraldur Ólafsson gat komið áliti sínu á ummælum Ögmundar Jónassonar fram á réttum vettvangi, til dæmis í blaðagrein eða fréttaviðtali. Það gerði Theodór Hervarsson, framkvæmdastjóri eftirlits- og spádeildar Veðurstofunnar, raunar í kvöldfréttatíma Ríkisútvarpsins. Í þessu ljósi er afstaða Óðins Jónssonar, fréttastjóra Ríkisútvarpsins, umhugsunar- verð. Fréttastjórinn hefur, eins og fram kom í Fréttatímanum síðastliðinn föstudag, „full- an skilning á því að Haraldur Ólafsson hafi notað þennan vettvang til að verja sig“. Síðar bætti fréttastjórinn við að þetta hefði verið „nokkuð snyrtilega gert“. Hann var síðar spurður um það hvort æskilegt hafi verið að nota veðurfréttatímann til að koma persónu- legum skilaboðum á framfæri og svaraði því til að tilefnið hafi verið ærið, Haraldur hafi bara verið að bera hönd fyrir höfuð veður- fræðinga „og besti vettvangurinn til þess er líklega veðurfréttatíminn.“ Þessi afstaða fréttastjórans er röng. Veð- urfréttatími í Ríkissjónvarpinu er ekki vett- vangur fyrir einstaka veðurfræðinga til að koma skoðunum sínum á framfæri eða svara einhverju sem sagt hefur verið á öðrum vett- vangi um Veðurstofuna, starf hennar eða starfsmenn. Hvenær verður tilefnið ærið næst? Hve- nær getur veðurfræðingur, í skjóli Ríkis- sjónvarpsins, sent ráðherra eða öðrum sem honum mislíkar við „snyrtilegt vink“, eins og fréttastjórinn kallaði viðbrögð fræðimanns- ins í réttlætingu sinni? Útvarpsstjóri hlýtur að minna þá sem ábyrgð bera á að halda aftur af sér – og sama gildir um veðurstofustjóra. „Snyrtilegt vink frá fræðimanni“ Réttmætar athugasemdir – rangur vettvangur Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is „Það er stefna bæjarins að batn- andi hagur bæjarsjóðs berist til fjölskyldna,“ segir Ásgerður Hall- dórsdóttir, bæjarstjóri Seltjarnar- ness. Hún er maður vikunnar að þessu sinni. Seltjarnarnesbær mun koma til með að lækka útsvarspró- sentu sína á næstu þremur árum. Rekstur bæjarsjóðsins hefur skilað afgangi og mun bæjarstjórnin því skila þeim afgangi beint til íbúa. Einnig stendur til að hækka tóm- stundastyrki. „Við höfum fundið það á foreldrum að styrkirnir skipta máli.“ Seltjarnarnes var fyrsta bæjarfélagið sem bauð upp á slíka styrki, „Við köllum þá hvatastyrki. Hér á Seltjarnarnesi höfum við frábæran tónlistarskóla og gott íþróttastarf. Svo þetta kemur börnunum okkar bara til góða.“ MaðuR vikunnaR Lækkar útsvarsprósentu á Seltjarnarnesi er útgefandi American Express® samkvæmt leyfi frá American Express American Express Valid Thru Member Since American Express Valid Thru Member Since F ÍT O N / S ÍA Jólapottur American Express® Þú gætir unnið ferð til USA og 100.000 Vildarpunkta! Þú gætir unnið glæsilega vinninga ef þú notar Icelandair American Express til að versla fyrir jólin. Allir meðlimir sem nota kortið fyrir 5.000 kr. eða meira fyrir 15. desember fara í jólapottinn og því oftar sem þú notar kortið, því meiri möguleikar á vinningi! Sex heppnir meðlimir verða dregnir úr jólapottinum • 1x Flug fyrir tvo til Bandaríkjanna með Icelandair og 100.000 Vildarpunktar • 1x Flug fyrir tvo með Flugfélagi Íslands + gisting á Icelandair hótels í eina nótt. • 2x Yndislegt steinanudd fyrir tvo að verðmæti 30.000 kr. • 2x Gjafabréf á veglega máltíð að verðmæti 25.000 kr. American Express er skrásett vörumerki American Express.Kynntu þér málið nánar á www.americanexpress.is Á disknum er súrdeigsbrauð, hráskinka, camembert ostur, fíkjur, amerískar pönnukökur og hágæða hlynsíróp, sætkartöflusalat með geitaosti og sólkjarnafræjum, bakað egg, grísk jógúrt með heimalöguðu múslí, íslenskt grænmeti og ávextir. BRUNCH-DISKUR Á NAUTHÓL Í BOÐI Á SUNNUDÖGUM FRÁ KL 11.00 – 15.00 www.nautholl.is www.facebook.com/nautholl nautholl@nautholl.is tel.: 599 6660 18 viðhorf Helgin 16.-18. nóvember 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.