Fréttatíminn - 16.11.2012, Blaðsíða 14
Jólaævintýramatseðill 2012
með piparrótarfrauði og rauðrófumauki
Léttsteiktur hörpudiskur
með sætumkartöflum, mangómauki og
rauðvínssoði
Kastaníuhnetufyllt kalkúnabringa
Val á milli 3 aðalrétta:
kremuð með reyktum humri
Vatnakarsa- og blaðlauks súpa
4 rétta:
með beikon kartöflum,
seljurótarmauki og jarðsveppaolíu
Lambafilet Wellington
með fíkjum, eplum og rauðkáli
Andabringur
er eftirréttur með ís og ítölskum
marengs með Grand-Marnier
sæteggjaköku, flamberaður með
koníaki eða rommi
Bakaður Alaska
Verð 8.990.- kr.
RESTAURANT
Aðalstræti 16 | 101 Reykjavík | Sími 514 6060 | fjalakotturinn@fjalakotturinn.is | www.fjalakotturinn.is
Þ olinmæðin er búin,“ segir Tanya Pollock tónlistar-kona. Hún hefur um nokkurt skeið staðið í deilum við Reykjavíkurborg vegna fyrirhugaðra fram-
kvæmda á Hljómalindarreit, nánar til tekið við Hjartagarð-
inn. Forsaga málsins er sú að Tanya, ásamt litlum hópi
fólks, fékk fjárstyrk frá borginni til þess að byggja upp
svæðið. Það sem hópurinn vildi sýna fram á var að hægt
væri að taka samfélagslega ábyrgð á útliti og frágangi í
miðborginni og að borgarar gætu hannað rými eftir sínum
eigin þörfum. Reiturinn hafði verið í miklum ólestri í nokk-
ur ár, eða eftir að hús sem þar stóðu voru rifin fyrir hrun.
Í sumar var garðurinn í miklum blóma og fullur af mann-
lífi jafnt dag sem nótt. „Það vill því miður oft verða svo
að hagsmunum borgaranna er vikið til hliðar fyrir hags-
muni fjársterkra einkaaðila,“ segir Tanya og bætir við:
„Ákveðnir aðilar innan borgarinnar, sem ég kýs að kalla
Voldemort, vegna þess hvernig þeir hugsa, hafa haldið því
fram opinberlega að þetta skipulag hafi verið unnið í sam-
vinnu við fólkið. Það er lygi, enginn hefur fengið að sitja
þessa baktjaldafundi milli bankans og borgarinnar.“ Hún
segir að menningarlegt stórslys sé í uppsiglingu og einnig
komi það til með að skaða ímynd borgarinnar út fyrir land-
steinana.
„Ég hef verið í viðtali eftir viðtali við erlendra fjölmiðla,
en allir eru mjög áhugasamir um framtíð garðsins. Hingað
kom fjöldinn allur af ferðamönnum í sumar sem að varð
fyrir vitundarvakningu um að almenningur gæti raunveru-
lega haft eitthvað að segja með hönnun almenningssvæða.
Ég veit um mörg dæmi þess að einstaklingar séu farnir að
kalla eftir slíku í heimalandi sínu.“ Hún gefur ekki mikið
fyrir tillögurnar nýsamþykktu en gert er ráð fyrir tjaldi
sem umlykja mun gamla Sirkús fyrir tónleikahald. „Það
mun þjóna ágætlega sem minnisvarði um eitthvað menn-
ingartengt sem var rifið burt vegna græðgi. Fyrst Sirkús
svo Hjartað.“ Að lokum segist hún hvetja fólk til þess að
rísa upp og mótmæla. Hver með sínu nefi.
María Lilja Þrastardóttir
marialilja@frettatiminn.is
MótMælir breytinguM á Hjartagarði
Hagsmunum borgaranna vikið til hliðar
Í nýsamþykktu deiliskipulagi borgarinnar um Hljómalindarreit er ekki gert ráð fyrir Hjartagarðinum í nú-
verandi mynd. Þessu mótmælir hópur fólks, sem undanfarið ár hefur byggt upp garðinn og séð um viðhald
hans. „Menningarlegt stórslys nái breytingar fram að ganga,“ segir forsprakki hópsins, Tanya Pollock.
Tanya Pollock og Tómas Þórarinn eru á móti
fyrirhuguðum breytingum á Hjartagarðinum
14 fréttir Helgin 16.-18. nóvember 2012