SÍB-blaðið - 01.01.1996, Page 1

SÍB-blaðið - 01.01.1996, Page 1
SIB -blaðið i.tbl. JAN. 1996 1. árg. MÁLGAGN BANKASTARFSMANNA Vesturbæjarútibú Búnaöarbankans, þar sem ránið var framið. Fyrsta vopnaða bankaránið: Þau horfðu inn í byssuhlaupið Kaflaskil hafa orðið í íslenskri afbrotasögu og einnig banka- sögu. Fyrsta vopnaða banka- ránið hefur verið framið. Starfsmönnum Vesturbæjar- útibús Búnaðarbanka íslands var 18. desember ógnað með byssu og hnífum, þegar þrír grímuklæddir glæpamenn ruddust þar inn og rændu útibúið. Við hjá SÍB höfum getað státað okkur af því í hópi norrænna félaga okkar að hér hafi aldrei verið framið vopnað bankarán. Annars staðar á Norðurlöndum eru slfk rán daglegt brauð. Til dæmis voru 469 bankarán framin í hinum löndunum fjórum árið 1992 og 344 árið 1993. Nú erum við illu heilli komin í þennan hóp. Lífsreynsla félaga okkar á Vestur- götunni var bæði erfið og sár. Við hin getum ýmislegt af henni lært. A blaðsíðu þrjú birtum við viðtal við Jóhönnu Sigurjónsdóttur, skrifstofustjóra í Vestur- bæjarútibúi Búnaðarbankans, þar sem hún miðlar okkur af lífsreynslu sinni og félaga sinna hinn örlagaríka dag í desember. Opið á Þorláksmessu: Bankarnir brutu kjarasamninga Bankar og sparisjóðir ákváðu einhliða að hafa nokkra afgreiðslustaði sína opna á nýliðinni Þorláks- messu. Með þessu brutu þeir ákvæði kjarasamninga SÍB og bankanna. egar ljóst varð hinn 22. desember að bankar og sparisjóðir ætluðu sér að opna afgreiðslustaði að kvöldi Þor- láksmessu, kom stjóm SÍB saman til fundar. Á fundinum var ákveðið að senda eftirfarandi bréf til þeirra stofn- ana sem hlut áttu að máli: „Stjóm SÍB mótmælir því harðlega að bankar og sparisjóðir skuli einhliða ákveða að hafa nokkra afgreiðslustaði sína opna á Þorláksmessu, laugardag- inn 23.12. 1995. Stjómendur banka og sparisjóða ákváðu sameiginlega þessa opnun og sendu frá sér fréttatilkynningu þar um, án samkomulags við stjórn og samn- inganefnd SÍB. Þannig brutu þeir ákvæði greinar 12.1.1. í kjarasamningi bankamanna, þar sem segir að leitað skuli samkomulags við stéttarfélagið vegna breytinga á opnunartíma. Stjóm SÍB ítrekar að bankar og sparisjóðir leituðu ekki til stéttarfélags bankamanna í tengslum við þessa opnun. Starfsmenn em alls ekki skyld- ugir til að koma til vinnu laugardaginn 23.12. 1995. Það er sameiginlegt hagsmunamál banka, sparisjóða og allra starfsmanna þeirra að afgreiðslutími fari ekki úr böndum. Við bendum á það ófremdar- ástand sem ríkir hjá verslunarmönnum og formaður VR hefur líkt við þræla- búðir. Það er því alls óviðunandi að bankar og sparisjóðir skuli hlaupa til og opna á Þorláksmessu vegna óska Kaupmannasamtakanna, sem sök eiga á því ófremdarástandi sem ríkir hjá verslunarmönnum.”

x

SÍB-blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍB-blaðið
https://timarit.is/publication/979

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.