SÍB-blaðið - 01.01.1996, Side 7
eiginlegan lífeyrissjóð.
3) Eg held að það verði svipað og hjá
Islandsbanka. Spurning er reyndar hvort
bankar séu búnir að fækka fólki í botn
núna, en ég held að það verði örugglega
tilfærslur í stöðum. Spuming hvort mann-
skapur sé ekki korninn í lágmark hjá við-
komandi bönkum, fyrir utan áframhald-
andi afleiðingar tækniþróunar. LÍ hefur
t.d. þegar fækkað mikið.
4) Ég held að SÍB eitt og sér geti ekki
tryggt fólki óbreytt réttindi, en ég veit að
vilji er fyrir að fólk sé ekki rekið. En með
hliðsjón af áður nefndum tilfærslum í
störfum geta orðið óæskilegar breytingar.
5) Ég held að SIB eigi að vera með í
söluumræðunni og öllu sem viðkemur
þessum hlutum.
Þórunn K. Þorsteinsdóttir.
Þórunn K. Þorsteinsdóttir, þjónustu-
fulltrúi í Landsbnnka, aðalbanka.
Einn lífeyrissjóður lausnin
1) Ég held að við getum ekki svarað
með jái eða neii. En ef við skoðum láns-
traust Landsbankans erlendis, þá held ég
að þetta væri neikvæð breyting. Margir
okkar viðskiptavina eru hér af því þeir
telja sinni stöðu best borgið í Landsbank-
anum sem ríkisbanka. Ég er ekki mjög
hlynnt sölu á bankanum, en tel að það sé í
lagi að breyta honum í hlutafélag.
2) Ég tel að við getum haldið okkar nú-
verandi lífeyrissjóðsréttindum í einum
bankamannasjóði og þá væri æskilegt að
allir bankamenn komi inn í þann sjóð. Við
eigum alla möguleika á því.
3) Ég er ekki hrædd við launalækkun
en held að kjör okkar geti breytst á
ýmsuni öðrum sviðum. Við erum bundin
kjarasamningi bankamanna og þeim lág-
marksviðmiðunum sem þar eru, en þetta
gæti þýtt að bankarnir teldu sig frjálsari að
greiða fólki í samræmi við vinnuframlag.
4) Já, ég held að SIB hafi nægilega
skýra stefnu, en er ekki viss um að það sé
nægilega sterkt til að tryggja rétt okkar.
Mér hefur ekki fundist það í seinni tíð.
5) Nei, ég tel ekki að SÍB eigi að hafa
skoðun á sölu eða breytingum á rekstrar-
formi. Sambandið á fyrst og fremst að
huga að réttindum félagsmanna ef slík
breyting á sér stað.
Þór Símon Ragnarsson, útibússtjóri
Landsbanka, Háleitisútibúi.
SÍB þarf að vanda sig
1) Það má kannski segja að í þessu
samkeppnisumhverfi sé það orðið nauð-
synlegt að breyta yfir í hlutafélagaform.
En það skiptir miklu máli hvernig það er
gert og getur ekki gerst með neinum hraði.
I dag er mjög mörgum spurningum ósvar-
að. Ég vildi hafa meiri upplýsingar undir
höndum áður en ég legði mat á ágæti hug-
myndarinnar.
2) Þetta er mjög viðkvæmt samnings-
atriði, en ég held að með hlutafélagaformi
séu ríkisbankarnir óhjákvæmilega komnir
út á „markaðinn" og tel ekki ólíklegt að
starfsmenn bankanna enduðu í Lífeyris-
sjóði VR. Það þýðir miklu rýrari kjör fyrir
starfsmenn SIB, ef marka má umræðu um
stöðu almennra lífeyrissjóða í dag.
3) Ég skal ekki segja, ef sú röksemd
gildir að hlutafélagaformi fylgi betri rekst-
ur þegar til lengri tíma er litið, kann auð-
vitað að gerast að starfsmenn njóti betri
kjara. En ég á eftir að sjá það gerast.
4) Ég hef ekki fylgst svo mikið með
málflutningi SIB, en tel augljóst að þessi
mál eru mjög vandasöm fyrir SIB. SIB
þarf að halda mjög vel á spöðunum, gæta
vel að öllum samningum og passa að
semja ekki af sér.
5) Ég held að það sé skynsamlegt og
nauðsynlegt af SIB að taka þátt í umræð-
unni og mynda sér skoðun. Það er kannski
ekki tímabært í dag fyrir SIB að taka af-
stöðu til þess hvort breyta skuli bönkunum
í hlutafélög, en það kemur að því. Umræð-
an þarf að fara fram svo SÍB geti mótað
sína stefnu í málinu.
Sólborg Þórisdóttir, gjaldkeri Búnaðar-
bankanum, Laugavegi 3.
Erlendur banki kaupi
Búnaðarbanka
1) Nei. Mér finnst að það eigi að selja
Búnaðarbankann erlendum banka og fá
smá samkeppni inn í þetta. Það er betra
heldur að láta einhverja íslenska fjár-
glæframenn sem hafa ekkert vit á
bankamálum fá bankann.
Sólborg Þórisdóttir.
2) Ég veit ekkert um það, en sjálfsagt
breytist það.
3) Ég hugsa að fólki verði sagt upp og
það ráðið aftur. Ég reikna frekar með að
launin hækki þegar bankinn er orðinn
einkarekinn.
4) Hafa þeir nokkuð með það að segja,
förum við ekki í annað stéttarfélag ef það
verður selt?
5) Nei, ég held að SIB eigi bara að
hugsa um starfsmennina, ekki hvort það
eigi að selja eða ekki.
Gunnhildur Kristjánsdóttir.
Gunnhildur Kristjánsdóttir, gjaldkeri í
Landsbankanunt, Bankastræti 7.
Sala ekki hagkvæm
fyrir okkur
1) Já, ég held það, ég tel að það sé
ágætt að ríkisvaldið sé ekki að skipta sér
af þessu og þetta sé ekki pólitískt apparat.
2) Það fer eftir því hvernig til tekst
með samninga. Ég hef ekki hugsað þetta
svo mikið að ég geti sagt hvort ég telji
lfklegra.
3) Ég held að það yrðu uppsagnir.
Þjóðhagslega held ég að þetta verði hag-
kvæmara, en ég er ekki viss um að það
verði betra fyrir okkur. Ég held að það sé
ástæða til að hafa áhyggjur af kaupi og
kjörum.
4) Mér finnst SÍB hafa lítið talað um
þessi mál. Við höfum í öllu falli ekki heyrt
mikið.
5) Mér finnst að SÍB eigi að hafa
skoðanir á því hvaða rekstrarform er á
bönkunum, en þeir ráða kannski engu um
það.
7