SÍB-blaðið - 01.01.1996, Síða 10
Norræna
bankamannasambandið
Frœðslustyrkur NBU1996
Norræna bankamannasambandið (NBU) - samtök stéttarfélaga
starfsmanna í bönkum og fjármálafyrirtækjum í Danmörku,
Finnlandi, á Islandi, í Noregi og Svíþjóð, auglýsir hér með eftir
umsóknum um fræðslustyrk sambandsins fyrir árið 1996.
Styrkurinn er að fjárhæð 30.000 sænskar krónur. Fjöldi styrk-
þega ræðst af umsóknum sem berast.
Að þessu sinni ber að verja styrknum til rannsókna á skipulagi
banka- og Ijármálafyrirtækja í Eystrasaltslöndunum, eða til
rannsókna á viðleitni stéttarfélaga á Norðurlöndum til þess að
afla nýrra félagsmanna.
Skipulag banka- og fjárnnílafyrirtækja í Eystrasaltsríkjunum
Aðildarsamtök NBU hafa frá árinu 1994 unnið að verkefni í
Eystrasaltsríkjunum sem miðar að því að stofna frjáls og
lýðræðisleg stéttarfélög starfsmanna í bönkum og fjármála-
fyrirtækjum í Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Frá því ríkin
öðluðust sjálfstæði frá Sovétríkjunum fyrrverandi hafa miklar
breytingar orðið í þessari starfsgrein. Fjöldi einkabanka hefur
yfirtekið sovésku rfkisbankana. Verkefni styrkþegans getur
m.a. falist í könnun á stöðu greinarinnar nú, væntanlegri þróun
hennar, lagasetningu, umfangi einstakra fyrirtækja, útibúaneti,
fjölda starfsmanna, viðskiptavinum og hlutverki seðlabanka.
Verkefnið getur náð til eins eða fleiri Eystrasaltsríkja.
Öflun nýrra félagsnianna
Bankar á Norðurlöndum hafa á nýliðnum árum sagt upp
þúsundum starfsmanna og líkur eru á að enn fleiri muni missa
vinnu sína. A sama tíma eru bankarnir einnig að ráða til sín
nýja starfsmenn, marga þeirra með háskólamenntun. Aðildar-
sambönd NBU cru starfsgreinalélög, þar sem allir starfsmenn
geta gerst félagar. Þrátt lyrir það hefur verið vaxandi til-
hneiging til að hlutfall félagsmanna hafi lækkað. Af þessum
sökum býðst umsækjendum að verja fræðslustyrknum til rann-
sókna á velheppnuðum aðgerðum stéttarfélaga til þess að afla
nýrra félagsmanna, til að mynda úr hópi háskólamanna, ungs
fólks og sérfræðinga. Verkefnið má ná til annarra starfsgreina
ef svo ber undir.
Almennt
Umsækjendum ber að skila skriflegri skýrslu til NBU í síðasta
lagi sex mánuðum eftir að upplýsingaöflun lýkur. Skrifstofa
NBU er reiðubúin að afla styrkþegum nauðsynlegra tengiliða
og að aðstoða við gerð verkefnisáætlunar.
Umsóknum ber að skila á þar til gerðum eyðublöðum til Nor-
diska Bankmannaunionen, Box 7375, S-I03 91, Stockholm,
Sverige, í síðasta lagi hinn 15. mars 1996.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá fram-
kvæmdastjóra NBU, Jan-Erik Lidström, í síma (0046) 8-614
0300, eða hjá framkvæmdastjóra SÍB, Vilhelm G. Kristinssyni,
í síma 552 6944.
|B| ®
Tœkifœri til að starfa
á norrœnum vettvangi og á
vettvangi Evrópusambandsins
Norræna bankamannasambandið (NBU) og Samtök
norrænna tryggingastarfsmanna (NFU) hafa ákveðið
að ráða í sameiningu starfsmann til starfa á tímabilinu
frá 1. apríl 1996 til ársloka 1997. Starfið er fólgið í fjöl-
breyttum verkefnum sem snerta banka- og trygginga-
starfsemi auk þess að fylgjast með málefnum á vett-
vangi Evrópusambandsins á sviði banka- og trygg-
ingastarfsemi, vinnuréttar og félagsmálaumræðu.
Þróun mála í fjármála-, banka- og tryggingastarfsemi
hefur verið mjög hröð á síðustu árum. Samruni fyrir-
tækja, tilfærsla á verkefnum milli greina og aðrar
skipulagsbreytingar eru daglegt brauð og starfið verð-
ur stöðugt alþjóðlegra. Þess vegna er mikilvægt að
stéttarfélögin stilli saman strengi sína, fylgist með
þróun mála og geri úttekt á ýmsum þáttum hennar til
þess að geta tekist á við atvinnurekendur og stjórn-
málamenn á jafnréttisgrundvelli.
Leitað er að starfsmanni með starfsreynslu í banka,
fjármálafyrirtæki og/eða tryggingarfélagi, með góða
þekkingu á starfsemi og skipulagi stéttarfélaga. Starfs-
maðurinn verður að geta unnið sjálfstætt og hafa
kunnáttu í norrænum tungumálum.
Starfið felst í rannsóknum og athugunum á málefnum
og þróun í banka- og tryggingastarfsemi og að fylgjast
með framvindu mála á Norðurlöndum og annars
staðar í Evrópu. Ennfremur felst starfið í skýrslugerð
og útgáfu upplýsingaefnis. Starfsmaðurinn á
samvinnu við skrifstofur aðildarfélaga NBU og NFU.
Starfinu fylgja talsverð ferðalög á Norðurlöndum og tii
annarra Evrópulanda.
NBU og NFU eru með skrifstofur í Stokkhólmi. Því er
æskilegt, en þó ekki krafa, að starfsmaðurinn búi í
Stokkhólmi.
Nánari upplýsingar um starfið veita Jan-Erik Lidström,
framkvæmdastjóri NBU, í síma (00-46) 8-614 0300,
Rune Áström, framkvæmdastjóri NFU, í síma (00-46)
8-791 1700, eða Vilhelm G. Kristinsson, framkvæmda-
stjóri SÍB, í síma 552 6944.
Umsóknir sendist til: Nordiska Bankmannaunionen
secretariat
Box 9375
S-103 9375 STOCKHOLM,
SVERIGE.
Umsóknarfrestur ertil 23. febrúar 1996.
10