Læknablaðið - 01.01.1922, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐIÐ
9
gerö til langvarandi lækninga meS hörSum geislum (R.tiefentherapi)
en sömuleiöis vel löguö til gegnlýsingar viö maga- og lungna-skoöun.
Myndir má og taka meö þessari vél, þótt ekki sé hún vel til þess fallin
og getur því oröiö vara-vél, ef spennivélin skyldi bila.
Á sama tíma — sumariö 1919 — voru og gerðar fleiri endurbætur.
í staö gamla gegnlýsingar-áhaldsins, sem orðiö var úrelt, var sett upp
annað nýtt — Forssells Radiograf — sem er mjög fullkomið; er
aðallega notað viö skoðun á maga- og brjóstholi; og unt aö sýna meö
þessari aöferö rétt hlutföll á lungnamyndum, Auk þess er útbúnaöur til
þess að mæla meö nákvæmni rétta stærö hjartans og fá meö því upp-
lýsingar um dilatatio eða hvpertrofia cordis (orthodiagraphi).
Samtimis eignaðist R.stofan svonefnt Trochosjcop, til þess að
geta skoöaö sjúklinga liggjandi á bakinu eöa á grúfu; kemur þessi still-
ing oft aö góöu liði viö skoðun á maganum, og ef exsudat er í pleura,
en er alveg ómissandi, þegar colon er skoðaður meö R.clysma. í sam-
bandi viö uppsetning áhalda þessara, var endurbætt háspennunetiö í
stofunni.
Árið 1920 voru ekki geröar teljandi breytingar eða viðbót á áhöldum,
en næsta ár markar að því leyti ’íierkilegt spor í sögu R.stofunnar, að
rafmagnsstöðin nýja við Elliðaá,'nar komst á fót sumarið 1921, og var
hætt við starfrækslu rafmagnsvélarinnar í húsi Nathan & Olsens. Varö
nú kostur á miklu ódýrari straum og ábyggilegri spennu. Bæjarstraum-
urinn er breytistraumur 220 volt, en áöur var jafnstraumur, 110 volt.
Þurfti því að gera nokkrar breytingar á tækjum og setja upp breytivé!
(omformer). (Niðurl.)
Berklamálid.
Svar til Sig. Magnússonar,
Það hefir dregist fyrir mér um skör fram, aö svara hinum hógværu
og kurteislegu aths. Sig. Magnússonar út af hugl. mínum um álit berkla-
veikisnefndarinnar. Því aö ekki er því að leyna, að þær hafa ekki getað
fært mér heim sanninn um villu míns vegar. En drátturinn stafar einkum
af því, að eg hélt fyrst, að S. M. hefði ekki lokið við svar sitt til mín í
ágústblaðinu.
S. M. reynir að verja það, að till. nefndarinnar var dembt inn á þing
áður en læknum og öðrum kjósendum gafst kostur á að sjá þær og
athuga, kannast þó hálft í hvoru við, að þarna kunni að vera um sök að
ræða, en tilfærir málsbætur í 5 liðum; eru þær að vísu sumar harla litlar
og léttvægar, sem von er, því að þetta og annað eins er ekki verjandi;
væri auðvelt að taka þær lið fyrir lið og sýna fánýti þeirra, en eg býst
ekki við, að Lbl. hafi rúm fyrir rniklar umræður um þetta atriði, sem
er fyrst og fremst stjórnmálalegs eðlis, og þar að auki útkljáð, svo að
ekki verður við gert.
Af þessari síðartöldu ástæðu tel eg ekki heldur vert að halda áfram
umræðum um hvernig berklaveikislögunum nýju muni verða framfylgt.