Læknablaðið - 01.01.1922, Page 16
14
LÆKNABLAÐIÐ
F r é 11 i r.
Inflúensan. Þegar fréttist til inflúensunnar, ytra, í byrjun þessa mán-
aðar, þótti nauðsyn bera til Jjess a'ð hafa gætur á aðkomuskipum, meðan
nánari fréttir kæmu af veikinni og hve alvarleg hún væri. Var öllum
lögreglustjórum simað um Jjetta og skyldu þeir birta J>að læknum og
sóttvarnarnefndum. — Nú hefir nokkur tími liðið síðan og segja allar
fréttir að veikin sé væg. „afar væg“ segir síðasta skeyti frá ísl. sendi-
herranum.
Þó eg geri ekki ráð fyrir því, að J^að nægi að skoða sýkt og grunuð
aðkomuskip til þess að verjast vægri infI., Jiá virðist mér nauðsynlegt
að beita fullri sóttvörn við þau skip, sem kynnu að flytja þ u n g a v e i k i.
Jafnframt vil eg minna lækna á að láta ekkert tækifæri ónotað ti!
]>ess að grafast fyrir ]>essi lítt ]>ektu atriði, sérstaklega ef infl. fer að
ganga hér á ný:
1) Eru menn smitandi á síðari hluta undirbúningstímans ?
2) Hve lengi eru sjúkl. afsýkj.andi?
3) Veikjast þeir aftur, sem fengu veikina síðasta árið og þá hve títt
er það ? Guðm. Hannesson.
Læknafélag Reykjavíkur. Á fundi ]>. 9. jan. voru lagðir fram og sam-
]>yktir reikningar Læknablaðsins. Efnahagurinn er ekki góður, eins og
reikningurinn, sem birtist annarsstaðar í blaðinu, ber með sér. Nefndin
sem kosin v.ar á síðasta fundi, til þess aö gera tillögur um stofnun
l>erklavarnafélags, hafði klofnað. Meiri hlutinn, Sigurður Magnússon
og Sæm. Bjarnhéðinsson, vildi stofna allsherjarfélag strax. Eftir talsverðar
umræður var svohljóðandi tillaga minni hlutans, G. Claessens. samþykt:
,,1. Fundurinn er mctfallinn því, að skipaður verði sérstakur berklaveikis-
yfirlæknir hér á landi, en telur læknastétt landsins með forustu land-
læknis skylt að beita sér fyrir berklavörnum. 2. Fundurinn telur líklegt,
að berklavarnafélög viðsvegar í læknishéruðum muni geta komið að liði,
og skorar á stjórn Læknafélags íslands, að taka það mál á dagskrá á
næsta fundi félagsins, til þess að héraðslæknum gefist kostur á að gera
tillögur um myndun og fyrirkomulag slíks félagsskapar.
Frú Anna Sæbjörnsson, gift Magnúsi lækni i Flatey, dó á Landakots-
spítala 1. ]>. m., 52 ára að aldri. Banameinið var c. uteri. Frú Anna var
dönsk, fædd Nielsen, dóttir „fóstru“, sem margir íslenskir stúdentar hafa
búið hjá.
Guðm. Magnússon prófessor hefir fengið lausn frá kenslu i vetur. Er
það vegna þreytu og lasleika. Guðm. læknir Thoroddsen gegnir störfum
hans á meðan. Próf. G. M. er þó á fótum og nú þegar orðinn miklu hressari.
Vilmundur Jónsson læknir hefir verið kosinn í bæjarstjórn Isafjarðar.
Gestir. Vilm. Jónsson læknir og frú hans voru hér í bænum um jólin.
Nýkominn er og til bæjarins Halldór læknir Stefánsson á Flateyri.
Ólafur Jónsson hefir verið settur bæjarlæknir í Reykjavík frá
nýári og þangað til embættiö verður veitt, en umsóknarfrestur er til
1. mars. Störfum hefir verið skift þannig rnilli héraðslæknis og bæjar-
læknis: Héraðslæknir hefir eins og áður kenslu við Háskólann, eftirlit
með næmum sjúkdómum innanbæjar og heilbrigðismálum bæjarins, nema