Læknablaðið - 01.03.1924, Blaðsíða 14
44
LÆKNABLAÐIÐ
brúkar R. ekki balsamica, en oft salol. í byrjun; þegar bráöasta
bólgan er um garö gengin, lætur hann karlmenn sprauta urethra
meö protargoluppl. i : 300 eöa lapisuppl. 1: 3000 þrisvar eða fjórum sinn-
um á dag og einu sinni að nóttunni; eftir 14 daga lætur hann oftast sprauta
meö sol. hypermang. kal. 1 : 3000, stundum meö 1 % icthyolvatni, stundum
meö zinksulfat- eða koparsulfat-upplausn. Öll þessi lyf hefir hann tvöfalt
eöa þrefalt sterkari lianda kvenmönnum. Hann lætur kvenmenn sprauta
urethra sjálfar, eins og karlmenn; til aö rata rétta leið lætur hann þær
hafa spegil milli fótanna. — Á poliklinikinni, sem þeir ráöa fyrir, reserve-
læknarnir Kissmeyer og Lersey, var mest notuð vismuthsuspension til
inj. viö chronisk gonorrhoe (subnitr. bism., glycerini an 20., aq. dest. ad
300). Þangað sótti daglega fjöldinn allur af sjúkl. með kynferöissjúk-
dóma, einkum gonorrhoe og alls konar húðsjúkdóma og kvilla, svo aö
engin leið var að athuga allan þann grúa vandlega. Fanst mér því æöi
mikil fljótaskrift á skoðun og diagnose á öllum fjöldanum, en þess ber
að gæta, að langflestir, sem þarna kornu daglega, voru gamlir sjúklingar
og áður skoðaðir, og aö þegar nýr sjúklingur kom, sem þeir þaulæfðu
. dermatologar“ treystu sér ekki til að smella diagnose á á svipstundu,
]iá var hann látinn leggjast á spítalann til athugunar. Meðferðin á hör-
undskvillunum var líka æöi skematisk og minti á þá gömlu alþýðutrú,
aö ef sjúkdómurinn var gefinn, var meðalið við honum sjálfgefiö um
leið, og fanst mér því vonum minna að læra þar um meðferð hörunds-
kvilla. — Við arthritis gonorrhoica brúkar Rasch heita bakstra og salicyl
nótt og dag, og yfirleitt heldur hann því fram, að inntökur og injectionir
eigi aö brúka jafnt á nótt sem degi. Hann gerir ástungu, ef liðurinn er
mjög spentur og miklar þrautir, en foröast aö immobilisera og lætur
nudda vöðva í nánd við liðinn, svo fljótt sem þolist, og liðinn sjálfan,
þegar hann er oröinn þrautalaus. Á þennan hátt segist hann alt af fá
valetudinem completam, ef sjúkl. komi til sín áður en aörir læknar séu
búnir aö skemma liöinn með immobilisation o. þ. h., en batinn tekur
langan tirna, ef til vill ár eða meir. Gonococc vaccine segir hann aö sé
gagnslaus, og reynir hana aldrei.
Á chirurgisku deildinni á Finsens Institut eru langflestir af sjúkling-
unum meö útvortis berkla; auk meiri eöa minni immobilisationar eftir
ástæðum, er aðal-meðferðin Ijósböð, oftast generel, með Finsens-lömp-
um; ljós þeirra er eftirlíking sólarljóss, og hefir bæði heita og kemiska
geisla. En talsvert er þar þó nú orðið gert af resectionum og öðrum skurð-
lækningum, þegar ekki fæst bati á annan hátt, þrátt fyrir langvinna meö-
ferð, og hefir verið gert meira af því á síöari árum en fyr, meðan reynsl-
an var ekki búin að stilla í hóf þeirn miklu vonum, sem ljósmeðferðin
vakti. Margt er þarna af sjúkl. með spondylitis tub.; þeir eru fyrst látnir
liggja i gibsrúmi á bakið með þófa undir gibbus, en eftir 3—4 mánuði
er farið að láta þá liggja á kviðnum alt aö 6 klt. á dag (miklu skemur
fyrst) meö gjörö fram fyrir brjóstið, sem band liggur úr yfir trissu viö
fótagaflinn; neðan í þetta band eru hengd lóð all-þung, 10—15 kg., og
(oga þau i gjörðina og valda á þann hátt mjög mikilli dorsal-flexion.
Út i Sölleröd kom eg þrisvar og heimsótti kollega okkar og landa Pét-
ur Bogason, yfirlækni við Sölleröd Sanatorium. Það tekur á móti berkla-
sjúklingum á hvaöa sjúkdómsstigi sem er. iHælið er írcmur lítið, rúrnar