Læknablaðið - 01.01.1931, Síða 21
LÆKNABLAÐIÐ
15
herrann hafi teki'Ö það princip, a‘Ö auglýsa engar læknisstö'Öur,, meðan að
stendur i stappi milli L. í. og landsstjórnarinnar. — Landsspítalanefndin
hefir hókað hjá sér, að liún æslíti þess, að stöðurnar yrðu auglýstar.
Stöðurnar, sem um er að ræða, eru:
3 yfirlæknisstöður (medicinsk, kirurgisk, röntgenologisk).
3 aðstoðarlæknisstöður (medicinsk, kirurgisk, röntgenologisk).
2 kandidatastöður (medicinsk og kirurgisk).
í að'stoðarlœknisst'áðnrnar er meiningin að fá lækna, sem stunda ann-
að læknisstarf í bænum, en vinna á spítala fyrri hluta dagsins.
Kandidatarnir eiga aftur á móti að vera spítalans menn að öllu leyti.
Ennþá hafa engir læknar verið ráðnir að spítalanum eða settir, þ. e.
a. s. hafa ekki fengið neitt bréf viðvíkjandi þessu. En talað hefir verið
við dr. J. Hj. S., dr. G. Q. og próf. G. Thor., og þeir ætla að taka yfir-
læknisstöðurnar að sér.
Frá upphafi verið verið gengið út frá því, að háskólakennararnir í lyf-
læknisfærði og handlæknisfræði yrðu yfirlæknar spítalans. Hvað viðvík-
ur dr. G. Cl., þá er þar frekast um flutning úr einu húsi í annað að ræða,
en enga eiginlega nýja stöðu. „Við höfum allir 3 talað við stjóm L. I.
og skilist, að hún væri ekki mótfallin því, að við tækjum stöðurnar, þó
þær væru ekki auglýstar."
Um aðstoðarlœknisstöðurnar er nokkuð öðru máli að gegna, — þær eru
nýjar. Ráðh. hefir sett okkur yfirlæknunum algerlega í sjálfsvald, hvaSa
menn við réðum og við höfum rætt um þessar stöður við stjórn L. 1.
— Um kandidatastöfiumar virðist nokkuð liku máli að gegna og um að-
stoðarlæknisstöðurnar.
Próf. G. Hanness. svaraði fyrir hönd stjórnar L. ísl. og embættanefnd-
ar. Um y/frlæknana hefir aldrei verið nein deila, altaf gengið út frá því,
að háskólakennararnir í medicin og kirurgi yrSu yfirlæknar, og hvað dr.
G. Cl. viðvíkur, þá er þar einungfs um flutning að ræða.
Viðvíkjandi odífodarlæknunum : Yfirlæknarnir óskuðu þess, að þeir mættu
í fyrstu mestu um það ráða, hverja aðstoðarlækna þeir fengju, m. a. af því
það væri þeim hægast, að hafa til þess að byrja með menn, sem þeir þektu
og gætu treyst sérstaklega. Væri þetta braðabirgðaskipulag, í mesta lagi eins
á>s setning.
Viðvíkjandi kandidötunum: Próf G. H. hefir símað til þeirra kandidata,
sem hann helst gat hugsað sér að um þær stöður mundu sækja, tilkynt þeim
að þeir skyldu snúa sér til yfirlæknanna.
Var það álit stjórnar L. í., að stuðla bæri fyrst og fremst að því, að Land-
spítalinn kæmist i gang, og skuldinni skyldi ekki verða skelt á læknana, ef
svo yrði ekki. Annars stæði auðvitað ekki á félagsstjórninni að fylgja fram
vilja félagsmanna, ef hann væri annar. Það hefir alla tíð verið eitt aðal-
áhugamál íslenskra lækna, að fá Landspítalann í gang.
í frekari umræðum tóku þátt V. Alb., Bj. Snæbjss., G. E., H. T., Hannes
G., M. E., H. Stef., Pétur Jónsson, Kr. Bjarnason, H. Hansen, G. Th.
og G. H.
Var deilt á yfirlæknana fyrir það, að hafa ekki auglýst aðstoðarlæknis-
og kandidatastöðumar, fyrst þeim var i sjálfsvald sett að ráða mennina,
þótti farið á hak við þá, sem eru utanbæjar eða utanlands, með því að setja
þannig í mörg embætti og stöður, án þess að þeir vissu nokkuð um þær, eða