Læknablaðið - 01.01.1931, Side 38
32
LÆKNABLAÐIÐ
öllum félagsmönnum. Frágangurinn er prýÖilegur og öllum aÖstandendum
til sóma. Hinn alkunni prentsmiÖjulalli virÖist hafa veriÖ í sérlega góÖu
skapi, þegar hann t. d. smeygöi inn „grænjaxlar", í stað endajaxlar, neÖst
á siÖu 28. Þykir góÖs viti, að hann skuli hafa viljaÖ lifga upp þessa al-
varlegu bók. Þetta, og aÖrar smápréntvillur, var þó leiðrétt í mestöllu upp-
laginu, áður en það var sent út. — Ef menn hafa einhverjar tillögur aÖ
gera, um framtíðarfyrirkomulag bókarinnar, þá ættu þeir að senda þær
til ritstjóra hennar sem fyrst, svo að unt verði aÖ taka þær til athugunar.
Borist hefir blaðinu: Mitteilungen der Islandsfreunde, Hagskýrslur, Vest-
urland; ennfr. Norsk Magazin for Lægevidenskapen og reglugerð fyrir
ísafjarðarsjúkrahús, og verður hennar nánar getiÖ. Ennfremur „The Medi-
cal Review of Reviews“, des.hefti 1930; er í þvi mjög lofsamleg grein
um „medical progress in Iceland" eftir dr. Anita M. Mi'thl. amerískan kven-
læknir frá Californíu, er hér var á ferÖ í hitteð fyrra.
Læknar á ferð. Luðvík Nordal, Eyrarbakka, Páll V. Kolka, Vestmanna-
eyjum og Ingólfar Gíslason, Borgarnesi ásamt frú, hafa verið á ferð hér
í Reykjavík.
Utanferð. Kjartan Ólafsson, augnlæknir, brá sér nýlega snögga ferð
til London.
Rannsóknastofa Háskólans framkvæmir, frá 1. jan. 1931, aftur ókeypis
rannsóknir viðvíkjandi næmum sjúkdómum. Eru 5000 kr. veittar til Jiess
á fjárlögum fyrir 1931. Prófessor Guðmundur Thoroddscn veitir stofunni
forstöðu í fjarveru Dun'gals docents.
Háskólapróf. Fyrri hluta embættisprófs í læknisfræði tók cinn stúdent,
miðhluta fimm.
Embættispróf. Fullnaðarprófi i læknisfræði luku í febrúarmánuði þeir
Kjartan Jóhannsson með II. eink. betri 139LÍ stigum og Sœhj'órn Magnús-
son með II. eink. betri 1267Ú stigum. Gengu báðir i L. 1. að embættisprófi
loknu.
Nýr félagi: Jón Steffensen settur héraðslæknir á Hvammstanga gekk
nýskeð í L. í.
Gísli Pálsson, lœknir, hefir verið scttur til þess aÖ gegna Eskifjarðar-
hcraði.
Utanfararstyrkir og Lf. Isl. Tveir héraÖslæknar, Pétur Thoroddsen og
Árni B. Helgason, hafa nýlega siglt og væntu ]>ess að fá utanfararstyrk
eftir samtali við landlækni. Hann hefir undanfarið ráðiö mestu eða öllu
um styrki þessa. En þegar til kom, neitaði dómsmálaráðherra um styrk,
vegna þess að læknar þessir væru í Lf. ísl.! Þeir verða ekki margir, sem
fá utanfararstyrk eftir þessu. — Nú er eftir aÖ vita hvort þingið vill láta
gabba læknana á þennan hátt.
Kaupendur Læknablaðsins, sem ekki eru í Læknafélagi íslands og eiga
ógreitt áskriftarverÖiÖ fyrir 1930, 15 kr., eru vinsamlega beðnir að senda
það sem fyrst afgreiðslumanni blaðsins, hr. Þorv. Jónssyni, Grettisgötu 37,
Rcykjavík.
Innheimtu- og afgreiðslumaður Lbl. er hr. Þorvaldur Jónsson,
Grettisgötu 37, Rvík.
Félagsprentsmiðjan.