Læknablaðið - 01.02.1937, Síða 8
LÆKNABLAÐIÐ
era sinna um alt aS helming þeirra,
sem eru fram yfir iooo, þó þann-
ig, aÖ hámarkstalan fari aldrei
fram úr 1500 númérum alls um
áramót. A sama hátt er augnlækn-
um, nef-, háls- og eyrnalæknum
heimilt að auka tölu samlagsnúmera
sinna um helming þeirra, sem eru
fram yfir 6000, þó þannig, að há-
markstala þeirra fari aldrei fram
úr 9000 númerum alls um áramót.
Óski fleiri meðlimir að hafa sama
lækni, er honum heimilt að velja
úr, enda hafi samlagslæknir heim-
ild til að takmarka tölu samlags-
númera sinna eftir samkomulagi
við stjórn S.R.
Sjúkrasamlagsmaður, er óskar
læknishjálpar, skal sýna lækni sain-
lagsins bók sína eða skírteini, er
sanni að hann hafi rétt til læknis-
hjálpar á kostnað samlagsins. Geti
hann það ekki, er lækni heimilt að
krefjast greiðslu fyrir verk sitt af
sjúklingum, eins og hann væri ekki
í samlaginu. Undanskilin þessu á-
kvæði eru þó slys, bráðir sjúk-
dómar og því um líkt, en þó skal
sjúklingur sýna skírteini sín, svo
fljótt sem við verður komið, í síð-
asta lagi næsta dag. Samlagsmenn
skulu einnig sýna samlagsbók sina
í lyfjabúð, er lyf eru afgreidd. 1
samlagsbók skal vera nafn og heim-
ilisfang sj úkrasamlagsmeðlims,
ágrip af samþykt sjúkrasamlagsins
og af samningi þessum.
4- gr-
Skyldur lækna.
Samlagslæknir er aðeins skyldur
til að veita samlagsmönnum sínum
læknishjálp, eftir þessum samningi,
sé samlagsmaður staddur innan tak-
marka lögsagnarumdæmis Reykja-
víkur, er læknishjálp fer fram.
Starfstími almennra samlagslækna
er frá kl. 8—20 hvern virkan dag,
en vitjanabeiðnir skulu vera komn-
ar til læknis fyrir kl. 14, ef óskað
er eftir heimsókn samdægurs, nema
um slys, bráða eða hættulega sjúk-
dóma sé að ræða.
Öllum læknum, sem starfa fyrir
samlagið, er skylt að gæta alls þess
sparnaðar í tilvísun til sjúkrahúsa
og sérfræðinga, í nætur- og helgi-
dagavitjunum, svo og í ráðlegging-
um lyfja og umbúða, er samrýman-
legur er sjálfsagðri umhyggju fyr-
ir sjúklingnum. Þannig skulu þeir
meðal annars gera sér far um að
ráðleggja ekki dýr verksmiðjulyf,
er önnur jafngild en ódýrari eru
fyrir hendi. Læknafélagið aðstoði
sjúkrasamlagið við aö gera skrá
yfir verksmiðjulyf, er sjúkrasam-
lagiö leyfir ekki aö ávísa á sinn
kostnað.
5- gr.
Iívartanir, kærur og refsiákvæði.
Finni tryggingarlæknir að sam-
lagsmaður geri sér upp sjúkdóms-
einkenni eða leitist við að hlekkja
lækninn eða samlagið, skal hann
gefa trúnaðarlækni samlagsins upp-
lýsingar um það.
Fari samlagsmaður ekki að ráð-
um læknis eða neiti aðgerð, er lækn-
ir telur nauðsynlega, getur læknir-
inn neitað að stunda hann áfram,
en jafnframt skal hann tafarlaust
tilkynna það trúnaðarlækni sam-
lagsins. Krefjist samlagsmaður
læknisvitjunar ástæðulaust, getur
læknir kært það til samlagsins og
sannist að svo sé, má læknirinn
neita að stunda samlagsmanninn frá
næstu mánaðamótum. Heimsæki
læknir samlagsmeðlimi eða geri
önnur læknisverk ástæðulaust og
ótilkvaddur, á hann ekki kröfu til
greiðslu fyrir það.
Nú kemur samlagslæknir ekki til
samlagssjúklings, þó til hans hafi
verið leitað á tilsettum tíma, eða
enginn er á heimili hans til að veita