Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.1940, Síða 7

Læknablaðið - 01.05.1940, Síða 7
LÆKNABLAÐIÐ GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR RITSTJÓRN: JÓHANN SÆMUNDSSON, JÓN STEFFENSEN, JÚLÍUS SIGURJÓNSSON. 26. árg. Reykjavík 1940. 5. tbl. Rannsóknir á C-fjörvimagni nokkurra innlendra fæðutegunda Eftir Höskuld P. Dungal t I. MJÓLK. Mjólkin hefir lengi veri'Ö höfuÖ- þáttur í fæði íslendinga, og er auð- sætt, að almenningi hefir lengi ver- ið ljóst, hve geysimikils virði mjólk- in er, því að það hefir jafnan ver- ið talið bjargarlítið bú, sem enga kúna átti. Og í hallærunum, sem yfir landið hafa gengið, lifðu jieir helst, sem áttu kost á mjólk. En þar sem hana þraut, hrundi fólkið niður*). Sá þátturinn í nærigu vorri, sem einna mest hætta er á að menn komi til að skorta hér, er C-fjörvið. Og af því að mjólkin er ein af þeim fáu uppsprettum þess hér á landi, er ástæða til að athuga, hve rík mjólkin er af því, og hver munur kynni að vera á C-f jörvimagni hennar eftir árstíðum. Til að fá þetta upplýst, hefir C- fjörvismagn nýmjólkur verið at- hugað í Rvik árið 1939, mánaðar- lega. Rannsóknirnar voru gerðar eftir aðferð Tillmans**) með 2,6-di- *) Sbr. t. d. æfisögu Jóns Stein- grímssonar. **) Zeitschr. f. Lebensm. 1930, 60, 34 ; 1932, 63 1, 21, 24, 267, 276. klórindophenol eftir reduktion með H2S til að breyta dehydroascorbin- sýru í ascorbinsýru. Cystein var út- felt með merkuriacetat, en kvika- silfrið útfellist með brennisteins- vatnsefninu aftur. Mjólkin var tekin ýmist úr aðal- stöð Mjólkursamsölunnar eða i búð- um í Reykjavík og rannsökuð sam- dægurs. Hér fara á eftir niðurstöðurnar: 21. jan. 1939: Flaska nr. 1 14 mg. pr. líter — — 2 15 — — — — — 4 14 — — — — — 5 13 — — — _ _ 6 11 _ _ _ 24. jan. 1939. Flaska nr. 1 17 mg. pr. liter — — 2 20 — — — — — 3 16 — — — — — 4 15 — — — — — 5 11 — — — — — 6 12 — — — 24. febr. 1939. Flaska nr. 2 12 mg. pr. liter — — 3 13 — — — — — 4 10,5 — — —

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.