Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 22

Læknablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 22
8o LÆKNABLAÐIÐ Ur erlendum læknaritum. Ca við Angiospasmus. Weichsel reyndi calcium-uppl.iv. við allmarga sjúkl. með angiospas- mus. Púls-fylling var mæld á und- an og eftir, og jókst hún oft til muna, en mest bar á jn’í, hve þraut- um slotaði, og hve sjúklingunum varð léttara um gang. Hitastraum- urinn, sem lagði um sjúkl. við ídæl- inguna, Ijenti á æða-útþenslu. Þægi- lega hitatilfinning lagði um útlimi, sem höfðu vetrið sí-kaldir mánuð- um og árum saman. Við ]>ær þús- undir idælinga, sem gerðar voru, kom hvorki fyrir ,,thrombosis“ né nein alvarleg eitrunareinkenni. Þrautum létti í 24 klst. eftir fyrstu ídælingu, og ]>ví lengur eftir hverja í dælingu, sem fleiri voru gerðar. Útlimir, sem áður voru sikaldir, urðu eðlilega heitir. Leggjasár greru oft án annarar meðferðar. 1 fyrstu var notað Calciumgluconat, en í seinni tíð eingöngu CaCl2 leyst upp í fysiol. NaCl-uppl.; er byrj- að á því að dæla inn í æðina ögn af tómri NaCl-uppl., og þegar vissa er fengin um, að dælunálin sé i æð, er hæfilegum skamti af 50% CaCl2-uppl. bætt við í dæluna og blandað saman. Ekki má dæla inn Ca, ef sjúkl. hefir nýlega fengið digitalis-meðferð, því að það er hættulegt, vegna „synergismus“ þessara lyfja, getur jafnvel valdið bráðum bana.'— Allir sjúkl. fengu 2 g. af CaCl2 einu sinni á viku í 12 vikur. Það var ekki óalgengt, að heilsubótin, sem sjúkl. fengu, entist í 2 ár í senn. Þeir komu vana- lega aftur af sjálfsdáðum, þegar þeim fór að versna á ný. (The Journ. of the Am. Med. Ass. 1940. Nr. 11, bls. 1016, cit. þar eftir An- nals of Internal Medicine, Jan. 1940). N. /. Acetylcholin kveðst prófessor dr. E. Payr hafa notað með mjög góðum symptoma- tisum árangri við ýmsa liðasjúk- dóma, einkum arthrosis deformans. Ennfremur vöðvakreppur og lam- anir. Aðallega notar hann inndæl- ingar í liðina eða kringum ]>á og inndælingar í vöðva; normal-skamt- ur 10 cg. acetylcholin leyst upp í 2 ccm. Aq. dest. ster. Deyfir á und- an liðpokann með novocainuppl. og dælir ögn af 2% novocainuppl. inn í liðinn á eftir acetylcholinuppleys- ingunni, Hann dælir inn annan hvern dag. Blóðsókn eykst ekki að- eins til liðsins eða vöðvans, sem í er dælt, heldur og til alls lims- ins, og fylgir hitatilfinning í honum og jafnvel í öllum líkamanum, er helst oft heilan dag eða lengur. Blóðþrýstingur lækkar vegna æða- útþenslunnar. Liðaþrautir minka og hreyfanlegleiki vex stórum, stund- um þegar eftir fyrstu idælinguna. Engra eiturverkana kveðst próí. P. hafa orðið var af þessari meðferð, og ekki heldur neinna óþæginda localt. (Munchener med. Wochen- schrift 1940, Nr. 1, bls. 7—15. ó\ /. Félagsprentsmiðjan h.f.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.