Læknablaðið - 01.04.1943, Síða 19
LÆKNABLAÐIÐ
123
finnst sullur í 27 þeirra, eöa 16%.
Hjá þeim seni eru yfir sextugt
má því segja, aö sullur finnist í
sjötta hverjum manni, en í fimta
hverjum sem kominn er yfir sjö-
tugt. Þetta er fólkið, sem hefir
verið i blóma lífsins þegar G. M.
skrifar sína ritgerð. Það er engin
ástæða til að ætla að minna hafi
dáiö af sullaveiku fólki en öðru,
og því verður að gera ráð fyrir
að um það bil sem G. M. skrifar.
hafi ca. 6. liver maður, sem var
þrítug'ur eða eldri, gengið með sull.
Nú hafa þeir höfundar, sem ég
hefi minnst á, og gizkað hafa á
útbreiðslu sullaveikinnar, allir mið-
að við tölu sullasjúklinga, þ. e.
þeirra, sem hafa haft það mikil
óþægindi af sínum sullum, að þeir
hafi getað talist sjúklingar. Það
gefur að skilja, að það er ekki unt
að draga neina slíka línu, sem
skilji á milli sjúkra og heilbrigðra
sullbera. Þessi mælikvarði eldri
höfundanna, að miða við sull-
sjúklinga, er þvi aðeins neyðar-
úrræði, aðeins til komið vegna
þess, að það var það eina, sem
unnt var að fá yfirlit yfir á þeiiji
tímum, enda geta allir höfundarn-
ir þess, að áreiðanlegar skýrslur
um útbreiðslu sullaveikinnar fáist
ekki fyrr en unnt sé að gera nógu
margar krufningar.
Vaxtarstaðir. Eins og vænta
mátti eru langflestir sullirnir í lií-
ur, eða hjá 37 af 41. Næst lifrinni
kemur, eins og við var að búast,
peritoneum, þar sem sullir fund-
ust í 6 likum. í öllum öðrum lif-
færum var mjög sjaldgæft að
finna sulli, aðeins einu sinni i milta
og tvisvar í hjarta, en ekki í öðr-
um líffærum. Þessi dreyfing á
sullunum er dálítið öðruvísi en hjá
Jónassen, sem fann 18% af sínum
sullum í nýrunum. Af 50 sullum
voru 9 í nýrunum, 3 í milta og 1
i hjarta. Dreyfingin er því svipuð
í öðrum líffærum að undanteknum
nýrunum. Mér er ekki grunlaust
«*< //>■:/
/fY/
Tafla I.