Læknablaðið - 01.06.1950, Síða 15
LÆKNABLAÐIÐ
43
Meðferð.
MeSferö á cor pulmonale
chronicum fer eftir tveimur
leiöum:
1. Hindra sjúkdóma í öndun-
arfærum, og beita með-
ferð við þeim lungnasjúk-
dómi, sem fyrir er.
2. Meðferð á hjartasjúk-
dómnum.
Meðferð á hinum
„primœra“ lungnasjúkdómi.
Eftir að læknisfræðin á síð-
ustu árum hefir fengið til um-
ráða hin antibiotisku efni:
penicillin og streptomycin o. fl.
þarf að byrja meðferð með
þeim tímanlega á sjúklingum
með bronchitis chronica,
bronchiectasiae, og aðra sup-
purativa lungnasjúkdóma. Hér
má geta, að úðunarmeðferð
með penicillin hefir gefið góða
raun við bronchitis.
Þegar mikil lungnaþemba og
lungna-fibrosis er komin, geta
öndunaræfingar orðið að miklu
liði. Við mikla lungnaþembu
gjörir magabelti mikið gagn,
við að styðja vel að líffærum í
kviðarholi, sem þá þrýsta þind-
inni ofar, og gjöra hana því
hæfari til öndunarstarfa. Alla
sjúklinga með chron lungna-
sjúkdóma þarf aö vara mjög
við að fá kvef eða bronchitis
sökum hættunnar á að fram
komi insufficiens á hægri
hjartahelming.
Mikill hluti sjúklinga með
kroniska lungnasjúkdóma þjá-
ist af asthma bronchiale, og
þar sem asthmaköstin eru
aukabyrði fyrir lungu og hjarta
þarf að stöðva þau eða hindra
með öllum mögulegum ráðum,
en ekki tel ég ástæðu til að
tala nánar um meðferð asthma
bronchiale.
Meðferð á ofraun og bil-
un hœgri hjartahelmings.
Eins og áður er tekið fram,
er oft erfitt að greina, hvenær
einkenni um hægri hjarta-in-
sufficiens koma fram. Það er
því mikilsvirði, að sjúklingar
þessir hafi fengið digitalis-meö-
ferð áður en hjarta-insuffici-
ens skeður.,Áþann hátt er hægt
að bæta til muna hið erfiða á-
stand sjúklings, og hindra
hjarta-insufficiens um nokkurt
skeið. Eftir að einkenni um
insufficiens á hægri hjarta-
helming hafa komið í ljós, verð-
ur að ráðast á insufficiens og
anoxæmi með öllum þar til
heyrandi meðölum, þar sem
þessi tegund hjarta-insuffici-
ens er oftast mjög skæð, og get-
ur valdið dauða á fáum dög-
um.
Sjúklingur á að fá strofantin
intravenöst eða digitalis intra-
venöst um tíma og síðan halda
áfram með digitalis-gjöf per
os. Auk þess kvikasilfur-
diuretica, sem daglega injek-
tion, sé sú meðferð ekki
kontrindiceruð vegna nýrna-