Læknablaðið - 01.08.1967, Qupperneq 23
LÆKNABLAÐIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI ÍSLANDS
O G LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
Aðalritst jóri: Ólafur Jensson. Með r i ts t j órar: Magnús Ólafsson og
Þorkell Jóhannesson (L.Í.), Ásmundur Brekkan og Sigurður Þ. Guðmundsson (L.R.)
53. ÁRG. REYKJAVÍK, ÁGÚST 1967 4. HEFTI
ÓSKAR EINARSSON
LÆKNIR
lllll\ll\lll\IGARORÐ
Þeim læknum fækkar nú óð-
um, sem stunduðu nám í Há-
skóla Islands á fyrstu starfsár-
um hans, njótandi daglegrar
fræðslu og fyrirmyndar þeirra
ágætu kennara, sem mótuðu
læknakynslóð hins nýja tíma á
íslandi. Hér skal með nokkrum
orðum minnzt eins úr þessum
hópi, Óskars Einarssonar, sem
lézt á Landspítalanum 20. marz
síðastliðinn, eft'ir langa og erf-
iða banalegu.
Guðmundur Óskar, því að
svo hét hann fullu nafni, var
fæddur í Hifshalakoti í Rangár-
vallasýslu 13. maí 1893, sonur
Einars Guðmundssonar bónda þar, en síðar lengi á Bjólu í Holt-
um, og konu hans, Guðrúnar Jónsdóttur, bónda í Hlíð í Selvogi,
Guðmundssonar, óðalsbónda á Keldum í Rangárvallasýslu, Brynj-
ólfssonar. Sá Guðmundur var einnig langafi Helga Jónassonar,
héraðslæknis á Stórólfshvoli, og afi Helga Ingvarssonar, yfirlækn-