Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.08.1967, Side 55

Læknablaðið - 01.08.1967, Side 55
LÆKNABLAÐIÐ 153 Með þessari könnun er ætlun- in að komast að raun um, við hver skilyrði héraðslæknar Vinna, hvernig búið er að þeim og hverra úrbóta er þörf, til þess að hægt verði í framtíð- inni að tryggja viðhlítandi læknisþjónustu í dreifbýlinu. Miklar umræður hafa und- anfarið verið um saméiningu héraða og stofnun læknamið- stöðva. Hefur flestum, sem um málið liafa ritað, komið saman um, að lausnin á læknaskorti dreifbýlisins sé í því fólgin að færa læknana saman og búa þéim starfsskilyrði sambærileg kröfum nútíma-heilbrigðisþjón- ustu. Einn þáttur könnunarinnar verður að komast að því, hvar og bvernig megi sameina héruð og hver sé afstaða héraðslækn- anna til slíkra breytinga. Mun á þennan hátt fást nokk- ur mynd af vandamálum lækn- isþjónustunnar i dreifbýl'inu og undirstaða að samræmdum að- gerðum og áætlunargerð á því sviði. RAÐSTEFNA UM HEIL- BRIGÐISMÁL A nýafstöðnum aðalfundi L. í. kom fram tillaga um, að L.l. beitti sér fyrir því, að haldin yrði ráðstefna um heilbrigðis- mál i samvinnu við heilbrigðis- yfirvöld og ýmsa aðra aðila, er þau mál varða. Þegar er hafinn undirbúningur að ráðstefnu þessari, og er ætlunin, að hún verði haldin fyrri bluta vetrar (í nóvember nk.). Eitt af þeim málum, sem blýtur að bera b.átt á slíkri ráð- stefnu, eru vandkvæði læknis- þjónustunnar í dreifbýlinu, og er sú upplýsingasöfnun, sem nú þegar er hafin um starfs- aðstöðu héraðslækna, mikil- vægur grundvöllur fyrir um- ræður og ályktanir um þau mál. Er því þess að vænta, að héraðslæknar bregðist fljótt og vel við afgreiðslu þessa máls og greiði götu erindreka L.I. í öll- um atriðum, sem mest má verða.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.