Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1967, Page 65

Læknablaðið - 01.08.1967, Page 65
LÆKNABLAÐIÐ 159 Heilsuvernd og- lækning sjúkdóma Hóprannsóknir hafa, eins og áður er greint frá, einkum beinzt að langvinnum sjúkdómum. Helztir þessara sjúkdóma eru: 10 Mb. cord. art. coron. Hypertensio art. Diabetes mellitus Anæmia Bacteruria Pyelonephritis Glaucoma simplex Pneumoconiosis Arthritis rheumatoides Tuberculosis Cancer, t. d. Ca. colli uteri Deformitaes eongenitae (420.00—422.00) (440.99—447.99) (260.09) (291.10—293.99) (789.20) (600.01) (387.01) (523.00—524.99) (722.00) (001.99—008.99) (171.00—171.01) (745.00—754.79) Hver er svo árangurinn af þessum rannsóknum? Hvað snertir kransæðasjúkdóm, er ljóst, að við mikið vanda- mál er að etja. Sannast það bezt á öllum þeim aragrúa tillagna um orsakir og lækningu þessa sjúkdóms, sem birzt hafa hin síð- ari ár. Þess vegna er ánægjulegt, að nokkuð hefur þetta vandamál skýrzt hin síðari árin. Við vitum t. d., að offita á ákveðnum aldri og miklar vindlingareykingar auka mjög á líkur fyrir þessum sjúkdómi. Margt bendir til þess, að svo sé farið með fleiri þætti, t. d. háþrýsting og sykursýki. Mikið hefur verið rætt um ofmagn fitu í blóði, sem sennilegt hættumerki (high risk factor), og sannað er, að dauðsföll af völd- um kransæðasjúkdóma eru óvenjutíð meðal fólks með erfð'a- bundna hækkun fitu í blóði. Ekki er sannað, að sama gildi um aðra, sem hafa ekki erfðabundna hækkun fitu í blóði, og ekki er vitað, hvort lækkun á kólesterol í blóði hafi í för með sér fækk- un dauðsfalla af völdum þessa sjúkdóms. Trúlega fæst þó svar við þeirri spurningu fljótlega. 9 Nánari athugun á þýðingu ofannefndra „hættumerkja" er talin skipta miklu máli, enda hefur Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unin stutt og stuðlað að rannsóknum um þetta víða í Evrópu og m. a. á Islandi (sjá seinni grein).12 Mikilvægt er að hafa í huga,

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.