Læknablaðið - 01.08.1967, Síða 66
160
LÆKNABLAÐIÐ
að jákvæð fylgni (positive correlation) kransæðasjúkdóma og
ýmissa „hættumerkja" þarf ekki að vera hið sama og orsaka-
samband (causal correlation).
lllkynjaðan háþrýsting er hægt að bæta að nokkru leyti og
auðvelt að lækka blóðþrýsting, en rétt er að fara með gát, og
nauðsynlegt er að þekkja dreifingu blóðþrýstings hjá ýmsum
hópum almennings, bæði þeim, sem eru sjúkir, og eins hinum,
sem eru heilbrigðir, áður en meðferð er ráðin. Lækkun blóðþrýst-
ings niður fyrir ákveðin mörk bætir ekki alltaf horfur.
Margir telja, að sykursýki megi stöðva á byrjunarstigi.
Ekki veit ég, hvort þetta er að öllu ieyti rétt, en almennar hóp-
rannsóknir geta veitt svar við þessari spurningu.
öruggar heimildir eru um það, að koma má í veg fyrir ífar-
andi leghálskrabbamein og berkla. Barátta er hafin hér á landi
gegn leghálskrabbameini, 13 og ef að líkum lætur, mun hún reyn-
ast árangursrík. Óþarfi er að kynna nánar árangursríkar
berklavarnir hér á landi.13 Auðvelt er að hindra áframhaldandi
þróun t. d. gláku, en talið er, að um 2% af íslenzku þjóðinni,
yfir 40 ára aldri, hafi óþekkta byrjandi gláku.1 Unnt er að lækna
blóðleysi, sýkla í þvagi og offitu. Annað mál er, hvort fólk fer að
læknisráði.
Eftirrannsóknir (follow-up studies) leiða í ljós, að um 7%
af því fólki, sem fær heilsuráð, fer ekki eftir þeim, en 20% fer
ekki til nánari athugunar, þótt því sé ráðlagt að gera það.14
Hverju máli skiptir uppgötvun sjúkdómsins
einstaklinginn og þjóðfélagið?
Þrátt fyrir nær 20 ára rannsóknarstarf liggja ekki fyrir
samhljóða niðurstöður um árangur þess. Meginorsökin er sú, að
lítið hefur verið um framhaldsrannsóknir og því erfitt að draga
gildar ályktanir um mikilvægi rannsóknarinnar fyrir einstakl-
inginn og þjóðfélagið. Skylt er þó að geta þeirra rannsókna, þar
sem tilraun hefur verið gerð til raunhæfs mats á þessum atriðum.
Á síðustu norrænu ráðstefnunni um félagsmála-læknisfræði
(social-medicin), sem haldin var í Gautaborg í júní 1967, var
skýrt frá niðurstöðum almennrar hóprannsóknar og framhalds-
rannsóknar, sem hefur farið fram í Eskilstuna í Svíþjóð síðan
1964.3
Markmið rannsóknanna var m. a. að athuga:
a) almenna sjúkdómstíðni í þjóðfélaginu,