Læknablaðið - 01.08.1967, Blaðsíða 69
LÆKNABLAÐIÐ
163
Jrá lœfatutn
í júní 1967 luku embættisprófi í læknisfræði við Háskóla íslands:
Ásgeir Jónsson, Einar H. Jónmundsson, Eyjólfur Þ. Haraldsson, Eyþór
H. Stefánsson, Guðmundur Elíasson, Guðmundur Sigurðsson, Guðný
Daníelsdóttir, Gunnlaugur B. Geirsson, Gunnsteinn Gunnarsson, Hlöð-
ur Freyr Bjarnason, Kristján A. Eyjólfsson, Magnús Skúlason, Þórður
Harðarson og Þorvarður Brynjólfsson.
★
Almennt lækningaleyfi hafa fengið (1967); Aðalsteinn Pétursson
11. maí, Guðmundur B. Guðmundsson 17. maí, Páll Þórhallsson 26.
júní, Kári Sigurbergsson 26. júní, Bjarni Arngrímsson 10. júlí og Helgi
Ólafur Þórarinsson 10. júlí.
★
Hrafnkell Helgason hefur verið skipaður yfirlæknir við Heilsu-
hælið að Vífilsstöðum frá 15. maí 1967.
★
Jóhann Guðmundsson stud. med. hefur verið settur héraðslæknir
í Súðavíkurhéraði frá 2. júní til 2. ágúst 1967, og Kristján Ragnarsson
stud. med. hefur verið settur héraðslæknir í Þórshafnarhéraði frá 6.
júlí til 20. september 1967.
★
Haukur S. Magnússon, héraðslæknir i Austur-Egilsstaðahéraði,
hefur fengið lausn frá embætti frá 10. júlí 1967.
★
Eiríkur Bjarnason er nýkominn heim frá Svíþjóð, þar sem hann
hefur verið við nám og störf í augnlækningum. Hann er nú aðstoðar-
læknir á lyflækningadeild Borgarspítalans.