Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1967, Page 70

Læknablaðið - 01.08.1967, Page 70
164 LÆKNABLAÐIÐ Stjórn Hjúkrunarfélags íslands liefur að gefnu tilefni óskað eftir Jjví, að eftirfar- andi tilkynning yrði birt í Læknablaðinu. TÍLKYNNING FRÁ FRÆÐSLU- MÁLANEFND HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS Reykjavík, 26/5 1967. Að gefnu tilefni viljum við vekja athygli á þeim ákvæðum hjúkr- unarlaganna (lög nr. 42/1965), sem fjalla um lögverndun hjúkrunar- heitisins og hjúkrunarstarfsins. Þar segir: 1. gr. Rétt til að kalla sig hjúkrunarkonur hafa þær konur einar hér á landi, sem stundað hafa nám tilskilinn tíma í Hjúkrunarskóla íslands eða öðrum viðurkenndum hjúkrunarskóla hér á landi og að loknu prófi eru taldar hæfar til hjúkrunarstarfa. Ráðherra getur og veitt öðrum hjúkrunarkonum leyfi til hjúkrun- arstarfa, ef þær hafa lokið jafngildu námi og eru að öðru leyti hæfar til starfsins að dómi skólastjóra Hjúkrunarskóla íslands og landlæknis. 2. gr. Ekki má ráða aðrar konur en þær, sem eru fullgildar hjúkrunar- konur samkvæmt 1. gr., til sjálfstæðra hjúkrunarstarfa við sjúkrahús- sjúkraskýli, elliheimili, barnaheimili, að heilsuverndarstörfum og' við hjúkrun í heimahúsum, né til starfa að öðrum tilsvarandi almennum hjúkrunarstörfum. Ráðherra getur veitt undanþágu frá ákvæðum þessum, þegar sér- stakar ástæður eru fyrir hendi. 7. gr. Ákvæði 1. til 6. gr. taka einnig til karla, sem Ijúka hjúkrunarnámi og hafa rétt til að kalla sig hjúkrunarmenn, 10. gr. Brot gegn lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim varða sektum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.