Læknablaðið - 15.06.1980, Side 10
138
LÆKNABLADID
25. gr.
Læknir, sem sviptur hefur verið leyfi til að ávísa ávana- og fíknilyfjum, getur fengið tii pess leyfi
á ný, að fengnum tillögum landlæknis og læknadeildar háskólans.
VI. NIÐURLAGS- OG BRÁÐABIRGÐAÁKVÆÐI
26. gr.
Ákvæði pessara laga um veitingu lækningaleyfis ná ekki til þeirra, sem lækningarétt hafa eða
lækningaleyfi, takmarkað eða ótakmarkað, pegar lögin ganga í gildi. Peir læknar, sem pá hafa
fengið leyfi Læknafélags íslands til að kalla sig sérfræðinga, halda og áfram pví leyfi. Önnur
ákvæði þessara laga, par á meðal ákvæðin um sviptingu lækningaleyfis, ná einnig til þeirra, sem
hafa lækningarétt eða lækningaleyfi, takmarkað eða ótakmarkað, pegar lögin ganga í gildi, og á
sama hátt og þeir hefðu fengið lækningaleyfi samkvæmt pessum lögum.