Læknablaðið - 15.06.1980, Side 23
LÆKNABLADID
147
9. gr.
9.1. Kostnaður, annar en launa- og ferðakostnaður vegna starfa heilbrigðismálaráða, greiðist
úr ríkissióði.
9.2. Kostnaður heilsugæslulækna vegna héraðslæknisstarfa greiðist úr ríkissjóði.
9.3. Ráðherra setur með reglugerð, að fengnu áliti landlæknis og viðkomandi heilbrigðismála-
ráðs, ákvæði um starfsaðstöðu héraðslæknis svo og starfslið.
10. gr.
10.1. Um laun heilsugæslulækna, sem jafnframt eru héraðslæknar, fer eftir launasamningum
fjármálaráðuneytis og L.l. á hverjum tíma.
III. KAFLI
Um heilsugæslu
11. gr.
11.1. Heilsugæsla merkir í pessum lögum heilsuverndarstarf og allt lækningastarf, sem unnið er
vegna heilbrigðra og sjúkra, sem ekki dveljast í sjúkrahúsum.
12. gr.
12.1. Setja skal á stofn heilsugæslustöðvar til þess að annast heilsugæslu samkvæmt lögum
þessum.
12.2. Par sem aðstæður leyfa, skal heilsugæslustöð vera í starfstengslum við sjúkrahús og pá
ávallt rekin sem hluti af pví, og í sömu byggingu, sé þess kostur.
12.3. Þar sem sjúkrahús er fyrir og afráðið er, að stofna skuli heilsugæslustöð, skal byggja
stöðina í starfstenglsum við sjúkrahúsið, pannig að pjónustudeildir og starfslið nýtist fyrir
hvort tveggja.
12.4. Þar sem afráðið verður samkvæmt lögum bessum að reisa heilsugæslustöð og ekki er
sjúkrahús á staðnum fyrir, skal kanna þörf héraðsins, (umdæmisins) fyrir sjúkrahús, sbr. 33.
gr., og hvort f)örf sé fullnægt, einkum hvað viðvíkur hjúkrunar- og endurhæfingarheimil-
um, og haga framkvæmdum í samræmi við það.
13. gr.
13.1. Heilsugæslustöðvar geta verið með f>rennu móti: Heilsugæslustöð 2 (H 2), f>ar sem starfa
tveir læknar hið minnsta ásamt öðru starfsliði skv. reglugerð.
Heilsugæslustöð 1 (H 1), par sem starfar einn læknir ásamt öðru starfsliði skv. reglugerð.
Heilsugæslustöð (H), f>ar sem starfar hjúkrunarfræðingur eða Ijósmóðir og læknir hefur
móttöku sjúklinga reglubundið. Heilsugæslustöð (H) skal stjórnunarlega heyra undir næstu
heilsugæslustöð 1 eða heilsugæslustöð 2.
Ráðherra getur ákveðið að læknir, hjúkrunarfræðingur eða ljósmóðir hafi reglulega
móttöku á stað utan heilsugæslustöðva, sé aðstaða til pess að mati héraðslæknis og
landlæknis.
13.2. Starfslið heilsugæslustöðvar getur að hluta verið sameiginlegt með annarri heilbrigðisstofn-
un í starfstenglsum við stöðina.
13.3. Lyfjaútibú eða lyfjaútsala samkvæmt 43. og 44. gr. lyfsölulaga eða lyfjasala undir eftirliti
lækna stöðvarinnar skal jafnan vera á heilsugæslustöð, ef lyfjabúð er ekki á staðnum.
Ráðherra getur ákveðið að lyfjabúð skuli vera í heilsugæslustöð.
14. gr.
14.1. Heilsugæslustöðvar skulu vera í héruðum skv. 6. gr. Héruðum skal skipt í heilsugæsluum-
dæmi, og skulu stöðvar innan sama umdæmis hafa samstarf og veita hver annarri aðstoð
og pjónustu, eftir pví sem við verður komið. Heilsugæsluumdæmi og heilsugæslustöðvar
skulu vera í héruðum svo sem hér greinir: