Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Qupperneq 4
Lýðheilsunefnd forsætisráðherra fékk
21 þúsund krónur í laun fyrir um-
fangsmikið starf og ítarlega skýrslu.
Skýrslunni var stungið ofan í skúffu í
ráðuneytinu og lá þar í hálft ár áður
en hún var kynnt. „Þetta var þannig
að fólk gerði bara grín að þessari upp-
hæð,“ segir Þorgrímur Þráinsson, for-
maður nefndarinnar. Sjálfur leitaði
Þorgrímur álits hjá fimmtíu aðilum
utan starfstíma nefndarinnar til þess
að fá sem besta sýn yfir málið.
Undir þetta tekur Petrína Baldurs-
dóttir, leikskólakennari í Grindavík,
en hún sat í nefndinni. Petrína segir
að þegar launin hafi borist hafi fólk
haft það í flimtingum að nefndarstörf
á vegum hins opinbera gætu varla
verið mikill baggi fyrir skattborgar-
ana.
„Það kom mér verulega á óvart
þegar ég áttaði mig á því að nefndar-
menn fengu nánast ekkert greitt fyrir
töluvert mikið starf,“ segir Þorgrímur.
Skýrslan undir stól
Nefndin skilaði yfirgripsmikilli
skýrslu um úrbætur í lýðheilsumál-
um Íslendinga, þann 11. september í
fyrra. Ekkert fréttist svo af skýrslunni
í hálft ár, en þá þrýstu nefndarmenn
sjálfir á um að skýrslan yrði kynnt á
Alþingi. Skýrslan var lögð fyrir þing-
menn sem þingskjal á lokaspretti
þingstarfa.
Þorgrímur Þráinsson segir það
hafa verið mikil vonbrigði fyrir nefnd-
ina að niðurstöður hennar skuli ekki
hafa verið kynntar á blaðamanna-
fundi, eins og venjan sé með skýrslur
á borð við þessa. „Aldrei var skýrslan
birt eða kynnt fyrir Alþingi. Það var
ekki fyrr en að við fórum að þrýsta
talsvert á að þingmenn fengju að sjá
skýrsluna fyrir þinglok að hún var sett
inn á þing sem þingskjal. Auðvitað
voru það talsverð vonbrigði að skýrsl-
an skyldi liggja í ráðuneytinu í hálft
ár,“ segir hann.
Þorgrímur segir það helst vera for-
sætisráðuneytinu til vorkunnar að
nefndin hafi verið
skipuð af Halldóri
Ásgrímssyni.
Geir Haar-
de hafi síðan
fengið
lyklavöldin í ráðuneytinu og kannski
ekki verið jafn meðvitaður um það
starf sem verið var að vinna.
Þjóðarheilsa í húfi
Þorgrímur segist sannfærður um
að ef ríkisstjórnin færi að tillögum
nefndarinnar þá myndi heilsu-
far þjóðarinnar batna snarlega
á næstu árum, með tilheyr-
andi sparnaði. „Við teljum
okkkur hafa skilað mjög
góðum tillögum, sem eru í
rauninni talsvert frábrugðn-
ar venjulegum tillögum,
vegna þess að yfirleitt er sagt
í svona tillögum að skoða
beri hitt og þetta betur og svo
famvegis.
Við erum hins vegar búin að skoða og
athuga og erum þarna að með hrein-
ar og klárar tillögur að úrbótum og að-
gerðum,“ segir hann.
Nefndin leggur til margvíslegar
tillögur um aðferðir til þess að bæta
heilsufar og lífsgæði almennings. Í
skýrslunni er meðal annars stungið
upp á því að byrjað verði strax í leik-
skóla að kenna börnum grunnatriði
í næringarfræði og mikilvægi hreyf-
ingar. Einnig er lagt til að heilsurækt-
arstyrkir starfsmannasamtaka og
verkalýðsfélaga verði ekki skattlagðir.
Nefndin bendir á þann möguleka að
holl matvara fái sérstakar merkingar,
þannig að neytendur geti betur áttað
sig á hollustu þess sem þeir kaupa.
þriðjudagur 27. mars 20074 Fréttir DV
Neyðarverðir
til Akureyrar
Neyðarlínan 112 opnaði varð-
stofu með þremur neyðarvörð-
um á Akureyri föstudaginn 16.
mars síðastliðinn en neyðarlín-
an hefur hingað til haft vara-
stöð í húsnæði lögreglunnar á
Akureyri. Nýja varðstofan verður
í fullum rekstri samhliða varð-
stofunni í Björgunarmiðstöðinni
Skógarhlíð í Reykjavík og er kær-
kominn viðbót til þess að auka
öryggi þeirra sem þurfa að nýta
sér þjónustu hennar.
Braut
lögreglurúður
Maður var handtekinn við
skrifstofur lögreglustjórans á
Suðurnesjum þar sem hann var
staðinn að verki við að brjóta
rúður í húsinu. Maðurinn hafði
kastað grjóti í rúðurnar og var
búinn að brjóta fjórar þegar
hann var handtekinn. Ekki er vit-
að hvað hann átti sökótt við lög-
reglustjórann en hann hefur að
öllum líkindum orðið enn illari
þegar hann vaknaði því hann var
að sjálfsögðu handtekinn og lát-
inn sofa úr sér í fangageymslum
lögreglunnar.
Snyrtilegt
skemmtihald
Þó nokkur erill var á
skemmtistöðum Akureyr-
arbæjar um nýliðna helgi
og hafði lögreglan í nógu að
snúast. Að loknu skemmt-
anahaldi tók hreinsunardeild
bæjarins við og tóku forsvars-
menn hennar eftir því hversu
vel hafði verið gengið um á
meðan skemmtanahaldi stóð.
Kváðu starfsmenn hreins-
unardeildarinnar miðbæ-
inn nánast lausan við rusl og
aðkoman hafi verið líkt og á
virkum degi.
Sterar á
Suðurnesjum
Lögreglan á Suðurnesjum fór
ásamt sérsveit og fíkniefnadeild
tollstjórans í skipulagðar aðgerð-
ir á þremur stöðum á Suðurnesj-
um á síðast liðið miðvikudags-
kvöld.
Um var að ræða húsleitir á
tveimur heimilum í Reykjanesbæ
og á einu í Vogum. Á öllum stöð-
unum fundust ætluð fíkniefni og
eða steralyf. Alls voru níu ein-
staklingar handteknir í þessum
aðgerðum. Þetta er í annað sinn
sem lögreglan á Suðurnesjum
leggst í svo umfangsmiklar að-
gerðir gegn fíkniefnum.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Urgur meðal strætabílstjóra:
Fjörutíu bílstjórar hafa sagt upp
„Það kom mér
verulega á óvart
þegar ég áttaði mig
á því að nefndarmenn
fengu nánast ekkert
greitt fyrir töluvert
mikið starf.“
Nefndarmenn í lýðheilsunefnd Halldórs Ásgrímssonar segja 21 þúsund króna laun fyrir
störf sín vera hreinasta grín. Þorgrímur Þráinsson segir forsætisráðuneytið að auki hafa
stungið skýrslu nefndarinnar ofan í skúffu og ekkert hafi frést af málinu í hálft ár.
„Það er þó nokkuð þungt í mönn-
um hljóðið og búið að vera lengi.
Óánægjan snýst um alltof mikið álag
í akstri í þeirri miklu traffík sem hér
er,“ segir Valdimar Jónsson, trúnað-
armaður strætisvagnabílstjóra hjá
Strætó bs.
Óánægja ríkir með fjölda stræt-
isvagnabílstjóra vegna núgildandi
vaktakerfi að sögn trúnaðarmanns. Á
fimmta tug bílstjóra hafa hætt akstri
frá því að vöktunum var komið á þrátt
fyrir smávægilegra breytingar á kerf-
inu. Hörður Gíslason, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Strætó bs., bendir á að
samkvæmt núgildandi vaktakerfi geti
bílstjórar valið sér hentugasta fyrir-
komulagið fyrir hvern og einn. Hann
er ekki endilega viss um að uppsagn-
irnar tengist óánægju. „Vaktakerfið er
valkvæmt og byggt á kjarasamningum.
Menn ættu nokkurn veginn að geta
valið hentugasta formið og reynt að
koma til móts við flesta,“ segir Hörð-
ur. „Uppsagnirnar tengjast að miklu
leyti hreyfingu vinnumarkaðarins al-
mennt. Ég kann ekki að segja frá því
hvort þetta sé öðruvísi hjá okkur en
víðast annars staðar.“
Samkvæmt vaktakerfinu geta bíl-
stjórarnir átt von á tíu tíma vöktum
í akstri og Valdimar segir það alltof
mikið. Hann vonast eftir breytingum
fljótlega því það sé nauðsynlegt ef ein-
hverjir bílstjórar eigi að verða eftir til
að keyra vagnana.
„Þegar menn eru á annað borð
orðnir óánægðir þá eykst hún bara
þegar tíminn líður. Mér skilst að von sé
á nýjum stjórnanda og við vonumst til
þess að hlutirnir lagist í kjölfarið,“ segir
Valdimar. trausti@dv.is
Bílstjórar ekki sáttir að sögn trúnaðarmanna strætisvagnabílstjóra hefur vel á
fimmta tug bílstjóra sagt upp störfum vegna óánægju með vaktakerfi. aðstoðarfram-
kvæmdastjóri strætó bs. segir vaktakerfið valkvæmt og samkvæmt kjarasamningum.
Forsætisráðherrann
Halldór Ásgrímsson
skipaði nefndina í
ráðherratíð sinni.
Nefndarmenn telja að
þrátt fyrir þverpólitíska
samstöðu um bætta
lýðheilsu, hafi áherslan á
málið tapast þegar geir
Haarde tók við
forsætis-
ráðu-
neyt-
inu.
NEFNDARLAUNIN
ERU ALGJÖRT GRÍN
Nefndarformaðurinn þorgrímur
þráinsson segir að nefndarfólki hafi þótt
21 þúsund króna ávísun fyrir störfin vera
skopleg. sjálfum hafi honum komið
greiðslan á óvart.
Sigtryggur Ari jóHANNSSoN
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Leikskólakennarinn Petrína
Baldursdóttir segir það ekkert laununga-
mál að nefndin hafi lokið störfum
síðastliðið haust. málið hafi aldrei fengið
kynningu og umfjöllun.