Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Page 6
þriðjudagur 27. mars 20076 Fréttir DV
TrausTi hafsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Í fjölda tilvika standast leikskóla-
byggingar ekki byggingareglugerð.
Hávaðamælingar í leikskólum sýna
víða hávaða yfir leyfilegum há-
marksmörkum þannig að lögum
samkvæmt ætti börn og starfsmenn
að bera heyrnarskjól. Ómtími hljóðs
í fjölda leikskóla mælist töluvert yfir
leyfilegum mörkum í bygginga-
reglugerð og þannig varir óbærileg-
ur hávaðinn lengur en eðlilegt þyk-
ir. Af þeim sökum er nánast ógerlegt
að tjáskipti og einbeiting geti átt sér
stað á leikskólum. Hávaðinn er það
mikill að hann getur verið skaðleg-
ur heyrn og ómtíminn það langur
að nemendur með slæma heyrn
greina innan við helming þeirra
orða sem sögð eru. „Það er nokk-
uð algengt að leikskólar eru með
of langan ómtíma. Hann er lengri
en leyfilegt er samkvæmt bygginga-
reglugerð þannig að hávaðinn varir
lengi og glymjandinn magnast upp.
Víða þarf að gera endurbætur á hús-
næði og breyta innréttingum,“ segir
Sigurður Karlsson, sérfræðingur hjá
efna- og hollustuháttadeild Vinnu-
eftirlits ríkisins.
ekki hægt að verja
Ólafur Hjálmarsson verkfræð-
ingur hefur lengi barist fyrir bættri
hljóðvist í leik- og grunnskólum
landsins. Hann segir hljóðmálin
hafa setið alltof lengi á hakanum.
„Niðurstöður mælinga sýna, svo
ekki verður um villst, að skólahús-
næði hefur verið byggt í stórum stíl
án þess að lágmarksákvæði bygg-
ingareglugerðar séu virt. Dæmi er
um nýjar byggingar það sem mæl-
ingar hafa verið þrefalt umfram
leyfileg mörk. Þessar niðurstöður
eru algerlega óviðunandi,“ segir Ól-
afur. „Í störfum mínum með tækni-
mönnum sveitarfélaga, kemur hvað
eftir annað upp úr dúrnum að þá
vantar rök fyrir því gagnvart stjórn-
málamönnum að sækja aukið fjár-
magn til nauðsynlegra endurbóta
í grunn- og leikskólum. Að mínu
mati er það siðferðilega óverjandi
að horfa upp á þennan vanda að-
gerðarlaus.“
hörmulegt ástand
Brynja Jóhannsdóttir, fagstjóri
hollustuháttadeildar Umhverfis-
stofnunar, segir erfitt að standa að-
gerðarlaus gagnvart þessum mikla
vanda. Hún lýsir eftir viðmiðum um
hávaða í skólum þar sem engin slík
sé að finna í reglugerð um hollustu-
hætti. „Þetta er hörmulegt ástand.
Eftir að þetta kom berlega í ljós fyrir
nokkrum árum sendum við út bréf
til allra sveitastjórna, skólanna, Al-
þingis og umhverfisráðuneytis. Þar
bentum við á þessar staðreyndir og
lögðum áherslu á að tekið væri á
vandanum á byggingastigi þar sem
mörg húsin augljóslega uppfylla
ekki kröfur byggingareglugerðar,“
segir Brynja. „Það vantar eitthvað
til að fylgja þessu eftir. Eftir áskor-
anir okkar höfum við ekki heyrt
neitt og engin svör borist. Samstarf
þeirra aðila sem starfa að þessum
málum ætti að geta gengið en gerir
það því miður ekki. Vandi okkar er
að við höfum engin úrræði þar sem
öll viðmið skortir í þessum efni í
reglugerðinni sem við störfum eftir.
Af þeim sökum eigum við erfitt með
að setja kröfur til þess að styrkja eft-
irlitið.“
Von á átaki
Umhverfisráðherra fer með yf-
irstjórn byggingarmála og núgild-
andi byggingareglugerð fellur und-
ir Skipulagsstofnun. Stefán Thors,
skipulagsstjóri ríkisins, bendir á
að það er hlutverk sveitarstjórna
að fjalla um byggingaleyfi og bygg-
ingareftirlit. Hann segir von á sér-
stöku átaki stofnunarinnar verð-
andi hljóðstig í skólum. „Ef ákvæði
byggingarreglugerðar eru ekki upp-
fyllt getur Skipulagsstofnun bent
sveitarstjórnum á að bæta þurfi úr
en stofnunin hefur hins vegar eng-
in úrræði til að grípa til láti sveit-
arstjórnir engu að síður hjá líða að
fylgja ákvæðum reglugerðar,“ seg-
ir Stefán. „Hljóðstig í skólum verð-
ur meðal þeirra mála sem stofnun-
in mun leggja áherslu á í sérstöku
átaki í framfylgd byggingarmála
á árunum 2007 og 2008 eða þar
til ný mannvirkjalög taka gildi og
byggingarmálum verður fyrir kom-
ið í nýrri Byggingarstofnun ásamt
brunamálum. Að átakinu verður
unnið í samráði við félag bygging-
arfulltrúa.“
Langur tími
Aðspurður telur Ólafur núgild-
andi byggingareglugerð löngu út-
runnna. Hann hefur áhyggjur af
aðgerðarleysi yfirstjórnar bygging-
armála í landinu. „Opinbert eftir-
lit virðist í molum og hönnunarfor-
sendur bygginga mjög á reiki, enda
reglugerðin löngu úrelt. Við erum
nú þegar einum til tveimur áratug-
um á eftir nágrannaþjóðum okkar.
Tómlæti umhverfisráðuneytis og
Skipulagsstofnunar veldur veruleg-
um áhyggjum,“ segir Ólafur. „Skipu-
lagsstofnun, að ráði ráðuneytisins,
ætlar ekkert að aðhafast í málinu
fyrr en ný byggingar- og skipulags-
lög taka gildi, eftir nokkur ár. Það er
langur tími í lífi barna í vondum að-
stæðum.“
Brynja tekur undir og segir mik-
ilvægt að brugðist sé við sem allra
STANDAST EKKI REGLUR
„Niðurstöður mælinga
sýna, svo ekki verður
um villst, að skóla-
húsnæði hefur verið
byggt í stórum stíl án
þess að lágmarksá-
kvæði byggingareglu-
gerðar séu virt.“
Fjöldi leikskólabygginga samræmast ekki byggingareglugerð þar
sem ómtími hljóðs er of langur. Óbærilegur hávaði á leikskólum var-
ir lengur en eðlilegt er og getur verið skaðlegur heyrn starfsfólks og
barnanna. Sjötíu og sex prósent leikskólakennara eru óánægðir með
hávaða á vinnustað. Hávaðinn mælist yfir leyfilegum mörkum og
ógerlegt á köflum að tjáskipti og einbeiting geti átt sér stað.