Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Page 10
þriðjudagur 27. mars 200710 Fréttir DV
Tíu siTjandi þingmenn falla
Tuttugu og sex nýliðar ná inn á þing að
alþingiskosningum loknum í vor. Níu
konur eru meðal nýliðanna og skipa kon-
ur rúman þriðjung allra þingsæta. Þrír
ráðherrar Framsóknarflokksins ná ekki
inn á þing eftir kosningar og ríkisstjórn-
armeirihlutinn fellur. Samantektin er
byggð á þjóðarpúlsi Gallup. Ekki er tekið
tillit til skoðanakönnunnar Fréttablaðsins
frá því á föstudag, bæði vegna þess hversu
lágt svarhlutfallið er og þar sem könnunin
nær ekki til kjördæma. Hún er því gagns-
laus í öllum samanburði.
Tíu sitjandi þingmenn falla í kosning-
unum í vor, af þeim eru þrír ráðherr-
ar Framsóknarflokksins, ef marka
má þjóðarpúls Gallup. Jón Sigurðs-
son, iðnaðarráðherra og formaður
Framsóknarflokksins, Siv Friðleifs-
dóttir heilbrigðisráðherra og Jón-
ína Bjartmars umhverfisráðherra ná
ekki að setjast á þing eftir kosningar.
Jón fellur ekki af þingi beinlínis því
hann hefur í raun aldrei verið kjör-
inn á þing.
Tuttugu og sex nýliðar ná inn á
þing, af þeim eru níu konur. Flest-
ir nýliðarnir koma inn í suðvest-
urkjördæmi eða sjö talsins. Sjálf-
stæðisflokkur fær tuttugu og fjóra
þingmenn, Vinstri grænir sautján,
Samfylking fjórtán, Framsóknar-
flokkur fimm og Frjálslyndir þrjá.
Tuttugu og fjórar þingkonur eru
meðal þeirra sem fá þingsæti á móti
þrjátíu og níu körlum, munurinn
eru tæp sextíu og tvö prósent. Kon-
ur eru næstar inn í þremur kjördæm-
um. Björg Gunnarsdóttur, Vinstri
grænum, vantar aðeins þrjátíu og
átta atkvæði til að fella Einar Odd
Kristjánsson, þriðja þingmann Sjálf-
stæðisflokks, í norð-vesturkjördæmi.
Björk Guðjónsdóttir, Sjálfstæðis-
flokki, er næst inn í suðurkjördæmi
og þarfnast hundrað og tuttugu at-
kvæða til að fella Róbert Marshall,
Samfylkingu. Í Reykjavík suður vant-
ar Dögg Pálsdóttur, sjötta manni
Sjálfstæðisflokks, 261 atkvæði til að
taka sæti Ágústs Ólafs Ágústssonar,
varaformanns Samfylkingar.
Fullkomið kynjajafnvægi er að
finna í einu kjördæmanna norð-
austurkjördæmi, þar sem formaður
Vinstri grænna, Steingrímur J. Sig-
fússon, er fyrsti maður inn á þing.
Heldur hallar á kvenþingmenn þeg-
ar litið er til norð-vesturkjördæmis,
níu karlar á móti einni konu, og suð-
urkjördæmis, átta karlar og ein kona,
sem ná inn á þing. Í suð-vesturkjör-
dæmi snýst hlutfallið við þar sem sjö
þingkonur ná inn á móti fimm körl-
um.
Suðurkjördæmi er það eina þar
sem enginn sitjandi þingmaður fell-
ur af þingi. Flestir þingmenn falla
í Reykjavík norður; Helgi Hjörv-
ar Samfylkingu, Guðjón Ólafur Ól-
afsson og Steinunn Sæmundsdótt-
ir Framsóknarflokki og Magnús Þór
Hafsteinsson, varaformaður Frjáls-
lynda flokksins. Hvorki Sjálfstæð-
isflokkur né Vinstri grænir missa
sitjandi þingmenn á meðan Fram-
sóknarflokkur og Samfylking missa
fjóra og Frjálslyndir tvo.
TrausTi hafsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
siTja áfram
guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra og
Valgerður sverrisdóttir utanríkisráðherra
sitja áfram á þingi að loknum kosningum
ásamt magnúsi stefánssyni félagsmálaráð-
herra. aðrir ráðherrar Framsóknarflokksins
ná ekki inn. allir sitjandi þingmenn og
ráðherrar sjálfstæðisflokksins ná sæti.
aTli Gíslason
frambjóðandi VinsTri Grænna
„mér líst dæmalaust vel á þessa
stöðu. Ég fagna hins vegar aldrei
sigri fyrr en hann er í höfn, það hef
ég aldrei gert. mér líst vel á þetta
verkefni og bíð spenntur eftir því að
takast á við það.“
áGúsT ólafur áGúsTsson
Varaformaður samfylkinGar
„Það er ánægjulegt að vera áfram
inni á þingi. samfylkingin ætlar sé
mun fleiri þingmenn. margir kjós-
endur eru enn óákveðnir og því geri
ég ráð fyrir því að þingflokkur okk-
ar verði stærri.“
Guðjón arnar krisTjánsson
formaður frjálslynda flokksins
„mér líst ágætlega á stöðuna. frjáls-
lyndi flokkurinn er rétt að hefja sína
kosningabaráttu og oft höfum við
siglt inn í kosningabaráttu með
lakari stöðu en þetta. Við erum full
bjartsýni og stefnum í tíu prósent.“