Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Page 13
DV Fréttir þriðjudagur 27. mars 2007 13
Endurfundir í miðborginni!
Fallegar innréttingar og fullkomin staðsetning Iðusala,
í Lækjargötunni, gerir þessa tvo sali sem um ræðir að
einum vinsælustu veislusölum borgarinnar. Salirnir rúma
250 manns í sæti eða 400 manns í standandi boði.
Lídó er glæsilegur nýr veislusalur sem byggir á klassísk-
um grunni Versala, upplagður fyrir stærri hópa til að
koma saman og fagna. Aðstaða er fyrir 300 manns í
borðhald og yfir 500 manns í standandi boði.
Veisluþjónustan okkar er rómuð fyrir fjölbreyttar og
spennandi veitingar, útbúnar af snjöllustu fagmönnum.
Við sjáum til þess að veislan verði eins og þú vilt hafa
hana: Ykkar ánægja er okkar markmið.
Kynntu þér þjónustu okkar og skoðaðu matseðla á
www.veislukompaniid.is eða hringdu í síma 517 5020
og veislan er í höfn!
Með kveðju,
Hafsteinn Egilsson
Er kominn tími á endurfundi hjá þínum árgangi?
Veislukompaníið býður glæsilega veislusali með
öllum tæknibúnaði og fyrsta flokks veisluþjónustu
í hjarta borgarinnar.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Minni steranotkun
hjá föngum
Átak til að stemma stigu við
mikilli steranotkun meðal danskra
fanga hefur borið árangur. Haft
er eftir talsmanni fangelsisyfir-
valda í Nyhedsavisen að notkunin
hafi minnkað töluvert samkvæmt
nýjustu mælingum. Árangurinn
er meðal annars rakinn til þeirr-
ar nýbreytni að hafa íþróttakenn-
ara til taks í öllum fangelsum sem
geri æfingar fanganna markvissari.
Það hefur einnig gefið góða raun
að banna þeim sem teknir eru með
stera að nýta sér æfingasalina í
fimm mánuði. Það telji margir ekki
áhættunnar virði enda líður tíminn
hægt innan fangelsismúranna.
Kohl tilnefndur
til Nóbels
Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari
Þýskalands á skilið að fá friðarverð-
laun Nóbels fyrir þátt sinn í sam-
einingu Austur- og Vestur-Þýska-
lands árið 1989. Þetta er haft eftir
José Manuel Barroso, forseta fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins á fréttavef Danska útvarpsins
í morgun. Framkvæmdastjórnin
hyggst tilnefna Kohl til verðlaunanna
sem afhent verða í október. Kohl var
kanslari Þýskalands frá 1982 til 1998
þegar hann beið ósigur í kosningum.
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
„HÆTTULEGASTA
KONA ÞÝSKALANDS“
FRJÁLS FERÐA SINNA
tugarins og stóðu í kjölfarið fyrir
árásum í Þýskalandi sem leiddu til
handtöku lykilmanna, þar á meðal
Birgitte Mohnhaupt. Nýju blóði er
síðan hleypt í samtökin þegar hún
losnar út fjórum árum síðar og er
aðaltilgangur baráttu þeirra eft-
ir það að fá leiðtoga og stofnend-
ur samtakanna látna lausa. Rán
þeirra á flugvél Lufthansa í Móg-
adishu, höfuðborg Sómalíu haust-
ið 1977 markar ákveðin tímamót
í starfssemi þeirra en þýskar sér-
sveitir höfðu mannræningjanna
undir í áhlaupi sínu á vélina. Í kjöl-
farið frömdu stofnendur samtak-
anna sjálfsmorð í fangaklefum sín-
um og reyndu að láta líta út fyrir að
þau hafi verið myrt.
Fleiri látnir lausir?
Einn félagi Mohnhaupt bíð-
ur niðurstöðu í umsókn sinni um
reynslulausn. Samkvæmt frétt
danska blaðsins Poliken er tal-
aði líklegt að á hana verði fallist
ef viðbrögðin við freslun hennar í
fyrradag verða mild meðal þýskra
stjórnmálamanna.
Félagar í Rauðu herdeildinni
lögðu endanlega niður vopn sín
árið 1998 og höfðu þá drepið þrjá-
tíu og fjóra borgara í aðgerðum
sínum síðan 1972.
Andreas Baader og Ulrike Meinhof
Birgitte Mohnhaupt Fyrrum leiðtogi
þýskra hryðjuverkasamtaka var látin
laus á sunnudagsnótt.
Mugabe
mun víkja
Leiðtogi stjórnarandstöð-
unnar í Zimbabve, Morgan
Tsvangirai
segir að Robert
Mugabe, for-
seti landsins
muni láta af
embætti inn-
an árs. Hann
segir aukinn-
ar óánægju
gæta meðal
flokksmanna Mugabe með stjórn
hans. Á morgun verður greidd
atkvæði innan stjórnarflokksins
um tillögu Mugabe um að fresta
forsetakosningum um tvö ár til
ársins 2010 en afgreiðslu hennar
hefur einu sinni verið frestað. Er
talið líklegt að tillagan verði felld
samkvæmt fréttavef BBC.
Chavez í
eignarnámi
Hugo Chaves, forseti Venezú-
ela tilkynnti á sunnudag að þrjú-
hundruð og
þrjátíu þúsund
hektarar hefðu
verið teknir
eignarnámi.
Þetta er hluti af
átaki hans að
gera landið að
sósíalísku ríki.
Gangrýnend-
ur forsetans benda á að fyrri til-
raunir hans til að auka landbún-
að í landinu hafi mistekist.