Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Blaðsíða 17
DV Sport þriðjudagur 27. mars 2007 17
ÍÞRÓTTAMOLAR
AnelkA íhugAr vistAskipti,
enn á ný
Nicolas anelka hjá Bolton gaf það í skyn
í gær að hann mundi fara frá Bolton ef
hann fengi betra
tilboð frá öðru liði.
anelka er búinn að
skora 10 mörk fyrir
Bolton í vetur frá
því hann kom frá
Fenerbahce.
anelka hatar ekki
að flytja og hefur
spilað með
ótrúlega mörgum
liðum á ferlinum.„Ég mundi íhuga það
að fara ef gott tilboð mundi berast. En
þessa stundina er ég ánægður hjá
Bolton,“ sagði anelka í viðtali við
L’Equipe
sýnið okkur virðingu
roberto donadoni, landsliðsþjálfari
Ítalíu, hefur beðið fjölmiðla um sýna
liðinu virðingu
fyrir leik gegn
skotlandi í
undankeppni
Evrópumótsins á
miðvikudag.
margir fjölmiðlar
hafa verið
uppfullir af
fréttum þess efnis
að donadoni verði
látinn taka pokann sinn ef liðinu tekst
ekki að sigra skota. „Ef við náum ekki
viðundandi úrslitum í þeim leik þá hefur
fólk fullan rétt á að gagnrýna og segja
hvað þurfi að gera betur. En það er alltaf
þetta “ef” sem er í þessu. Ég skil ekki til
hvers sumir eru að dæma áður en
atburðirnir hafa átt sér stað,” sagði
donadoni.
ArnAr orðinn fyrirliði
arnar grétarsson er orðinn fyrirliði
Breiðabliks en þetta kom fram á
Fótbolta.net. Hann
tekur við
fyrirliðabandinu af
markverðinum
Hjörvari
Hafliðasyni sem
bar það í fyrra.
Hjörvar verður þó
áfram í marki Blika
en í samtali við
vefsíðuna sagði
Ólafur H. Kristjánsson, þjálfari
Kópavogsliðsins, að þetta væri
algjörlega eðileg ákvörðun að sínu mati.
„arnar hefur ákveðna stöðu í hópnum
sem mér fannst bara rétt að undirstrika
með því að gera hann að fyrirliða,” sagði
Ólafur. arnar kom til Breiðabliks um mitt
sumar í fyrra úr atvinnumennskunni.
fylkir vAnn rAndeberg
mörg íslensk félagslið eru nú stödd í
heitari löndum við æfingar á grasvöll-
um. þar á meðal eru Fylkismenn sem
eru í Portúgal. Í gær lék liðið æfingaleik
gegn randeberg frá Noregi. Leifur garð-
arsson, þjálfari liðsins, leyfði mörgum að
spreyta sig í þessum leik en Árbæingar
unnu á endanum 1-0 sigur með marki
frá Kjartani andra Baldvinssyni. Fylkir
leikur gegn spænsku liði á fimmtudag
og svo við sænska liðið Norrköping á
laugardag en með því liði leikur stefán
þórðarson.
rAy Allen í Aðgerð
ray allen mun ekki spila meira með
seattle supersonics í NBa-deildinni á
þessu tímabili þar sem hann hefur
ákveðið að fara í aðgerð vegna
ökklameiðsla sem hafa plagað hann að
undanförnu. „Ég bara get ekki lengur
spilað sárþjáður leik eftir leik. því hef
ég ákveðið að bíða ekki með það að
fara í aðgerð. Ég hef ekki verið að spila
síðustu vikur eins og ég get best ,”
sagði allen. Hann hefur samt verið
frábær í vetur og skorað 26,3 stig að
meðaltali í vetur. það spilar einnig inn í
ákvörðun hans að lið seattle nánast
enga möguleika á að komast í
úrslitakeppnina.
Vilja markasúpu á morgun
Sigur Spánverja á Dönum var langt
frá því að vera sannfærandi. Fyrri
hálfleikur var eign heimamanna en í
síðari hálfleik voru danir mun betri,
þrátt fyrir að vera einum leikmanni
færri.
Flestir aðdáendur Spánar vilja fá
sannfærandi sigur, markasúpu, gegn
okkur Íslendingum á morgun, allt
annað er slakt.
Luis Aragones landsliðsþjálf-
ari Spánar er harðlega gagnrýndur í
spænskum fjölmiðlum fyrir skipting-
arnar sem hann gerði í leiknum. Ara-
gones tók sóknarmenn útaf og setti
annað hvort varnar- eða miðjmenn
inná.
El Mundo Deportivo blaðið slær
því upp að sigurinn hafi í sjálfu sér
verið fínn, en eftirbragðið biturt. Dan-
ir með tíu menn sýndu að brotalamir
eru í leik spænska liðsins.
Sport blaðið segir að síðari hálf-
leikurinn gegn Dönum hafi verið
skelfilegur og að ýmsu sé að hyggja.
Flest blöð eru þó sammála um að
leikurinn gegn Íslendingum sé góður
æfingarleikur til að laga ýmsa hluti.
Nánast öll blöðin spá því að Eið-
ur Smári verði einn í framlínunni og
með liðsfélaga hans Carlos Puol aft-
ur í spænska landsliðinu verður við
ramman reip að draga fyrir landsliðs-
fyrirliða okkar. Puol lék ekki á móti
Dönum þar sem amma hans féll frá í
síðustu viku. Þá kemur Sergio Ramos
einnig inní landsliðið eftir leikbann
og það á að styrkja vörnina einnig
sem var að sögn spænskra veikasti
hlekkurinn gegn Dönum.
Hinn 68 ára gamli Aragones gagn-
rýndi Andrés Iniesta og David Silva
harkalega eftir leikinn gegn Dön-
um og má leiða að því líkum að þeir
verði ekki í byrjunarliðinu gegn okk-
ar mönnum á morgun. „Ég var ekki
ánægður með að sumir leikmanna
minna voru eins og þeir voru í leikn-
um við Dani. Það er ekki eðlilegt
að Iniesta og Silva missi boltan jafn
klaufalega og þeir gerðu í leiknum. Ég
kannaðist ekki við suma leikmenn í
seinni hálfleik,“ sagði hinn yfirlýsinga-
glaði Aragones. Leikurinn á morg-
un verður fyrsti landsleikur Spánar á
Son Moix vellinum á Mallarca. Eyja-
skeggjar hafa auglýst leikinn grimmt
og slagorðið „Við munum bræða þá
og kynda verulega undir Íslending-
um,“ er notað í sífellu. benni@dv.is
umdeildur Luis aragones landsliðs-
þjálfari spánar er umdeildur maður.
seinni hálfleik, við spiluðum bara
illa í seinni. Ég er bara þakklátur að
hafa klárað þetta.
Ég tek það ekki af mínum mönn-
um að fyrri hálfleikur, hann var
hreint út sagt stórkostlegur og við
voru sterkir á taugum í lokin. Nú
er staðan orðinn 1-1 í einvíginu og
þetta er opið í báða enda. Það var
allt hægt í þessu. Þeir lenda í því að
baka okkur í fyrsta leiknum og þess
vegna kanski komið á hælunum í
þennan leik og haldið að hlutirnir
myndu gerast að sjálfu sér. Það ger-
ist ekkert að sjálfu sér í þessu.“
gott spark í rassinn
Einar Árnason var frekar súr í
bragði eftir leikinn og sagði að bil-
ið hefði verið einfaldlega of mikið í
hálfleik.
„Það er náttúrulega ekkert grín
að hlaupa 30 stig af sér og við hefð-
um þurft tvær mínútur í viðbót þá
hefðum við náð þeim. Það er súrt
að spila svona vel í seinni hálfleik
en labba með tap á bakinu.
Ég hreinlega veit ekki hvað
gerðist í fyrri hálfleik. Þeir mættu
nákvæmlega eins og við héldum
að þeir myndu mæta í fyrsta leik,
grimmir, voru að skjóta fyrir utan
og voru mjög sterkir á bakverði
okkar og við höndluðum það ílla.
Það er í raun vantaði allt uppá hjá
okkur.
Þetta er bara gott spark í rassinn
og við vorum búnir að gleyma því
hvernig var að tapa. Við byggjum á
þessum seinni hálflfeik og mætum
virkilega grimmir á fimmtudaginn,“
sagði Einar að lokum. benni@dv.is
hvar var brenton Ef Brenton Birming-
ham hefði verið rjúpnaskytta hefði verið
auglýst eftir honum.
Jonathan griffinn
Átti stórgóðan leik og skoraði körfur á
mikilvægum augnablikum í leiknum.
Yfirvöld á Mallorca, þar sem leikur Spánar og Íslands fer fram, hafa auglýst leikinn sem
auðveldan leik og að Spánverjar munu sýna íslensku víkingunum í tvo heimana.
ÁhLAup
NjARðvÍkiNgA
dugði ekki
Grindavík jafnaði einvígið við Ís-
landsmeistara Njarðvíkur með
88-81 sigri í gær. Grindavík leiddi með
30 stiga mun eftir fyrri hálfleikinn en
Njarðvík neitaði að gefast upp og úr
varð magnaður körfuboltaleikur.