Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Qupperneq 21
DV Lífstíll þriðjudagur 27. mars 2007 21
LífsstíLL Hollar kökur Á fimmtudaginn stendur maður lifandir fyrir köku-og eftirréttanámskeiði. þar mun auður ingibjörg Konráðsdóttir kenna fólki að galdra fram hollar kökur og eftirrétti með lítilli fyrirhöfn og engu samviskubiti. Kynntar verða uppskriftir og ráðleggingar gefnar um heilnæmt hráefni og aðferðir.
Megrunarpillur sem styrkja hár og neglur
Vörn gegn klóri
Heilsuhúsið er farið að selja sjampó
sem hentar þeim sem stunda sund
en vilja jafnframt vernda hárið gegn
áhrifum klórsins afar vel. Vörur
þessar koma frá fyrirtæki sem heitir
aubrey Organics og heitir sjampóið
einfaldega swimmer‘s Normalizing
shampoo for active Lifestyles. auk
þess að vernda hárið gegni klór
verndar það einnig gegn salti og sól
og er því kjörið á sólarströndina. Í
sömu línu er einnig að finna
hárnæringu en báðar vörurnar henta
báðum kynjum.
Hreyfing á
Meðgöngunni
Ný námskeið fyrir ófrískar konur eru
að hefjast í Hreyfingu upp úr
mánaðarmótunum. Námskeiðin eru
haldið undir stjórn hjúkrunarfræð-
inga sem hafa sérhæft sig í þjálfun
kvenna á meðgöngu. Á námskeiðinu
er farið vel yfir þær breytingar sem
verða á líkama konu á meðgöngu og
taka æfingarnar mið af þeim.
Ófrískum konum er einnig bent á að
skemmtileg námsskeið í mecca spa
en þar er blandað saman með-
göngujóga og meðgöngusundi.
Tvisvar í viku er boðið upp á
hefðbundið meðgöngujóga fyrir
verðandi mæður en einu sinni í viku
er meðgöngujóga kennt í sundi.
nautasæði í Hárið
Á hárgreiðslustofunni Hari´s salon í
London er í boði dekurmeðferð sem
felst í því að próteinríku nautasæði er
makað í
hársvörðinn.
sæðið kemur frá
bóndabæ í
Cheshire og er
því blandað
saman við
plönturætur.
þessi blanda er
látin liggja í
hárinu og gefur
hún því aukinn styrk og gljáa. það
verður spennandi að sjá hvort
íslenskar hárgreiðslustofur taki þetta
upp en hér á landi var kúahland
notað til hárþvotta á árum áður. Eitt
er víst að það er alltaf gott að fara á
hárgreiðslustofu og fá dekurmeðferð
fyrir hárið eins og djúpnæringu og
nudd og er það nokkuð sem maður
ætti að láta oftar eftir sér.
Boot Camp þjálfararnir Róbert Traustason og Arnaldur Birgir Konráðsson hafa sett
saman bók með algengustu Boot Camp æfingunum. Ekki er nauðsynlegt að eiga sér-
stök tæki eða tól til þess að gera æfingarnar og því er
hægt að stunda þær hvar og hvenær sem er.
Leikkonan Carmen Elect-
ra auglýsir nú grimmt amerískar
fegurðar- og megrunartöflur sem
kallast NV. Töflurnar eru ekki bara
sagðar hjálpa þeim sem vilja losa
sig við nokkur aukakíló heldur eru
þær einnig sagðar gefa aukna feg-
urð með því að styrkja húð, hár og
neglur.
Töflurnar eru einnig sagðar
veita þeim sem þær taka meiri
orku og með heilbrigðu matarræði
og góðri hreyfingu eiga töflurnar
að skila þeim sem þær taka góð-
um árangri. Í töflunum er að finna
ýmis efni eins og green tea extract
sem hjálpar til við brennslu og
gefur aukna orku, silica sem hefur
góð áhrif á hár og neglur, Collagen
sem dregur úr hrukkum og Co-
enzyme Q10 sem eykur heilbrigði
húðarinnar. Töflurnar, sem komu
á markað í fyrra, hafa nú þegar
fengið mikla umfjöllun í kvenna-
blöðum ytra og konur á borð við
Sharon Stone, Winona Ryder og
Sarah Drew hafa allar prófað vör-
una
Á heimasíðu NV, www.be-des-
ired.com, er að finna allar nán-
ari upplýsingar um þessar undra-
töflur en þar er einnig að finna
reynslusögur frá þáttakendum í
fegurðarsamkeppninni Mrs Am-
erica sem tekið hafa töflurnar. Í
fyrra var NV styrktaraðili þeirr-
ar keppninnar og þá missti einn
þáttakandinn rúm sex kíló á 8 vik-
um. Þess má geta að umbúðir vör-
unnar hafa vakið athygli og verið
verðlaunar en þær eru afar kven-
legar og minna lítið á pilluglas.
Leyndarmálið afhjúpað
Carmen Electra tekur amerískar
fegrunartöflur sem sagðar eru grenna og
gefa glansandi hár. með töflunum er hægt
að fá bók sem upplýsir helstu leyndarmál
að baki fallegs útlits.
Carmen Electra auglýsir fegurðarpillur:
Síðan Boot Camp æfingarkerfið nam
hér land fyrir þremur árum hef-
ur það notið gríðarlegra vinsælda.
Forsprakkar kerfisins á Íslandi
þeir Róbert Traustason og Arnald-
ur Birgir Konráðsso hafa á þessum
tíma þjálfað þúsundir og biðlistar
eru á flest þeirra námskeið. Til að
koma til móts við þennan gríðarlega
áhuga hafa þeir sett saman æfinga-
bók í anda Boot Camp sem nefnist
Boot Camp - grunnþjálfun. Þar er
að finna ítarlega æfingaráætlun sem
að þeirra sögn tryggir gott form á tólf
vikum. „Þessi bók er ekki nákvæm-
lega eins og námskeiðin þar sem
menn eru með einhvern öskrandi
yfir sér en ég skal lofa því að þeir sem
klára prógrammið sem gefið er upp
í bókinni verða komnir í sitt besta
form að 12 vikum liðnum, ég skal
ábyrgjast það,“ segir Róbert. Hann
bendir á að bókin sé sniðug lausn
fyrir þá sem komast ekki á námskeið
vegna barna eða vinnu og þurfa að
æfa eftir eigin hentisemi.
Boðið upp á sjósund
Ekki þarf neina sérstaka aðstöðu til
þess að gera æfingarnar, hægt er að
gera þær úti eða inni og án allra tækja.
„Við byggjum æfingarnar upp á eig-
in líkamsþyngd og fjölbreytileikinn
er mikill,“ segir Róbert. Bókin er sett
upp á einfaldan hátt og þar er hver
æfing útskýrð bæði í máli og mynd-
um. Auk áðurnefndrar 12 vikna æf-
ingaáætlunar er í bókinni einnig að
finna þriggja vikna undirbúningsá-
ætlun. Bókin fjallar líka um teygjur,
mataræði og önnur atriði sem leiða
að hámarksárangri. „Bókin er byggð
á því sem við erum að gera dagsdag-
lega hér hjá Boot Camp. Þessar æf-
ingar auka þol, styrk og þrek. Tekið
er á öllum helstu vöðvahópum og
þar sem æfingarnar eru fjölbreyttar
er engin hætta á stöðnun,“ segir Ró-
bert.
Auk bókaútgáfunnar hefur ver-
ið nóg annað að gerast hjá Boot
Camp. Framundan er mörg hundruð
manna árshátíð og nýlega flutti fyrir-
tækið starfsemi sína frá Faxafeni að
Suðurlandsbraut 6b. Þjálfarar fyrir-
tækisins hafa líka verið duglegir við
að brydda upp á nýjungum í þjálf-
uninni í vetur og þannig hefur ver-
ið boðið upp á sjósund einu sinni í
viku til að herða þá alhugrökkustu. Í
sumar verður svo aftur boðið upp á
enn fleiri útinámsskeið en fyrirtæk-
ið er nú með 15 kennara úti á landi
og sex í Reykjavík. Þegar Róbert er
spurður að því hvort Boot Camp ætli
að standa fyrir álíka uppákomu og
síðasta sumar þegar hlaupið var frá
Hellu til Reykjavíkur til styrktar sam-
tökunum Blátt áfram þá svarar hann
því til að þeir finni örugglega upp
á einhverju sniðugu en hafi ekki í
hyggju að vera eins mikið í sviðsljós-
inu. Áhugasamir geta kynnt sér nám-
skeiðin og bókina betur á heimasíð-
unni www.bootcamp.is
snaefridur@dv.is
Boot Camp þjálfun
heima í stofu
Forsprakkar Boot Camp Arnaldur Birgir og
Róbert, eru forsprakkar Boot Camp æfingakerf-
isins á Íslandi sem hafa nú sent frá sér bók með
Boot Camp æfingum. Þeir hafa báðir einkaþjálf-
araréttindi og margra ára þjálfunarreynslu.
Handhæg. Bókin er auðskiljanleg og með nákvæmum
lýsingum á hverri æfingu.