Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Side 22
neytendur
þriðjudagur 27. mars 200722 Neytendur DV
NagladekkiN í
hálfaN máNuð
Um helmingur ökutækja er á
negldum dekkjum, eða um eitt
hundrað þúsund ökutæki. Skipta
verður um hjólbarða fyrir 15.
apríl næstkomandi. „Fólkið er
aðeins farið að koma. Fólk miðar
við páskana eða fyrsta vinnu-
dag eftir páska,“ sagði Magnús
Hákonarson hjá Hjólvest við
Ægisíðu. Hann bjóst við því að
ef veðrið verður áfram skaplegt
muni fólk fara að streyma á hjól-
barðaverkstæðin í byrjun næstu
viku.
Fjöruborðið stækkar
Veitingahúsið Fjöruborðið á stokkseyri hefur
notið mikilla vinsælda og nú hefur aðstaðan
verið endurbætt.„Við höfum bætt við sérinngangi
inn í tjaldið og stærri og betri salernisaðstöðu,“
segir Pétur Kristjánsson yfirþjónn. Veislusalirnir
nefnast Tjaldið og hafið og geta þeir alls hýst 250 manns við borðhald. Pétur
er þegar farinn að búast við fjölda fólks í mat yfir páskana.
Borgaraleg
vígsla
Borgara-
leg gifting
fer fram hjá
sýslumönn-
um landsins
eða löglærð-
um fulltrúum
þeirra. Yfir-
leitt fer borgaraleg vígsla fram á
skrifstofu sýslumanns. Hjóna-
vígslan tekur um 10 mínútur.
Ákveðnum pappírum þarf að
koma til skila viku fyrir vígsluna
en það eru fæðingarvottorð, hjú-
skaparstöðuvottorð og ljósrit af
skilríkjum. Auk þess þarf að fylla
út ákveðin eyðublöð og fá und-
irskrift tveggja svaramanna en
þeir þurfa ekki endilega að vera
viðstaddir athöfnina. Borgaraleg
vígsla kostar 4.600 krónur.
Öll olíufélögin bjóða upp á afsláttarkjör til einstaklinga. Boðið er upp á kort sem veita
afslátt á hvern lítra auk punkta hjá Vildarklúbbi Flugleiða eða Safnkortinu. Ennfrem-
ur er hægt að fá aukin afslátt með inneignarkorti og sjálfsafgreiðslu.
kirkjuleg vígsla
„Nú um páskana hefst tími
brúðkaupa,“ segir séra Bára Frið-
riksdóttir. Þau hjón sem ætla
sér að fá kirkjulega hjónavígslu
þurfa að greiða fast gjald 6500
krónur til prests auk annarar
þjónustu. „Ég held að algengt sé
að fólk greiði tíu þúsund krónur
fyrir hverja hjónavígslu, ræðu,
æfingu og hjúpskaparvottorð
en síðan getur aksturkostnaður
bæst við samkvæmt gjaldskrá,“
segir séra Bára. Algengt er að
prestar taki gjald fyrir akstur og
eins vegna æfinga fyrir brúðkaup
en þess eru þó dæmi að því hafi
verið sleppt.
Að mörgu er að hyggja þegar velja
skal afsláttarkort hjá olíufélögunum.
Þrjú félaganna fjögurra Esso, Olís og
Skeljungur bjóða öll upp á afsláttar-
kort sem getur bæði verið inneign-
arkort eða kredikort sértengt hverju
félagi fyrir sig. Atlantsolía sker sig úr
hópnum því þeir bjóða upp á dælu-
lykla sem geta verið tengdir debet-,
kredit- eða Atlantsolíukorti.
Olískortið, Viðskiptakort Esso,
og dælulyklar Atlantsolíu veita fast-
an einnar krónu afslátt af dæluverði
og helst afslátturinn þó verð breyt-
ist. Inneignarkort Skeljungs býður
tveggja króna afslátt af dæluverði.
Olís og Skeljungur, bjóða korthöf-
um upp á safna punktum í Vildar-
klúbb Flugleiða og Esso býður Safn-
kortshöfum einn punkt fyrir hvern
dældan lítra.
Atlantsolía í Öskjuhlíð
Dæluykill Atlantsolíu er ókeyp-
is og honum fylgja engar þóknanir.
Atlantsolíukortið getur annarsveg-
ar verið inneignarkort tengt heima-
banka þar sem kúnni leggur fyrir-
fram inn ákveðna upphæð sem síðar
er hægt að nota, en hinsvegar venju-
legt kredikort. Hægt er að tengja
fleiri en einn lykil við hvert kort. Út-
tektir gerðar með dælulykli eru inn-
heimtar í gegnum kortareikning
handhafa.
Hægt er að hámarka notkun
kortsins við 5.000, 10.000 eða 15.000
krónur á sólarhring að því gefnu að
inneign sé fyrir úttektinni. Fastur af-
sláttur til einstaklinga með dælulykil
er ein króna á lítra af bæði díesel og
bensíni og auk þess er veittur tveggja
króna aukaafsláttur á dælustöð fé-
lagsins við Öskjuhlíð.
Viðskiptakort Esso
Viðskiptakorti Esso fylgir fastur
einnar krónu afsláttur sem dregst
frá dæluverði hvort sem dælt er fyr-
ir kúnnann eða í sjálfsafgreiðslu,
sem aftur veitir fimm krónu afslátt
á hvern lítra. Viðskiptakort einstakl-
inga er tengt bílnúmeri og er því ein-
ungis hægt að nota kortið fyrir einn
bíl. Einstaklingar fá Safnkortspunkta
af viðskiptum sínum á viðskiptakort
sé ekki samið sérstaklega um önnur
viðskiptakjör. Hver safnkortspunkt-
ur er ígildi einnar krónu og korthaf-
ar geta nýtt sé punktana sem þeir fá
sem greiðslu í öllum viðskiptum á
Esso stöðvunum.
Frelsiskort ÓB
Olís kortið er greiðslu-
kort fyrir einstaklinga og
fyrirtæki sem gildir til kaupa
á eldsneyti og öllum söluvörum
Olís. Kortið býðst í þremur gerðum:
Rauða kortið sem gildir eingöngu
fyrir eldsneyti, Gula kortið sem gildir
fyrir eldsneyti, rekstrarvörur bifreiða
og tækja og Græna kortið sem gildir
fyrir allar söluvörur Olís.
Olís kortið veitir einnar krónu
afslátt af dæluverði og gildir einu
hvort tilboð sé í gangi þar sem
einnar krónu afslátturinn dregst af
dæluverði. Til viðbótar fær hand-
hafi kortsins 1,5 prósent af veltu í
formi punkta í Vildarklúbbi Flug-
leiða. Hægt er að fá Olís kortið með
eða án PIN-númers. Auk þess býð-
ur Olís upp á ÓB frelsiskort sem
veitir fastan þriggja krónu afslátt af
dæluverði á sjálfsafgreiðslustöðv-
um félagsins.
Inneignar-
kort hjá
Skeljungi
Einstaklingar
geta valið úr fimm
tegundum viðskipta-
korta hjá Skeljungi: díesel kort,
bensín kort, bílakort, firmakort og
heimiliskort. Munurinn á kortunum
felst aðallega í því hvers kyns þjón-
ustu kortið getur veitt. Í hvert skipti
sem korti Skeljungs er framvísað fær
handhafinn punkta í Vildarklúbbi
Flugleiða. Auk þess fá handhafar 1,5
prósent af mánaðarlegri veltu inn á
fyrrnefndan vildarklúbb ef viðkom-
andi er ekki á öðrum samnings-
bundnum afsláttarkjörum hjá fyr-
irtækinu. Punktasöfnunin er óháð
því hvernig greitt er fyrir þjónust-
una. Einnig býður Skeljungur upp
á inneignarkort sem eru fyrirfram-
greidd og veita tveggja krónu afslátt
af dæluverði.
PlayStation 3 tölvur sem send-
ar voru á evrópska markaðinn voru
ekki sömu gerðar og þær sem fóru
til Bandaríkjanna og Japan. Play-
Station 3, eða PS3, státar af því nýj-
asta sem til er í tölvugrafík og tækni
auk þess sem hún inniheldur há-
skerpu DVD spilara og fæst með
tuttugu eða sextíu gígabæta
hörðum diski.
Eftir að dreifingu hafði
verið frestað nokkrum sinn-
um hófst salan í Japan 11.
nóvember 2006 með miklum
látum. Þar seldust áttatíu þúsund
eintök fyrsta sólarhringinn og með-
al annars seldist eitt eintak á E-Bay
fyrir 3.200 dollara, eða tæpar 200
þúsund krónur. Lætin í Japan voru
ekkert í samanburði við
þær sem upphófust tæpri viku síðar
þegar salan hófst í Bandaríkjunum.
Fjöldi beið í röðum um landið þvert
og endilangt eftir að sala á þeim 400
þúsund vélum, sem sendar voru yfir
hafið frá Japan, hófst. Það var ekki
fyrr en 23.mars sem dreifing hófst
í Evrópu og þá neyddust aðstand-
endur PS3 að viðurkenna óþægileg-
ar breytingar. Sony hafði lofað að
nýja vélin PS3 gæti spilað alla
gömlu PlayStation, PS1, og
PlayStation 2, PS2, leik-
ina, en nú hafa þeir lýst
því yfir að einungis sé mögulegt að
spila PS1 leikina og nokkra PS2.
Ástæðan liggur í breyttri hönnun þar
sem PS3 reiðir sig meira á samvinnu
hugbúnaðar og vélbúnaðar sem í
PS1 og PS2 var einungis í vélbún-
aðinum. Þessar breytingar hljóma
smávægilegar en þegar tekið er í
reikningin að yfir 200 milljón PS1 og
PS2 vélar hafa verið seldar um heim
allan og stór hluti þeirra í Evrópu þá
má gera ráð fyrir að ansi margir eig-
endur þurfi að leggja gömlum PS2
leikjum á hilluna.
Sony dregur í land fullyrðingar um að PS3 geti spilað alla gömlu leikina:
Bandarísku PS3 öflugari en þær evrópsku
DV2351260307
PlAy StAtIon
Loksins komin til Evrópu.
eymuNdssoN
í leifsstöð
Eymundsson sem hefur séð
ferðalöngum fyrir lesefni á leið
út í heim hefur opnað verslun á
nýju brottfararsvæði Flugstöðv-
arinnar. Gömlu versluninni
hefur verið lokað. Starfsstúlka í
versluninni segir búðina nú vera
bæði fallegri og skipulagðari.
Eymundsson býður upp á
meira úrval af ritföngum en ekki
einungis bækur og blöð eins og
áður. Einnig hafa þeir hafið sölu
á gosi og sælgæti.
Fjölbreyttur
aFsláttur
Afsláttarkort Öll fyrirtækin
bjóða upp á afsláttarkjkör.
Dælulykill atlantsolía býður
viðskiptavinum upp á
dælulykla sem veita afslátt.
olís Ódýrastir í
sjálfsafgreiðslu ÓB.
Skeljungur
mesti afsláttur með
inneignarkorti.