Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Síða 30
þriðjudagur 27. mars30 Síðast en ekki síst DV
Alcoa Fjarðarál hefur undanfarið
auglýst grimmt eftir trommuleikara í
hljómsveit hússins, Léttmálmsband-
ið. Trommuleikarar landsins geta nú
hætt að sækja um starfið því ráðið hef-
ur verið í stöðuna.
Sá heppni heitir Þorvaldur Einar-
son og mun hann spila með hljóm-
sveitinni á árshátíð fyrirtækissins um
næstu helgi. „Þegar við fórum af stað
með þessa auglýsingu þá var Þor-
valdur á námskeiði hérna hjá okk-
ur svo þetta gekk hratt fyrir sig,“ segir
hljómborðsleikari sveitarinnar Helgi
Georgsson. Fleiri sóttu um trommu-
leikarastöðuna en það lá beinast við
að ráða Þorvald þar sem hann átti sitt
eigið trommusett og gat svo að segja
sest við trommurnar strax og haf-
ið æfingar fyrir árshátíðina. Hljóm-
sveitin er því orðin fullskipuð en fyrir
utan þá Helga og Þorvald er hún skip-
uð söngkonunni Hönnu Jóhannes-
dóttur, Sigurði Ólafssyni bassaleikara
og bræðrunum Guðmundi og Reyni
Höskuldssonum. Sá fyrrnefndi spilar
á gítar en hinn syngur.
Búist er við miklu fjöri á árshá-
tiðinni um næstu helgi sem haldin
verður í Íþróttahúsinu á Fáskrúðs-
firði. Talið er að um 800 manns mæti
á skemmtunina sem Logi Bergmann
mun stýra. Matur og þjónusta verður
sótt til Bautans á Akureyri en starfs-
mennirnir munu sjálfir að mestu
sjá um skemmtiatriðin. „Það verður
hver deild með sitt atriði og svo verð-
ur hljómsveitin með sératriði og hit-
ar svo einnig upp fyrir hljómsveitina
sem spilar á ballinu,“ segir Helgi.
Að hans sögn mun Léttmálms-
bandið eingöngu spila rokk og ról á
árshátíðinni og eru lög eftir Bon Jovi
og Deep Purple ofarlega á lista. Ál
kemur einnig við sögu í lagavalinu því
einhverjum textum hefur verið snúið
yfir á íslensku og þeir staðfærðir.
Menn velta nú fyrir sér hvort Létt-
málmsbandið sé virkilega fullskipað
með nýja trommuleikaranum. Þegar
sveitin kom fram á jólahlaðborði fyr-
irtækisins voru meðlimir sveitarinnar
aðeins þrír en telja sex í dag. Alcoa hélt
kynningarfund á Nordica hóteli um
helgina fyrir væntanlega starfsmenn,
það er aldrei að vita nema í þeim hópi
leynist tónlistarfólk sem gæti breytt
Léttmálmsbandinu í stórsveit.
veðrið ritstjorn@dv.is
miðvikudagurþriðjudagur
Sandkorn
Það er fátt betra en að skella sér
í Sauna eða þurrgufu og hreinsa
huga og líkama. Það eykur bæði
þolinmæði og sjálfsstjórn að sitja
hitann af sér frekar en að rjúka út
eftir tveggja mínútna dvöl. Hægt
er að fá allskyns lyktarolíur til þess
að bæta lyktina og fá mismunandi
áhrif út úr gufunni. Nokkrir dropar
í ausuna áður en vatninu er skvett
á heita steinanna og klefin lyktar
frábærlega.
Það er skemmtilegt að brjóta upp
vikuna og skella sér á góðan kapp-
leik. Hvort sem það er í handbolta,
fótbolta, körfubolta eða öðrum
hressandi íþróttum. Ef mætingin
er góð og stemmningin líka er fátt
meira hressandi. Það er alltaf hægt
að sitja heima og horfa á sjónvarp-
ið. Svo er líka um að gera að ýta
undir ungmennafélagsandann og
styðja við bakið á sínu félagi.
Það er alltof vanmetið sport að
tefla. Það er hin besta hugarleik-
fimi að tefla og mun skemmtilegri
en margan grunar. Það þarf engan
snilling til þess að verða prýðis
teflari. Líkt og með aðra iðju er það
æfingin sem skapar meistarann og
áður en þú veist af getur þú ekki
hætt að hrókera og græja og gera.
Að vera komin af unglingsárunum
og kunna ekki mannganginn er líka
bara sorglegt.
Það er nóg um að vera á fjölum
leikhúsana. Til dæmis tveir ferskir
söngleikir sem ættu að höfða til
þeirra sem hafa ekki áhuga á hin-
um hefðbundna söngleik sem og
annara auðvita. Þetta er söngleik-
irnir Abbababb eftir Dr.Gunna og
LEG eftir Hugleik Dagsson. Mikl-
ir húmoristar báðir tveir og færa
áhorfendum eitthvað óhefðbundið.
Við mælum með...
...kappleikjum
...Sauna
...Skák
Bandarískur reikimeistari
á Útvarpi Sögu
Það er ekki ofsögum sagt að Ís-
lendingar elska að láta spá fyrir
sér og leita
ráðlegginga
hjá miðlum
og spákonum.
Útvarp Saga
bryddaði upp
á þeirri nýjung
á sunnudag-
inn að hafa í
beinni útsend-
ingu reikimeistara frá Banda-
ríkjunum. Konan heitir Maxim
Gaudio og er einnig menntuð
í sálarfræði. Hún er Íslandsað-
dáandi og kom hingað í frí og
langaði að prófa að vera með út-
varpsþátt hér, en Maxim er mjög
þekkt í heimalandi sínu. Arn-
þrúður Karlsdóttir útvarps-
stjóri ákvað að láta slag standa,
fékk túlk með Maxim og til stóð
að hafa klukkustundar langa út-
sendingu. Svo mikil ásókn var í
að ræða við Maxim, að línurnar
glóðu og þurfti á endanum að
hafa þáttinn í tvo tíma. Maxim
hyggst koma aftur í sumar og
vera þá með útvarpsþætti á Út-
varpi Sögu.
marín manda selur barnaföt
Fatahönnuðurinn Marín Manda
Magnúsdóttur hefur opnað
barnafataversl-
un í fölbleiku
húsi á Nyhavn
í Kaupmanna-
höfn. Lítið
hefur heyrst
frá Marín
Möndu síðan
hún fluttist út
til Danmerkur
fyrir nokkrum árum síðan til að
læra fatahönnun en þar á und-
an var hún mikið í sviðsljósinu,
sérstaklega á þeim tíma sem hún
var kærasta Fjölnis Þorgeirs-
son. Barnafataverslun Marínar
Möndu hefur fengið nafnið Baby
Kompagniet og er þar að finna
hágæða barnafatnað fyrir börn á
aldrinum 0-6 ára. Marín Manda,
sem sjálf er orðin mamma, verð-
ur með merki á borð við Katvig,
Moon, Happy Horse og Sebra
til sölu í versluninni. Þar verður
einnig að finna handprjónað-
ar íslenskar lopa-peysur sem og
barnafatnað frá 66°Norður. Vör-
urnar verða brátt einnig fáanleg-
ar á netinu en slóðin á netversl-
unina er www.baby-kompagniet.
dk.
X-factor dóttir glitnis
Starfmenn Glitnis trúðu margir
hverjir ekki eigin augum þegar
þeir fóru inn á
innri vef Glitnis
á föstudaginn.
Eins og algilt
er á innri vef
fyrirtækja, er
þar bannað að
flytja áróður af
nokkru tagi. En
það sem stóð
á innri vefnum þennan dag get-
ur vart flokkast undir annað en
„áróður“:
„X- factor dóttir Glitnis er Guð-
björg. Kjósum
hana í kvöld.“
Samkvæmt
heimildum
mun Guðbjörg eiga mjög náinn
ættingja innanborðs hjá Glitni
en spurning er hvort verið sé að
gera 16 ára stúlku greiða með
smölun af þessu tagi. Hún hefði
sjálfsagt hvort sem er náð langt á
eigin verðleikum.
Hljómsveit Alcoa Fjarðaáls, léttmálmsbandið, er nú loksins
komin með trommuleikara. Enda ekki seinna vænna, þar sem
árshátíðin er um næstu helgi.
TROMMULEIKARI
FUNDINN FYRIR
ÁRSHÁTÍÐINA
alvöru rokk Húsband Fjarðaráls hefur að
undanförnu auglýst eftir trommuleikara í
fjölmiðlum landsins og hefur loks fundið
hann. um næstu helgi spilar sveitin
fullskipuð, alvöru rokk, á árshátíð fyrirtækis-
ins. Logi Bergmann sér um veislustjón en
Bautinn á akureyri um veitingarnar.
Trommuleikarinn þorvaldur Einarsson þreytir frumraun sína með bandinu á árshátíðinni.
2
2
2
4
2
4
4
4
22
0
1
3
3
3
7
6
2
42
4
14
2
5 4
4 7
4
16
14
6 1
3 4
67
1
����������������������������
�������������
...Söngleikjum