Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2007, Síða 1
FÖSTUDAGUR 29. DeSembeR 200650 Helgin DV
„Cliff hefur aldrei verið betri!“
segir Garðar og bætir við að hann
hafi fengið gæsahúð frá fyrsta tóni.
„Hann er eins og maður um fimm-
tugt og það er ótrúlegt að hann skuli
vera orðinn 66 ára.“
Og Garðar ætti að vita hver syng-
ur vel og hver ekki. Sjálfur steig hann
fyrst á svið í Silfurtunglinu árið 1957,
þá fimmtán ára með hljómsveit Aage
Lorenz.
„Cliff var ekki mættur á svæðið
þá,“ útskýrir hann. „Ég var mikill að-
dáandi Tommys Steel, fór níu sinn-
um á myndina hans í Austurbæjar-
bíói og náði öllum töktunum. Þá var
ég kallaður Tommy Steel – en þá kom
þessi,“ segir hann og bendir á ljós-
mynd af Cliff Richard, sem tengda-
sonur hans, Ágúst Árnason tók á
tónleikunum um helgina. „Ég spil-
aði meðal annars með hljómsveit-
inni Tónum og við sérhæfðum okk-
ur í lögum með Cliff Richard og The
Shadows; tókum alveg fyrir lög eins
og Lucky Lips, Please, don‘t teach
og öll þessi frábæru. Ég hef verið að-
dáandi Cliffs frá fyrstu stundu. Ég
heillaðist af þessari mildu og fallegu
rödd, sem hefur ekkert breyst,“ seg-
ir Garðar, sem hefur samanburð síð-
ustu fimmtíu ára og sérstaklega síð-
ustu fimm:
„Já, ég fór á tónleika með honum í
Royal Albert Hall árið 2001, ári síðar
á Docklands Arena í London, í Edin-
borgarkastala fyrir tveimur árum og
nú í Dublin. Ég bíð bara eftir að sjá
hann í Laugardalshöll!“
Lítur hann vel út?
„Já, hann er bara eins og hvolp-
ur!“ segir Garðar hlæjandi. „Hann
hefur ekki farið í strekkingar heldur
bara lifað reglusömu lífi.“
En þú ert bara búinn að nefna
hröð lög með Cliff. Ertu að segja mér
að þú hafir ekki haldið upp á lagið
The Next time???
„Next time?! Ég er nú aldeilis
hræddur um það! Og ég elskaði lagið
When the girl in your arms...“
„Is the girl of your dreams“ syngj-
um við saman og slökkvum á upp-
tökutækinu.
annakristine@dv.is
Ég heyri ómfagrar raddir berast úr
fundarherberginu og get ekki hamið
mína forvitni. Inni sitja lærimeist-
ari minn Anna Kristine og Garðar
Guðmundsson. Eða ætti ég að kalla
hann Cliff Íslands? Ég sé að viðtalinu
er lokið og gerist svo djörf að opna
rennanlegu glerhurðina. Ég er vel-
komin, ég sé það en þau halda samt
áfram að tala um hvað þau hlakka
mikið til að berja goðið sitt augum
þann 28. mars næstkomandi. Þau
láta eins og smákrakkar. Mér finnst
þau fyndin. Ég laumast til þess að
kveikja á upptökutækinu.
Kristinn Cliff lýgur ekki
„Garðar! Guð minn góður. Var
þetta tekið núna? Fyrir viku síðan?“
segir Anna Kristine og lítur á eina af
fjölmörgum myndum sem tengda-
sonur Garðars tók á tónleikunum í
Dublin. Garðar játar því.
„En Garðar? Er hann ekki gay?“
spyr Anna einlæg.
„Ég veit það ekki. Maður hefur
auðvitað oft heyrt það en það hefur
aldrei komið opinberlega fram.“
„Hann er ógeðslega flottur,“ segir
Anna dreymin.
Garðar gengur enn lengra og seg-
ir: „Hann er bara ótrúlega fallegur,
maðurinn.“
„Hefur hann ekki farið í andlits-
lyftingu?“
„Nei, hann sagði það í sjónvarps-
viðtali fyrir ekki svo löngu,“ svarar
Garðar sposkur á svip.
„Trúum við honum ekki?“
„Jú,“ svarar Garðar. „Cliff lýgur
ekki, hann er kristinn maður.“
Karlar og kerlingar fá gæsahúð
Anna spyr Garðar hvaða lög hafi
staðið upp úr. „Þau voru auðvitað
mörg. En ætli ég hafi ekki fengið mestu
gæsahúðina þegar hann tók When the
girl in your arms.“
„O, það er svo flott,“ segir Anna og
þau byrja aftur að syngja saman brot
úr laginu.
„Hann hefur ekki tekið það á nein-
um af þeim tónleikum sem ég hef séð
með honum. Og ég skal segja þér það
Cliffs Richard
Anna Kristine
Æðsti draumur að búa til veggfóður
úr myndum af sér og Cliff Richard
Garðar hefur alltaf hrifist af ómfagri
rödd Cliffs „Ég náði honum mjög vel hér
áður fyrr. Nú er röddin orðin þroskuð svo
ég næ honum ekki lengur,“ segir Garðar.
Cliff Richard í Dublin Garðar fór á sína
fjórðu tónleika með Cliff Richard á dögunum.
Hann segir hann aldrei hafa verið betri en
einmitt þá og bíður spenntur eftir að sjá
hann í Höllinni þann 28. mars næstkomandi.
DV-mynd: Ágúst Árnason
Cliff Richard og Olivia Newton-John
Sú saga gekk lengi vel að þau Cliff Richard og
Olivia Newton-John hygðust pússa sig
saman. Árið 1974 neitaði Cliff því opinber-
lega. Cliff hefur verið piparsveinn alla tíð og
halda margir því fram að hann sé samkyn-
hneigður.
Garðar Guðmundsson þekkja margir úr versluninni Litaveri, enn
fleiri þekkja hann kannski sem söngvara og hljóðfæraleikara í
áratugi. Garðar hóf ferilinn árið 1957 og söng fyrsta lagið með
Cliff árið 1958. Hann var að koma af tónleikum með Cliff í Dublin,
þeim fjórðu sem hann sækir á fimm árum.
„Ég hef verið aðdá-
andi Cliffs frá fyrstu
stundu. Ég heillaðist af
þessari mildu og fal-
legu rödd, sem hefur
ekkert breyst.“
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
miðvikudagur 28. mars 2007 dagblaðið vísir 32. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235
nágrannar álversins í straumsvík segjast missa tækifæri til uppbyggingar:
milljarða l d
gert verðla
- mál hefur verið höfðað gegn ríki, bæ og alcan og tekist verður á um verulegar fjárhæðir.
Áfor um uppby gingu á landi í
ná enni álv rsins kunna að b eytast
verði af stækkun álversins. Deilur
vegna stækkunarinnar magnast.
Sjá bls. 11 og baksíðu.
DV-Sport
fylgir með
Jakob Jóhann
Sundgarpurinn Jakob Jóhann Sveinsson keppti í gær
í 50 metra bringusundi á heimsmeistaramótinu í sundi
sem fram fer í Melbourne.
Jakob Jóhann synti á tímanum 29,02 sekúndur og
endaði í 37. sæti af 125 keppendum. Jakob Jóhann var
sextán hundruðustu frá sínum besta árangri í greininni.
Hann keppir næst á morgun í 200 metra bringusundi en
það er hans síðasta keppnisgrein á mótinu. Örn Arnar-
son keppir í dag í 100 metra skriðsundi.
Fjögur heimsmet féllu á heimsmeistaramótinu í
gær. Bandaríkjamaðurinn Michael Phelps setti heims-
met í 200 metra skriðsundi þegar hann synti vega-
lengdina á einni mínútu og 43,86 sekúndum. Hann
var rúmlega tveimur og hálfri sekúndu á undan næsta
manni, Peter van den Hoogenband frá Hollandi. Aaron
Peirsol, samlandi Phelps, bætti eigið heimsmet í 100
metra baksundi um 0,19 sekúndur. Í gær synti hann á
tímanum 52,98 sekúndum og varð þar með fyrsti mað-
urinn til að synda 100 metra baksund á undir 53 sek-
úndum.
Natalie Coughlin, einnig frá Bandaríkjunum, setti
heimsmet í 100 metra baksundi þegar hún synti á 59,44
sekúndum. Hún bætti þar með eigið heimsmet í grein-
inni um fjórtán hundruðustu.
Ítalska stúlkan Federica Pellegrini kom öllum á óvart
í gær þegar hún setti nýtt heimsmet í undanúrslitum í
200 metra skriðsundi. Vegalengdina synti hún á einni
mínútu og 56,47 sekúndum. dagur@dv.is
DV Sport miðvikudagur 28. mars 2007 15
Sport
Miðvikudagur 28. mars 2007
sport@dv.is
Snæfell jafnaði einvígið við kr í ótrúlegum leik. úrSlitin réðuSt á lokaSekúndum
leikSinS með ótrúlegri þriggja Stiga körfu frá martin thueSen blS. 16
Haukar og Keflavík náðu forskoti í viðureignum sínum.
Jakob Jóhann í 37. sæti í bringusundi
Allt um leiki
næturinnar í NBA
NBA
Snæfell
jafnaði metin
fréttir
Stórskaðar
heyrnina
fréttir
Seinheppinn
þjófur
Vill syngja
með Cliff
>> Þjófi frá Litháen gekk illa hér á landi.
Hann er margdæmdur í heimalandinu.
>>Hávaði á leikskólum veldur streitu,
höfuðverk og námsörðugleikum.
DV MYND STEFÁN