Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2007, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2007, Blaðsíða 7
DV Fréttir miðvikudagur 28. mars 2007 7 Algert umferðaröngþveiti skap- aðist í úthverfum höfuðborgarinnar þegar snjóhríð lagðist yfir höfuðborg- arsvæðið um áttaleytið í gærmorg- un. Í kjölfarið myndaðist fljúgandi hálka á mesta annatíma dagsins. Fyrr um morguninn var rennifæri og fáir hálkublettir. Að sögn varðstjóra lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu mynduðust umferðahnútar við Gullinbrú, Höfða- bakka og Suðurlandsveg og tólf árekstrar voru tilkynntir til lögreglu strax um morguninn. Varðstjóri benti á að auk fjölda tilkynntra slysa,vissi hann til að fjöldi fólks hefði fyllt sjálft út tjónaskýrslur á meðan það sat fast í bílaröð. Ennfremur benti varðstjóri á að margir hefðu gefist upp á biðinni og haldið aftur til síns heima í þeirri von að umferð lagaðist. Verst var ástandið í Grafarvogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ og Breið- holti og nokkuð var um slæm óhöpp og veltur. Um áttaleytið fór jeppling- ur eina veltu við Móa á Kjalarnesi og kenndi ökumaður sér meins og leit- aði sjálfur til læknis. Við Bæjarbraut í Hafnarfirði var hörð bílvelta þar sem jeppi fór eina veltu og var bíllinn tek- inn með krana og ökumaður fluttur á slysadeild. Auk þess fór jeppling- ur eina veltu á Vesturlandsvegi við Höfðabakka og stöðvaði þar umferð á helstu umferðaræð Reykjavíkur. Þá valt vörubíll út af Hafravatnsvegi við Korpu og var dreginn aftur upp á veg. Að sögn varðstjóra var ástandið aft- ur orðið eðlilegt eftir klukkan hálf tíu þótt umferð hafi enn verið þung eins og venjulega. Alls höfðu 27 árekstrar verið tilkynntir til lögreglu um fjög- urleytið í gær. Hægt gekk að draga úr hálkunni því saltdreifingarbílarn- ir komust ekki til sinna starfa vegna hnútanna sem mynduðust. Tugir árekstra á höfuðborgarsvæðinu: Öngþveiti í umferðinni Langar bílaraðir mynduðust á helstu umferðaæðum höfuðborgarsvæðisins. Umferðaröngþveiti í morgunsárið Seinheppinn þjófur Egill Ólafsson, verslunarstjóri BT í Skeifunni Egill segir að öryggismyndavélar nái til allra kima í öllum verslunum BT og auðvelt sé að komast að því hver hafi verið að verki ef eitthvað er ekki á sínum stað. Ólafur G. Jósefsson gull- smíðameistari Ólafur veitti þjófunum eftirför eftir að dóttir hans sá þá handleika ný úr og bera þau saman við úr í búðinni. dv myndir Gúndi Laxeldi á Austfjörðum hefur ekki reynst arðvænlegt. Seiðaeldið er flöskuhálsinn fyrir stöðvarnar tvær í Mjóafirði og Berufirði. Hátt gengi krónunnar hefur valdið því að ágætis markaðsverð á laxi hefur ekki skilað sér sem skildi. Hátt raforkuverð hef- ur einnig reynst eldinu erfitt, en lax- eldi er orkufrekur iðnaður. Sæsilfur í Mjóafirði og Salar Island- ica í Berufirði hætta nú laxeldi. Menn eru þó sannfærðir um að nú sé lag að fara í stórtækar tilraunir með þorsk- eldi. Langt kann þó að vera þangað til þorskeldið ber ávöxt. Þessar tilraunir fyrirtækja með fiskeldi hafa ekki notið opinberrar fyrirgreiðslu. Salar islandica Í Berufirði var lagt upp árið 2002. Í starfsleyfi stöðvarinnar var gert ráð fyrir átta þúsund tonna ársfram- leiðslu. „Við settum út átján þús- und seiði fyrsta veturinn til þess að sjá hvernig okkur reiddi af,“ segir Gunnar Steinn Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Salar Islandica. Gunn- ar segir að alltaf hafi verið reiknað með að fara rólega af stað og ná svo framleiðslunni upp í sex til sjö þús- und tonn á ári, á tíu árum. Fyrsta stóra slátrunin í Berufirð- inum var svo árið 2005. „Það verð- ur slátrað í nokkrar vikur til viðbót- ar. Fiskurinn sem við settum út árið 2004 er að klárast. Svo verður hald- ið áfram að slátra í haust. Þar með er þetta komið,“ segir Gunnar. Sæsilfur Sæsilfur í Mjóafirði hefur frá ár- inu 2001 sett meira en fjórar milljón- ir seiða í sjó og slátrað yfir tíu þúsund tonnum af laxi. „Að sjálfsögðu var hugmyndin að þetta yrði arðvænleg- ur rekstur hjá okkur í Mjóafirðinum,“ segir Jón Kjartan Jónsson, yfirmaður fiskeldismála hjá Samherja á Akur- eyri. Samherji á eldisstöðina Sæsilf- ur í félagi við Síldarvinnsluna. Fyrsti árgangur Sæsilfurs var smár, eins og í Berufirðinum, en Jón Kjartan segir að stöðin hafi fljótlega farið upp í helming af framleiðslu- getu sinni. Árið 2003 var slátrað 1.400 tonnum af slægðum matfiski og strax árið eftir var framleiðslan komin í 3.230 tonn. Marglyttuplága í Mjóa- firði í fyrrasumar skapaði vandamál í stöðinni og talvert af fiski drapst. Megninu af fiskinum var þó hægt að bjarga og fór hann á markað. Í ár verður innan við 500 tonnum af laxi slátrað. Engin fyrirgreiðsla Stjórn Sæsilfurs í Mjóafirði sendi út yfirlýsingu í fyrra um að laxa- framleiðslu yrði hætt. Yfirlýsingin var harðorð og talið var upp að hátt gengi krónunnar væri að gera út af við reksturinn. Einnig sagði í yfirlýsing- unni að lagabreytingar hefðu valdið miklum hækkunum á raforkuverði. „Hækkun á þessum eina rekstrarlið hjá Samherja nemur nú þegar meira en tíu milljónum króna á ári,“ segir í yfirlýsingunni. Einnig segir að við- ræður um aðkomu Byggðastofnunar að fiskeldinu hafi engan árangur bor- ið. „Frá árinu 2000 hefur verið fjár- fest mikið í uppbyggingu í fiskeldi án nokkurrar opinberrar fyrirgreiðslu og nú er svo komið að ekki verður lengra farið í sjóeldinu,“ sagði í yfirlýsingu Samherja. Ekkert var þó minnst á það í yfirlýsingunni að seiðaeldið hefði brugðist, en illa hefur gengið að ala seiði hér heima, miðað við það sem gerist í Noregi. Vandamál laxeldis á Íslandi liggja í lélegri seiðaframleiðslu, háu raforkuverði og hágengisstefnu. Jón Kjartan Jónsson hjá Samherja segir að auðvitað hafi laxeldið átt að verða arðvænleg grein. Hann segir það mikil vonbrigði að nú þurfi að hætta. VOnBriGÐi Í LAXeLDi SiGTryGGur Ari JÓhAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is „Að sjálfsögðu var hugmyndin að þetta yrði arðvænlegur rekstur hjá okkur í Mjóafirðinum.“ Frá mjóafirði stjórnendur sæsilfurs lýstu því yfir í fyrra að hátt gengi krónunnar færi illa með rekstur stöðvarinnar. Í kjölfar lagabreyt- inga hækkaði raforkuverð og taldi stjórn fyrirtækisins að fiskeldið nyti ekki sannmælis. Fiskeldi seiðaframleiðsla á Íslandi varð á endanum flöskuháls fyrir framleiðsluna. gunnar steinn gunnarsson segir seiðaeldi á Íslandi vera heilum áratug á eftir því sem gerist hjá grönnum okkar í Noregi. þriðjudagur 27. mars 20078 Fréttir DV LAXELDIÐ BÚIÐ AÐ VERA Sæsilfur Salar Islandica Gunnar Steinn Gunnarsson Laxeldi leggur upp laupana á Ís- landi í annað sinn á tuttugu árum. Sæsilfur í Mjóafirði stefnir nú að því að hætta laxeldi, en fyrir- tækið hefur verið leiðandi í sjó- kvíaeldi á síðustu árum. Sæsilf- ur er í eigu Samherja á Akureyri og Síldarvinnslunnar. Þær fréttir bárust fyrir helgina að fyrirtækið Salar Islandica ætli að hætta lax- eldi í Berufirði. Salar Islandica er í eigu HB Granda. Bæði fyrirtækin hyggjast einbeita sér að þorskeldi sem áfram verður staðsett í Beru- firði og Mjóafirði. Ekkert til af seiðum Meginástæðan fyrir því að illa gengur í laxeldi er skortur á seið- um. Gunnar Steinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri Salar Islandica, segir að eins og stendur séu seiðin hvorki nógu góð né nógu mörg. „Seiðaeldi á Íslandi er í það minnsta heilum áratug á eftir því sem gerist í Noregi til dæm- is. Menn hafa staðnað og það er kannski ekkert skrítið því að hér hefur ekki verið neitt alvöru fisk- eldi í langan tíma. Þeir hafa dag- að uppi með litlar og illa hannað stöðvar sem eru illa tækjum búnar í ofanálag,“ segir Gunnar Steinn. Hann segir þó að enginn vafi leiki á því að seiðastofninn sjálfur sé góður. Sæsilfur hefur fengið sín seiði frá Íslandslaxi og Salar Islandi- ca kaupir seiði frá Stofnfiski. Ekki hefur komið til greina að kaupa seiði erlendis frá. Þorskeldi tekur við Til stendur að skipta út laxeldi Sæsilfurs í Mjóafirði fyrir þorsk- eldi. Síldarvinnslan, annar stærstu eigenda Sæsilfurs, hefur staðið að umfangsmiklum tilraunum með þorskeldi á síðustu árum. Gunnar Steinn hjá Salar Is- landica segir að meirihluta- eigandi fyrirtækisins, HB Grandi, hafi nú þegar tek- ið ákvörðun um að færa sig alfarið yfir í tilrauna- eldi á þorski í Berufirð- inum í þeirri von að þar liggi framtíðin. „Það er þó ennþá talsverður spölur í land með þorsk- eldið,“ segir hann. Salar Islandica er um þess- ar mundir að ljúka slátrun á stór- um árgöngum af laxi sem sett- ur var í kvíarn- ar árin 2003 og 2004. Fiskeldið er stóriðja „Fiskeldi hérna í firð- inum er okk- ar stóriðja, þannig að það er mikið í húfi að haldið verði áfram með arðvænlegan rekstur,“ segir Sigfús Vilhjálmsson, hrepps- stjóri í Mjóafirði. Hann staðfest- ir að nokkur kyrkingur hafi ver- ið í laxeldinu. Hann segir sömu vandamálin hafa verið uppi á ten- ingnum hjá báðum fyrirtækjun- um, seiðaframleiðslan hafi ekki gengið nógu vel. Sigfús telur það vera hart að Íslendingar geti ekki stundað laxeldi eins og Færeying- ar og Norðmenn. Á Djúpavogi munu sex manns missa vinnuna þegar slátr- un á laxi leggst af hjá Sal- ar Islandica. Strax árið 2005 hóf fyrirtækið að minnka umsvifin í laxeldinu. Fortíð í fiskeldi Þetta er ekki í fyrsta sinn sem illa geng- ur með laxeldi hér á landi. Á árunum 1985 til 1991 var lagt út í umfangsmikið laxeldi, sem hvatt var áfram og styrkt af stjórnvöldum. Steingrímur Her- mannsson, þáverandi forsætis- ráðherra, var áfram um laxeldið, sem af mörgum var talin arðvæn- legasta atvinnugrein sem Íslend- ingar áttu kost á. Fjölmargar fiskeldisstöðvar voru á endanum reknar í gjald- þrot. Þá, eins og nú, kom erfiður seiðabúskap- ur við sögu. Það var haft eftir Valdimar Leó Friðrikssyni fiskeldisfræðingi í DV í nóvember 1989 að dæmi væru um að seiði hefðu gengið kaupum og sölum á milli stöðva „sem ekkert uxu í heilt ár,“ eins og hann orðar það. Valdimar var stöðvarstjóri hjá Lindalaxi, sem var í eigu Þorvald- ar í Síld og fisk, ásamt norskum fjárfestum. Lindalax fór á haus- inn. „Seiðaeldi á Íslandi er í það minnsta heilum áratug á eftir því sem gerist í Noregi til dæmis. Menn hafa staðnað og það er kannski ekkert skrítið, því að hér hefur ekki verið neitt alvöru fiskeldi í langan tíma.” SIGtryGGur ArI jóhAnnSSon blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is hreppsstjórinn sigfús Vilhjálms- son á Brekku í mjóafirði telur áríðandi að afrámhald verði á fiskeldi í firðinum. „Eldið er okkar stóriðja,“ segir hann. Í mjóafirði búa nú um fjörtíu manns. Salar Islandica í Berufirði gunnar steinn gunnarsson, framkvæmdastjóri salar islandica, segir að kvíarnar í Berufirði verði framvegis nýttar undir þorskeldi. Hann segir seiðaeldi á Íslandi vera eftirá í tækjabúnaði og gæðastjórn- un. það sé hápólitískt mál að kaupa seiðin erlendis frá. Laxeldi í Mjófirði sæsilfur í mjófirði hyggst nú hætta laxeldi fyrir austan. seiðabúskapur er bágborinn og það hefur reynst erfitt fyrir laxeldið. Eigendur fyrirtækisins ætla að einbeita sér að þorskeldi í firðinum. í gær. er dagblað Fimmtudagurinn 22. febrúar er merkur dagur - þá verður dV aftur að dagblaði DV kemur framvegis út mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð brautarholti 26 105 reykjavík Sími: 512 7000 Fréttaskot: 512 7070 dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.