Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2007, Page 15
Jakob Jóhann var nálægt sínu besta í 50 metra bringusundi á HM í Melbourne.
Sundgarpurinn Jakob Jóhann Sveinsson keppti í gær
í 50 metra bringusundi á heimsmeistaramótinu í sundi
sem fram fer í Melbourne.
Jakob Jóhann synti á tímanum 29,02 sekúndur og
endaði í 37. sæti af 125 keppendum. Jakob Jóhann var
sextán hundruðustu frá sínum besta árangri í greininni.
Hann keppir næst á morgun í 200 metra bringusundi en
það er hans síðasta keppnisgrein á mótinu. Örn Arnar-
son keppir í dag í 100 metra skriðsundi.
Fjögur heimsmet féllu á heimsmeistaramótinu í
gær. Bandaríkjamaðurinn Michael Phelps setti heims-
met í 200 metra skriðsundi þegar hann synti vega-
lengdina á einni mínútu og 43,86 sekúndum. Hann
var rúmlega tveimur og hálfri sekúndu á undan næsta
manni, Peter van den Hoogenband frá Hollandi. Aaron
Peirsol, samlandi Phelps, bætti eigið heimsmet í 100
metra baksundi um 0,19 sekúndur. Í gær synti hann á
tímanum 52,98 sekúndum og varð þar með fyrsti mað-
urinn til að synda 100 metra baksund á undir 53 sek-
úndum.
Natalie Coughlin, einnig frá Bandaríkjunum, setti
heimsmet í 100 metra baksundi þegar hún synti á 59,44
sekúndum. Hún bætti þar með eigið heimsmet í grein-
inni um fjórtán hundruðustu.
Ítalska stúlkan Federica Pellegrini kom öllum á óvart
í gær þegar hún setti nýtt heimsmet í undanúrslitum í
200 metra skriðsundi. Vegalengdina synti hún á einni
mínútu og 56,47 sekúndum. dagur@dv.is
DV Sport miðvikudagur 28. mars 2007 15
Sport
Miðvikudagur 28. mars 2007
sport@dv.is
Snæfell jafnaði einvígið við kr í ótrúlegum leik. úrSlitin réðuSt á lokaSekúndum
leikSinS með ótrúlegri þriggja Stiga körfu frá martin thueSen blS. 16
Haukar og Keflavík náðu forskoti í viðureignum sínum.
Jakob Jóhann í 37. sæti í bringusundi
Allt um leiki
næturinnar í NBA
NBA
Snæfell
jafnaði metin